Íðorðapistlar 1-130

097-Cephalosporin

Um miðjan desember barst beiðni um tillögu að íslenskri stafsetningu lyfjaheitisins cephalosporin. Til fróðleiks má nefna að heitið er dregið af ættkvíslarheiti tiltekinna sveppa, Cephalosporium. Sveppirnir framleiða lyfjaefni sem geta unnið á sýklum, skyld penisillíni en ónæm fyrir penisillínasa. Fyrri hluti heitisins er kominn af gríska orðinu kephale, sem merkir höfuð, en síðari hlutinn væntanlega af sporos, sem merkir sæði, fræ, gró eða spori. Reyndar hefur heiti sveppanna síðan verið breytt og heitir ættkvíslin nú Acremonium.

Áður hefur verið drepið á framburð fræðiheita (56. pistill, Lbl 1994; 80: 404) og bent á að hefð ráði um framburð margra erlendra heita sem notuð eru í íslenska læknamálinu þó að fullkomin samstaða hafi ekki náðst. Umritun erlendra sýklaheita á íslensku hefur einnig verið rædd (78. pistill, Lbl 1995; 81: 751) og þá lagt til að bakteríuheiti verði ekki lengur þýdd heldur umrituð nokkurn veginn hljóðrétt eins og heiti lyfja og lyfjaefna. Þó að ákvörðun um þetta geti verið einföld, þá er framkvæmdin ekki alltaf jafn einföld.

Hljóðrétt umritun gerir ráð fyrir að fræðiheiti séu rituð á íslensku nokkurn veginn eins og þau hljóma í framburði. En þá vaknar spurning um það hvaða framburð eigi að leggja til grundvallar, íslenskan eða erlendan, og ef ekki íslenskan þá úr hvaða tungumáli. Tilraun til umritunar á heitinu cephalosporin gefur dæmi um þetta. Fyrsta stafinn c-ið má bera fram með s-hljóði eða k-hljóði, ph má bera fram sem p eða sem f, o-in bæði má ýmist bera fram sem o eða ó og i-ið má bera fram sem i eða í. Hvað "réttast" er verður tæpast fullyrt, en engu að síður má ná samkomulagi um meginstefnu. Undirritaður afgreiddi málið með því að segjast sjálfur skrifa sefalósporín samkvæmt amerískri framburðarhefð, en viðurkenna latnesk-evrópsku hefðina kefalósporín.



Lausnaleitarnám

Síðsumars barst það verkefni frá Birni Guðbjörnssyni, yfirlækni á FSA, að finna heiti á tiltekna kennsluaðferð, problem based learning. Birni hefur fyrir löngu verið svarað í tölvupósti, en aðrir læknar og kennarar gætu haft áhuga á málinu. Aðferðin felst í því að fá nemendum verkefni til úrlausnar og hjálpa þeim á skipulagðan hátt til þess að forma þær spurningar sem svara þarf til að leysa verkefnið og síðan að virkja þá til þess að svara spurningunum sjálfir með því að afla sér fræðilegrar þekkingar á eigin spýtur. Á þennan hátt læra þeir markvisst að skilgreina vandann og að afla sér þeirrar þekkingar, sem þarf að vera fyrir hendi til þess að leysa megi tiltekin vandamál.

Problem má þýða á margan hátt: vandi, vandamál, verkefni, úrlausnarefni, dæmi, þraut, viðfangsefni og vafamál. Enska sögnin to base merkir að grundvalla eða að byggja á og er hún komin af latneska orðinu basis, grunnur, grundvöllur.

Eftir að hafa skoðað ýmsar hugmyndir, svo sem vandamálanám, verkefnanám, viðfangsnám og jafnvel vandagrundað nám, fannst ágæt lausn í grein eftir Björgu Þorsteinsdóttur, læknanema (Læknaneminn 1997; 50: 59-63), lausnaleitarnám.



Alnetið

Í októberhefti Tölvumála, tímarits Skýrslutæknifélags Íslands, er fjallað um nýja útgáfu Tölvuorðasafns og þess meðal annars getið að gott íslenskt heiti vanti nú á fyrirbærið Internet, en það er Netið fræga sem tölvueigendur sækjast nú eftir að vera í sambandi við. Greint er frá tveimur hugmyndum, annars vegar sérheitinu Lýðnetið og hins vegar samheitinu fjölnet, en það síðarnefnda er heiti á netum sem sameina ólíkar tegundir tölvuneta.

Undirritaður tekur undir þá skoðun að óþarft sé að nota erlend heiti þegar auðvelt er að finna íslensk. Sjálfur hefur hann notað heitið Alnetið, en uppruna þess má skýra þannig að um sé að ræða styttingu úr alheimsnet. Í daglegu tali, og þegar ljóst er hvað við er átt, má stytta enn frekar og tala um Netið. Lesendur eru eindregið hvattir til þess að nota íslensk heiti og að koma tillögum sínum á framfæri ef þeir luma á nýjum hugmyndum.



E.S. Íðorðasafn lækna er nú komið inn í Orðabanka Íslenskrar málstöðvar. Slóðin er: http://www.ismal. hi.is/ob/index.html

Lbl 1998; 84: 154

Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica