Íðorðapistlar 1-130

074-Kennslugögn

Þó nú sé orðið nokkuð langt síðan, að undirritaður fékk til yfirlestrar stutt útbýti (handout) sem fjallaði um geislagreiningu, skal það nú tekið til umræðu en í því koma fyrir ýmis orð sem eru í daglegri notkun þar sem röntgenmyndir eru pantaðar, teknar og skoðaðar. Um heitin aðréttu, útbýti og dreifigögn var fjallað í 53. pistli (FL; 1994; 12: 8) og verður sú umfjöllun ekki endurtekin nú. Hins vegar má ítreka að enska heitið "handout" er með öllu óþarft í íslensku máli. Í fyrrgreindu kennsluefni er reyndar hvorki minnst á handout eða útbýti, heldur ber heftið hinn látlausa undirtitil "Nokkur minnisatriði." Höfundar er getið á forsíðu og fram kemur hvaða kennsluár heftið muni notað. Hins vegar er þess ekki getið hverjum heftið er ætlað né hvar það verður notað, væntanlega í læknadeild. Slíkum formsatriðum ættu höfundar kennslugagna að sinna.



Greiningaraðferðir

Geislagreining er það íslenska heiti sem notað er um fræðiheitið radiodiagnosis, en það nær yfir röntgengreiningu (roentgen diagnosis), ómgreiningu (ultrasound diagnosis) og segulgreiningu (magnetic resonance diagnosis). Allt eru þetta lipur og lýsandi heiti sem auðveldlega ættu að komast í almenna notkun. Sárlega vantar þó liprara heiti á þá aðferð myndgerðar sem nefnist tölvusneiðmyndataka (computerized tomography). Of oft er talað um "katt-skann" eða "sí-tí-skann" á slangurmálinu.

Fyrir þá, sem vilja takast á við verkefnið, má nefna að gríska nafnorðið tomos merkir sneið og sagnorðið grapho að skrifa eða rita. Um leið mætti hyggja að því að samræma þýðingar á heitum fleiri rannsókna, svo sem angiographia, bronchographia, cholangiographia, salpingographia og ventriculographia.

Ástæða er til þess að hvetja lækna til að senda Orðanefnd læknafélaganna eða undirrituðum hugmyndir sínar, bæði hvað varðar ný erlend fræðiorð, sem þörf er á að fái íslensk heiti, og eins hvað varðar nýjar þýðingar á eldri orðum.



Venjurannsóknir

Í heftinu er meðal annars greint frá því að við vissar aðstæður sé venja (rútína) að taka tilteknar röntgenmyndir. Höfundur notar fyrirsögnina venjurannsóknir, þegar hann telur upp nokkur dæmi um slíkar myndatökur, og fer vel á því. Heitið "rútína" fer hins vegar afar illa í rituðu máli, þó oft sé því slett í daglegri umræðu. Enska nafnorðið routine fær íslensku þýðingarnar venja, vani, vanagangur og vanaverk í almennum ensk-íslenskum orðabókum, en er ekki uppflettiorð í Íðorðasafni lækna eða í tiltækum erlendum læknisfræðiorðabókum. Hin mikla orðabók Websters greinir frá því að routine sé komið úr frönsku þar sem nafnorðið route merki braut eða vegur og sagnorðið routiner merki að venja við eitthvað. Tilgreind dæmi um mismunandi notkun og merkingu gefa til kynna að blæbrigði merkingar séu allt frá því að á íslensku megi nota orðin vani eða venja yfir í það að betur hæfi siður eða skylda. Fullyrðingin "Það er rútína að taka lungnamynd!" merkir að það sé meira en vani, það sé siðbundin venja, nánast skyldubundin verkregla, að taka lungnamynd við tilteknar aðstæður. Því finnst undirrituðum vel hæfa heitið venjurannsókn. Gaman væri að heyra um aðrar skoðanir eða aðrar tillögur.



Myndaheiti

Í fyrrgreindu hefti er minnst á heiti mynda sem byggja á staðlaðri geislastefnu. Þannig eru tilnefndar "frontal-myndir", "hliðarmyndir (lateral)" og "skámyndir".

Frons er latneskt nafnorð sem táknar enni. Frontal er svo lýsingarorð í enskri tungu sem getur vísað til ennis, framhliðar líkamans eða sniðs í gegnum hann (planum frontale), samsíða enni eða framfleti. Slíkt snið nefnir Íðorðasafnið nú breiðskurð eða breiðsnið. Beinar þýðingar á frontal eru: fram- eða ennis-, en þýðingar á latneska lýsingarorðinu frontalis eru: fram-, breið-, breiddar- og ennis-.

"Frontal-mynd" er tekin þannig að framhlið líkamans snýr að filmu og stefna röntgengeislanna er í gegnum líkamann frá baki að framfleti. Heitin "hliðarmynd" og "skámynd" lýsa vel því sem þau eiga að tákna, en sárlega skortir lipurt heiti á "frontal-mynd". Ekkert af heitunum ennismynd, breiðmynd eða breiddarmynd virðast koma til greina, en frammynd gæti ef til vill gengið. Heitið framstefnumynd er lýsandi og getur gefið vísbendingu um geislastefnuna, en er sennilega of langt. Óskað er eftir fleiri tillögum.

Lbl 1996; 82: 178

Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica