Umræða fréttir

Gömul læknisráð: Á næstu grösum

Í kveri Jóns Jónssonar garðyrkjumanns frá 1880 um nytsemi íslenskra jurta segir um "mosategund" þá er fjallagrös nefnast: "hún styrkir, dregur saman, mýkir vallgang (vallgangur=hægðir, - athugasemd höfundar), nærir, hreinsar blóðið og drepur orma. Fjallagrös eru því góð móti lungnaveiki og hósta, lífsýki, blóðsótt, harðlífi og innanmeinum, ormum, uppþembingi, matarólyst og kraptleysi."

Íslendingar notuðu fjallagrös gríðarmikið á fyrri öldum til að drýgja naumt kornmeti í brauð og grauta. Auk þess voru þau mikill læknisdómur, eins og sést í tilvitnuninni hér að ofan og þannig eru þau notuð enn í dag, hér á landi og víðar. Vorið 1972 var send út frá þjóðháttadeild Þjóðminjasafns spurningaskrá um fjallagrös þar sem meðal annars var spurt um grasaferðir, frágang og flutning á grösum, þurrkun, geymslu, hreinsun og notkun fjallagrasa til matar og lækninga. Áttatíu og sex svör bárust úr öllum landshlutum. Ég athugaði hvernig þeir sem svöruðu, allflestir fæddir nálægt aldamótunum 1900, höfðu vanist því að fjallagrös væru notuð til lækninga. Allir þekktu til þess og langalgengustu kvillarnir sem grösin áttu að lækna voru í öndunarfærum og meltingarvegi. Það var mjög algengt að sterkt seyði af grösum og kandíssykri var til á bæjum, eins konar hóstasaft - eða brjóstsaft, eins og margir nefndu þennan drykk - til að gefa við kvefi, hæsi eða þyngslum fyrir brjósti. Oft drukku þeir sem voru lasnir þetta sjóðandi heitt að kveldi og dúðuðu sig svo niður í rúm á eftir - helst undir þrjár sængur, eins og einn heimildarmanna tók til orða. Dæmi voru um að engifer eða vallhumall væri soðinn með grösunum í þetta lyf. Og stundum var sletta af víni látin út í. Sjálf á ég ekki alltof góðar minningar um að hafa verið sem barn látin drekka í veikindum rótsterkt heitt grasaseyði kryddað með brennsluspíritus. Satt að segja afleitt á bragðið. Um lækningarmáttinn skal ég ekki dæma en enginn véfengdi hann þá.

Heimildarmaður úr Suður-Múlasýslu lýsir þessum lækningum á eftirfarandi hátt:

"...ef fólk hafði vont kvef eða hósta, þótti gott að drekka sterkt grasate, byrgja sig síðan vel niður í rúm, helst svo menn gætu svitnað. Halldór Benediktsson, stórbóndi á Skriðuklaustri í Fljótsdal hafði það fyrir sið er hann var að alast upp (fæddur 1852) að sjóða svokallað grasalím, þ.e. mikið af grösum var soðið í vatni þangað til að það hljóp saman eins og ostur er það kólnaði. Var svo kúfuð teskeið af þessu lími hrærð út í bolla af sjóðheitu vatni og þeir sem voru illa haldnir af kvefi eða hósta látnir drekka það eins heitt og menn þoldu, byrgja sig síðan vel undir yfirsæng og sofna. Þótti þetta gefast vel."

Annar Sunnmýlingur hafði það eftir móður sinni að hún hefði læknað föður hans af lungnabólgu með því að hella í hann sterku fjallagrasaseyði dag og nótt.

Og þetta er úr Mýrdal: "Grösin voru soðin í vatni og ekki styttri tíma en eina til eina og hálfa klukkustund, voru þau þá að mestu komin í mauk og seyðið orðið rammbeiskt á bragðið. Voru nú grösin síuð og seyðið látið aftur í pottinn, í það látinn sykur, best þótti að nota til þess brúnan "kandís". Var nú suðan látin koma aftur upp á pottinum, en potturinn síðan tekinn af eldi og seyðið sem nú var búið að ávinna sér nafnið "heiðargrasaseyði" látið kólna þangað til það var orðið hæfilega heitt að hella því á flöskur. Oft þurfti að hræra í seyðinu meðan það var að kólna, því annars vildi það verða að hlaupi. Ekki þótti rétt að láta tappa í flöskurnar fyrr en seyðið var orðið vel kalt, því annars þótti geta myndast í því miður heppileg gerjun."

Hornstrendingur segir um grösin: "Þau voru notuð þannig við brjóstveiki og lungnabólgu. Þau voru soðin í 2 klukkustundir, grösin síuð frá grasavatninu, það látið í flöskur og tekið inn 3svar á dag. Við magaveiki voru þau líka notuð. Það meðal var búið þannig til að 4 lítrar af nýmjólk voru látnir í pott ásamt dálítið stórri visk af fjallagrösum. Þetta var soðið í 4 klukkustundir, en þá var það orðið aðeins 1 og hálfur pottur (eða 11/2 lítri). Þetta var orðið svo gott meðal að það jafnvel læknaði víst 2 sjúklinga sem voru með spænsku veikina 1918, norður í Hælavík. Þeir höfðu áður langan tíma fengið meðul frá þrem læknum, en ekkert af þeim dugði."

Hornstrendingurinn, sem var 16 ára þegar spænska veikin gekk, segir þarna frá grasameðali sem notað var við magaveiki, mjólk sem var seydd lengi með fjallagrösum. Þannig var afar algengt að nota grösin við meltingarfærakvillum. Þingeyingur sem lýsir svipaðri tilreiðslu kallar þetta "grasastellu": "Þegar þetta kólnaði varð það eins og frekar þykkt hlaup og þótti mjög gott við niðurgangi. Vissi ég að minnsta kosti tvö dæmi til þess að börnum með slæman og þrálátan niðurgang batnaði af þessu. Líka var lömbum gefið þetta við sótt, rennt niður í þau með skeið."

"Ég sem þessar línur rita hef þá persónulegu reynslu af fjallagrösum að þau hafa læknað mig af langvarandi magaveiki frá því ég var barn á fyrsta ári og fram undir tvítugsaldur," segir Dalamaður. "Grösin voru soðin í mjólk þar til að hún var orðin rauðseydd, þá var ég látinn borða hana."

Ýmis orðtæki tengjast grösum og grasaferðum svo sem "að vera á næstu grösum" og svo "ótíndur er öllum leiður" sem vísar til þess hversu matur úr illa hreinsuðum grösum gat verið andstyggilegur. Það var nefnilega talað um að "tína" grös, þegar þau voru hreinsuð og orðið ótíndur, til dæmis í samhenginu ótíndur glæpamaður kann að draga merkingu sína þaðan.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica