Íðorðapistlar 1-130

083-Erythroderma, roðahúð

Vigfús Sigurðsson, læknir, skrifar frá Hollandi og biður um aðstoð við að finna íslenskt heiti sem nota megi um hugtakið erythroderma, en það er ekki í Íðorðasafninu.

Vigfús segir í bréfi sínu að erythroderma sé sjúkdómsástand þar sem nær allt yfirborð húðarinnar sé rautt og að oftast fylgi hreisturmyndun. Hann segir enn fremur að ýmsir húðsjúkdómar geti valdið erythroderma. Í sama streng tekur læknisfræðiorðabók Stedmans: ósértækt heiti á miklum og venjulega útbreiddum roða í húð sem stafar af útvíkkun blóðæða og kemur oft á undan eða í tengslum við flagning. Þar og í hinni miklu læknis- og líffræðiorðabók Wileys má finna samheitin erythrodermatitis, erythrodermia og generalized exfoliative dermatitis, auk annarra sem talin eru úrelt. Vigfús getur þess, að ekki sé alls kostar rétt að nota það síðasttalda sem samheiti, þar sem flagningur eða hreisturmyndun eigi sér ekki alltaf stað.



Samheiti

Samkvæmt Orðabók Máls og menningar er samheiti: samnafn, sameiginlegt heiti, orð sömu merkingar. Samheiti eru þó sjaldnast alveg jafngild eða nákvæmlega sömu merkingar og á það ekki síst við um fræðileg samheiti. Í sumum tilvikum hafa orðið til ný fræðiheiti vegna þess að ný þekking leiðir í ljós að þau eldri byggðust á úreltri hugmyndafræði, en í öðrum tilvikum er einungis um að ræða mismunandi sjónarhorn.

Heitið erythroderma gefur til dæmis einungis til kynna að húðin sé rauð, en heitið erythrodermatitis að húðin sé bæði rauð og bólgin. Heitið exfoliative dermatitis sýnir hins vegar að um flagning og húðbólgu er að ræða, en ekkert er gefið til kynna um litinn. Þó að oft sé almennt samkomulag um notkun einstakra samheita, getur notkunin einnig byggst á óskilgreindri hefð eða verið bundin við ákveðin sérsvið, stofnanir, svæði eða lönd. Stundum kemur það fyrir að vinsældir ákveðinna heita eru einungis tímabundnar. Íðorðafræðin krefjast þess þó við formlega skráningu að meðal samheita sé eitt ráðandi og þá tilgreint sem aðalheiti. Íðorðasafn lækna vísar á milli samheita þannig að til aðalheitis er vísað með orðinu sjá, en til annarra samheita með skammstöfuninni sh. Við þýðingar og nýyrðasmíð er meginreglan sú að leggja aðalheitið til grundvallar.



Roðahúð, húðroði, alroði

Fyrrtaldar orðabækur velja báðar erythroderma sem aðalheiti. Heitið er samsett úr tveimur orðum sem bæði eru komin úr grísku. Það fyrra er erythros sem merkir rauður, en það síðara er derma sem merkir húð. Bein þýðing á erythroderma er því einfaldlega rauð húð. Í Íðorðasafninu er orðhlutinn erythro- einnig stundum þýddur sem roða-, þannig að roðahúð kemur einnig til greina. Erythrodermatitis verður þá roðahúðbólga en exfoliative dermatitis getur fengið heitið flagningshúðbólga.

Við nýja þýðingu Alþjóðlegu sjúkdómaskrárinnar (ICD-10) var farin sú leið að velja heitið húðroði til að tákna erythroderma. Þó að undirritaður hafi átt þátt í því verki á sínum tíma, þá finnst honum nú að roðahúð sé betra heiti á þessu almenna og útbreidda sjúkdómsástandi og að húðroði eigi betur við sem heiti á sjúkdómseinkenni. Vigfús leggur sjálfur til heitið alroði, en því vill undirritaður hafna með svipaðri röksemd: að það eigi betur við sem kerfisheiti til að lýsa útbreiðslu roða í húð, og tákni þá að húðin sé öll rauð.



Valaðgerð

Nýlega var spurt um íslensk heiti á elective surgery og elective admission. Í Íðorðasafninu má finna elective operation en þar fylgir "?" í stað þýðingar. Hins vegar má þar finna elective mutism sem þýtt er með þrísamsetta heitinu valmálleysi. Enska orðið elective merkir valinn, kosinn eða kjörinn. Operation er aðgerð eða skurðaðgerð og til samræmis verður elective operation þá valaðgerð. Heitið kjöraðgerð ætti hins vegar að nota um æskilegustu eða bestu aðgerð, til samræmis við heitið kjörþyngd, sem er notað um þá líkamsþyngd sem talin er æskilegust fyrir tiltekinn mann.



Blóðstorkusótt

Fyrirbærið disseminated intravascular coagulation er skráð í Íðorðasafninu með því stirðlega íslenska heiti dreifð blóðstorknun. Stungið er upp á því, án rökstuðnings að sinni, að það verði nefnt blóðstorkusótt.

Lbl 1996; 82: 804
Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica