Íðorðapistlar 1-130

071-Málfar á fræðslufundum

Fyrir nokkru hlýddi undirritaður á læknisfræðilegan fyrirlestur, sem haldinn var á virðulegum fræðslufundi á íslenskri sjúkrastofnun. Auk fyrirlesara og fundarstjóra höfðu tugir manna úr ýmsum starfshópum safnast saman til að hlýða á forvitnilega frásögn af fræðilegum nýjungum í tiltekinni grein. Fyrirlesarinn hafði augljóslega lagt mikla vinnu í undirbúninginn og vildi án efa sýna fræðunum og áheyrendum sínum fulla virðingu. Hann var vel greiddur og vel klæddur og notaði augljósa þekkingu sína á efninu til að vekja hrifningu og áhuga viðstaddra. Þó var eins og honum hefði ekki komið í hug að tilefninu hæfði vandað íslenskt málfar. Erlendu sletturnar gengu yfir áheyrendur eins og fyrirlesarinn væri þátttakandi í óformlegum kaffistofuumræðum í þröngum hópi jafningja.



Slettur

Nýjustu hugtökin á fræðasviði fyrirlesara birtust flest í ensk-amerískum útgáfum án þess að tilraun væri gerð til íslenskunar. Sárast var þó að hlusta á slettur í stað algengra og almennt viðurkenndra íslenskra fræðiorða. Notað var heitið kanser í stað krabba, túmor í stað æxlis, malign í stað illkynja, benign í stað góðkynja, extensjón í stað útbreiðslu, infíltrasjón í stað íferðar, organ í stað líffæris og lesjón í stað meins eða meinsemdar. Að auki var erlendum vefja- og líffæraheitum óspart slett: múkósa í stað slímhúðar, súbmukósa í stað slímhúðarbeðs, kólon í stað ristils og pankreas í stað briskirtils. Loks voru ýmis almenn erlend orð notuð án þýðingar: óperasjón í stað aðgerðar, próblem í stað vandamáls, korrelasjón í stað samanburðar og kombínasjón í stað samsetningar.

Framantalið hefði flest mátt lagfæra án mikillar fyrirhafnar og án þess að fyrirlesturinn yrði hlaðinn óskiljanlegum nýyrðum. Nýju hugtökin, sem hvergi er að finna í læknisfræðiorðabókum, eru hins vegar erfiðari viðfangs og skal fyrirlesari í reynd ekki gagnrýndur vegna þeirra. Hitt má þó benda á að Orðanefnd læknafélaganna er ávallt reiðubúin til aðstoðar.



Carcinoma in situ

Starfshópur Orðanefndar ræddi nýlega um hugtakið carcinoma in situ. Í Íðorðasafni lækna er það nefnt staðbundið krabbamein, en það er að mati undirritaðs ekki nægilega sértækt heiti.

Læknisfræðiorðabók Stedmans skilgreinir carcinoma in situ á þann veg að um sé að ræða meinsemd sem einkennist af þeim frumubreytingum sem tengjast ífarandi krabbameini, en er bundin við þekju og án vefjafræðilegra ummerkja um ífarandi vöxt. Í sama streng taka aðrar skilgreiningar. Læknis- og líffræðiorðabók Wileys bætir því við að meinsemdir af þessu tagi finnist oftast í leghálsi og húð, en einnig í berkju-, vélinda-, leggangna-, legslímu-, maga- og ristilþekju. Til viðbótar má nefna ganga og kirtilblöðrur í brjóstum. Almennt er gert ráð fyrir að carcinoma in situ sé vís fyrirboði ífarandi vaxtar, krabbameins sem þrengir sér inn í aðlæga vefi. Þarna er sem sagt um að ræða fullmyndað krabbamein, en þó örsmátt og bundið við þekju slímhúðar, húðar eða kirtils. Nýlegt samheiti er intraepithelial carcinoma, innanþekjukrabbamein.

Situs er latneskt orð sem vissulega er oft þýtt með íslenska orðinu staður, en aðrar tilgreindar þýðingar eru: lega, staða, ástand, starf, afstaða og bygging eða byggingarlóð. In situ merkir þá einfaldlega á stað, til dæmis vísar heitið carcinoma in situ cervicis uteri í krabbamein á einhverjum stað í leghálsi. Merkingin er þó sértækari en lesa má beint úr orðum. Meinið skal vera bundið við þekju leghálsslímunnar, en má vera útbreitt innan þekjunnar, til dæmis svo að það nái um alla fjórðunga leghálsins. Heitið má hins vegar ekki nota um örlítið ífarandi krabbamein, þó það sé bundið við einn af fjórðungum leghálsins, því að ífarandi krabbamein er ekki lengur innan þekju.



Setkrabbamein

Í fyrrgreindri umræðu starfshópsins kom fram sú hugmynd að carcinoma in situ skyldi heita setkrabbamein. Undirrituðum líkar hugmyndin mjög vel. Orðið set má finna í Orðabók Menningarsjóðs og meðal tilgreindra merkinga eru: sæti, bekkur, upphækkaður pallur og stóll. Heitið setkrabbamein má því skilja þannig að um sé að ræða krabbamein sem enn situr í sæti (seti) sínu. Heitið er að auki lipurt og mun meðfærilegra en innanþekjukrabbamein.



Lbl 1995; 81: 813

Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica