Íðorðapistlar 1-130

073-Röntgenfræði

Í síðasta pistli var rætt nokkuð um stefnu Orðanefndar læknafélaganna varðandi nafnheiti (eponym), fræðiheiti dregin af nafni, oftast nafni þess manns sem fyrstur lýsti fyrirbærinu. Gert er ráð fyrir að erlenda nafnið verði ritað með stórum staf og sínum upphaflega rithætti og að oftast fylgi eignarfalls-"s". Stundum gerist það þó að nafnheiti er algjörlega innlimað í fræðimálið og tapar bæði stóra stafnum og eignarfallinu.

Meðal heita, sem náð hafa slíkri fótfestu í erlendu og íslensku fræðimáli, eru þau sem dregin eru af nafni þýska eðlisfræðingsins Wilhelm Roentgen, svo sem í orðunum röntgengeisli, og röntgenmynd. Enskar og amerískar læknisfræðiorðabækur vísa þó gjarnan í heiti sem hefjast á radio- í stað roentgen- og telja þau heppilegri. Nefna má radiology, radiologist og radiography.

Radius er latneskt orð sem merkir stafur, stika, teinn eða geisli. Íðorðasafn lækna hefur að nokkru farið bil beggja og birtir til dæmis öll uppflettiorðin roentgenogram, radiogram, roentgenograph og radiograph, en vísar í radiograph sem heppilegasta heitið og gefur þar íslensku þýðinguna röntgenmynd. Ljóst er þó að orðhlutarnir radio- og roentgen- eru ekki sömu merkingar, sá fyrri er víðtækari og getur vísað til fleiri geisla en röntgengeisla. Vera má því að tímabært sé orðið að endurskoða og samræma ýmis heiti í röntgenfræði.



Geislafræði

Vekja má athygli á því að fræðigreinin radiology er í Íðorðasafninu einungis nefnd geislalæknisfræði. Margar erlendar læknisfræðiorðabækur gera hins vegar grein fyrir því að heitið radiology megi annars vegar nota um þá grein eðlisfræði sem nefna má geislaeðlisfræði og hins vegar um þá grein læknisfræði sem nefnd er á íslensku geislalæknisfræði eða röntgenlæknisfræði. Bein orðhlutaþýðing á radiology er þó geislafræði, sem ef til vill ber þá að nota sem yfirheiti, þannig að geislafræði megi skipta í geislaeðlisfræði, geislalæknisfræði og fleiri undirgreinar.

Rétt er einnig að vekja athygli á þýðingum Íðorðasafnsins á heitunum radiologist, geislalæknir, og radiographer, röntgentæknir. Þetta er gert í samræmi við skilgreiningar erlendra læknisfræðiorðabóka. Radiologist er læknir, sem hlotið hefur þjálfun í notkun geisla við greiningu og meðferð sjúkdóma, en radiographer er tæknifræðingur, sem hefur hlotið þjálfun í aðferðum geislagreiningar, sérstaklega röntgenmyndatöku.

Heitið röntgenlæknir kemur hins vegar ekki fyrir í Íðorðasafninu, enda er ljóst að orðhlutinn röntgen- er ekki lengur fullnægjandi samheiti á verksviðum geislalæknisfræðinnar, því að sumar greiningaraðferðir hennar byggja ekki á notkun röntgengeisla. Nefna má ómskoðun (sonographia, echographia) og segulskoðun (magnetic resonance imaging).



Wilhelm K. Roentgen

Ekki er úr vegi að rifja upp nokkur söguleg atriði vegna 100 ára afmælis röntgenfræðinnar.

Wilhelm Konrad Roentgen (1845-1923) var þýskur eðlisfræðingur og prófessor við eðlisfræðideild háskólans í Würzburg þegar hann fann geislana sem eftir honum eru nefndir. Hann hafði unnið að tilraunum á rafleiðslu í lofttæmdu rými og af tilviljun komið auga á að tækið, sem hann notaði, varpaði frá sér ósýnilegum geislum sem þó höfðu áhrif á ljósmyndaplötu eins og sýnilegt ljós og framkölluðu flúrskímu (fluoresence) eins og útfjólublátt ljós. Þessi uppgötvun varð til þess að hann gerði skipulegar og ítarlegar tilraunir á hegðun geislanna. Þær sýndu að geislarnir hegðuðu sér öðru vísi en ljósgeislar, meðal annars brotnuðu þeir ekki í prisma og gengu auðveldlega í gegnum flest ljósþétt efni.

Þessar tilraunir prófessors Roentgen urðu til þess að hann kom auga á það að geislana var hægt að nota til að gera skuggamyndir af misþéttum hlutum, svo sem af mjúkvefjum og beinum í útlimum manna. Sjálfur nefndi hann geislana X-strahlen (X-rays), en þegar hann hafði kynnt niðurstöður sínar á fundi í vísindafélaginu í Würzburg þann 28. desember 1895, ákvað félagið með atkvæðagreiðslu að þessir nýfundnu geislar skyldu kallaðir Röntgen-geislar. Wilhelm K. Roentgen fékk Nóbelsverðlaun í eðlisfræði fyrir uppgötvun sína, þegar þau voru veitt í fyrsta sinn árið 1901. Allt fram til ársins 1975 var mælieiningin röntgen notuð til að gefa til kynna magn geislunar.

Lbl 1996; 82: 80

Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica