Fræðigreinar

Endir bundinn á þungun í 18. til 20. viku meðgöngu vegna fósturgalla

Í þessari grein er stuttlega fjallað um það ferli sem hefst þegar kona hefur ákveðið að binda endi á meðgöngu við 18. til 20. viku þungunar vegna fósturgalla. Rakinn er gangur meðferðarinnar á kvennadeild og skömmu eftir útskrift þaðan.

Eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að binda endi á meðgönguna gefst konunni og stuðningsaðila hennar enn nokkur tími til að átta sig á hlutum og ákveða sjálf hvenær þeim finnst þau tilbúin að koma á meðgöngudeildina. Venjan er sú að konan og stuðningsaðili hennar eru á einbýli með sér snyrtingu. Konan velur sjálf hvern hún hefur hjá sér sem getur verið með henni í gegnum allt ferlið. Reynt er að sjá til þess að sama ljósmóðirin annist konuna og það sé sem mest samfella í umönnun. Hún tekur á móti konunni við komu á deildina, sýnir henni og stuðningsaðila deildina, fer yfir ferli meðferðarinnar og gengur úr skugga um að allt sé ljóst og að konan hafi skilið upplýsingar frá læknum og ljósmæðrum og tekið ákvörðun út frá eigin forsendum. Deildarlæknir tekur sjúkrasögu og gerðar eru nauðsynlegar blóðrannsóknir.

Meðferðin felst í því að gefnir eru stílar í leggöng (Cervagem®), en í þeim er prostaglandínefni sem mýkir leghálsinn og kemur af stað samdráttum. Stílarnir eru settir upp í leggöngin á bak við leghálsinn á þriggja tíma fresti samkvæmt mati á framgangi, þó aldrei oftar en sjö sinnum. Mikilvægt er að konan haldi kyrru fyrir í rúminu í um það bil 30 mínútur eftir að stíll hefur verið settur upp. Dugi ekki að nota prostaglandínstíla til að framkalla fæðingu, er notað oxýtócínlyf (Syntocinon®), sem einnig framkallar samdrætti í leginu. Það er gefið í æð með sídreypi. Samdrættir í legi sem líkjast slæmum tíðaverkjum geta komið einni til einni og hálfri klukkustund eftir að stíl hefur verið komið fyrir í leggöngunum. Mikilvægt er að viðhafa góða verkjameðferð og í fyrstu eru gefnar verkjatöflur en síðan sterkari lyf eftir þörfum eins og petidín og fenergan eða Ketogen®. Mjög misjafnt er hve langan tíma fæðingin tekur og stundum getur framganga fæðingarinnar dregist og staðið í 12-36 klukkustundir, en þetta er þó mjög einstaklingsbundið. Í fyrstu getur konan neytt almennrar fæðu, síðan er venjulega skipt yfir í létt fæði og þegar nær dregur fæðingunni er konan fastandi með næringu og vökva í æð.

Konan fæðir á stofunni sem hún hefur dvalið á. Þegar fæðingin er afstaðin er læknir látinn vita. Ef fóstrið lítur vel út er foreldrum ráðlagt að hafa fóstrið hjá sér og kveðja það. Það hefur reynst vel.

Oft á tíðum lætur fylgjan á sér standa sem er ekkert óeðlilegt. Ef hún skilar sér ekki sjálfkrafa eftir eina til eina og hálfa klukkustund er farið með konuna á skurðstofu og fylgjan sótt.

Miklu máli skiptir að fylgjast vel með brjóstunum eftir fæðinguna þar sem mjólkurmyndun getur hafist þrátt fyrir að fæðing eigi sér stað svo snemma í meðgöngunni. Sé konan gengin með 16 vikur eða meira eru gefnar töflur með prólaktínhemjandi verkun (Dostinex®) fljótlega eftir fæðinguna, en ekki seinna en 48 klukkustundum eftir fæðingu. Konunni og fjölskyldu hennar er boðið viðtal við félagsráðgjafa þar sem konur, sem fæða eftir 18-22 vikna meðgöngu, eiga rétt á tveggja mánaða fæðingarorlofi. Einnig er boðið viðtal við prest þar sem farið er yfir hvernig þau vilja ganga frá fóstrinu. Þar er um tvennt að velja:

o Í Fossvogskirkjugarði er vígður fósturreitur sem fóstur er sett í eftir að það hefur verið brennt.

o Hægt að setja fóstrið í litla kistu eða fósturstokka og jarða sér eða hjá aðstandanda.

Kallaðir eru til fleiri fagaðilar eftir ósk foreldra eins og hægt er hverju sinni. Konan útskrifast yfirleitt af deildinni 6-12 klukkustundum eftir fæðinguna, treysti hún sér til þess. Þetta er alltaf metið í samráði við hana og stuðningsaðila hennar. Ljósmóðirin, sem annaðist konuna og fjölskyldu hennar mest í ferlinu og tók á móti fóstrinu, hringir síðan í þau einni til tveimur vikum síðar og athugar hvernig þeim líði. Konurnar fá síðan tíma hjá fæðingarlækni um fjórum vikum eftir útskrift.



Niðurlag

Ákvörðunin að fara í fóstureyðingu er öllum fjölskyldum mjög erfið. Að standa frammi fyrir því, að barnið sem von er á greinist með fósturgalla á 16.-20. viku meðgöngu er skelfileg staða. Ég held að þrátt fyrir að við ljósmæður á meðgöngudeildinni höfum mikla reynslu af því að vera með þessum konum og taka þátt í þessu ferli með þeim, þá upplifum við alltaf hvað þetta er þeim erfitt og veldur þeim mikilli sorg. Enginn skilur það fullkomlega nema sá sem lendir í því sjálfur. Við heyrum fólk oft segja: "Það hvarflaði ekki að okkur að eiga eftir að lenda í þeirri aðstöðu að þurfa að ákveða að fara í fóstureyðingu. Ég/við höfum alltaf verið á móti fóstureyðingum og þurfa svo að taka þessa ákvörðun."

Við ljósmæður, sem störfum með þessum konum og fjölskyldum þeirra, leggjum mikla áherslu á að þau gangi í gegnum þetta sorgarferli saman. Áfallið er mikið fyrir alla í fjölskyldunni. Fyrir nokkrum árum var litið svo á að hlutverk barnsföðurins væri að vera alltaf sterkari aðilinn, vera sá sem styddi konuna í gegnum þetta fyrst á eftir og næstu mánuði. Þegar konan fór svo að jafna sig eftir einhverja mánuði fengu karlarnir hins vegar sjokkið og áttu mjög erfiða tíma. Þetta reyndi oft mjög á sambúðina/hjónabandið. Fræðsla fyrir fjölskylduna nú á tímum miðar við það að þau styðji hvort annað frá upphafi og fari saman í gegnum sorgarferlið. Það hefur reynst miklu betur.

Rannsókn sem gerð var í Noregi 1996 (1) sýnir að sorgarferlið er alveg jafn erfitt konunni hvort sem hún fer í fóstureyðingu vegna fósturgalla í 16.-18. viku meðgöngu eða missir fóstur á meðgöngu af öðrum ástæðum. Þær niðurstöður eru í samræmi við reynslu okkar hér á deildinni. Fyrir okkur sem önnumst þessar konur og fjölskyldur þeirra er mikilvægast að styðja þau sem best í gegnum þetta ferli eins og þau óska eftir og á þeirra forsendum.



Heimild

1. Salvesen KÅ, Öyen L, Schmidt N, Malt UF, Eik-Nes SH. Comparision of long-term psychological responses of women after pregnancy termination due to fetal anomalies and after perinatal loss. Ultrasound Obstet Gynecol 1997; 9: 80-5.
Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica