Ritstjórnargreinar

Tafla eða tjald

Þegar Þetta er skrifað sstanda yfir hinum megin á hnettinum "sumar"-Ólympíuleikarnir, þar sem um 11.000 keppendur frá um 200 löndum þreyta keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum. Fyrir keppendur er þetta ekki bara hápunktur íþróttaársins heldur lokapunktur strangra æfinga sem staðið hafa mánuðum eða jafnvel árum saman og hjá flestum þýtt blóð, svita og tár.

Einn skugga leggur þó frá þessum vöðvastæltu íþróttamönnum, en það er óeðlileg og ólögleg notkun lyfja er tengist íþróttaiðkun þeirra, en skuggi þessi lýsist venjulega upp á stórmótum sem Ólympíuleikarnir eru. Sannarlega höfðu skipuleggjendur í Ástralíu áhyggjur af þessu og kynntu, nokkrum vikum fyrir leikana, að hart yrði gengið fram í að greina ólöglega notkun lyfja og efna og þau greind í blóði í stað þvags eins og áður tíðkaðist. Þessi nýjung hafði strax þau áhrif að keppendur er vissu upp á sig ólöglega notkun ákváðu að vera heima. Sérstaklega var tekið til þess að blóðgreiningin gagnaðist vel við að greina Erythropoietin, en á síðari árum hafa íþróttamenn orðið uppvísir að ólöglegri notkun lyfja er innihalda efnið.

Erythropoietin er hormón, forstig þess myndast í nýrum og ummyndast í virkt efni í blóði þegar aukins ildisflutnings blóðs til vefja er þörf, eins og við lækkun hlutþrýstings ildis í blóði, eða ef styrkur blóðrauða eða fjöldi rauðra blóðkorna minnkar. Erythropoietin hvetur þroska og nýmyndun rauðra blóðkorna í blóðmyndandi líffærum, merg, og er talið að hormónið hafi áhrif bæði á blóðrauðann og rauðkornin. Þannig má hugsa sér að ef aukin þörf er á ildi í vefjum þá komi þrennt til: aukið slagmagn, hraðari hjartsláttur eða aukning á ildisflutningseiningum blóðs, blóðrauða og rauðkornum. Með æfingu má hafa áhrif á fyrri tvo þættina en á magn blóðrauða má hafa áhrif beint með notkun Erythropoietin eða óbeint með ýmsum aðferðum. Lengi hefur verið vitað að æfingar í háfjallaumhverfi auka úthald þegar komið er í lægri hæðir og er talið að þar sé á ferðinni áhrif lágs ildisþrýstings til fjalla á Erythropoietin - mergöxulinn. Það er ekki allra að stunda æfingar í þannig umhverfi og kemur þar helst til kostnaður og langt úthald fjarri fjölskyldu og heimahögum.

Í Morgunblaðinu þriðjudaginn 12. september var viðtal við einn íslensku Ólympíufaranna og á mynd er fylgdi umfjölluninni sat hann brosandi í dyragætt nýjasta tækniundursins, svokölluðu háfjallatjaldi [sjá nánari upplýsingar: www.hypoxictent.com]. Í tjaldinu mátti skapa ildis- (hýpoxískar) aðstæður sem í háfjöllum væri og nægði að sofa í tjaldinu til að kalla fram svörun í líkamanum, svörun er felur í sér aukningu á Erythropoietini í blóði og síðan aukningu á ildisflytjandi einingum blóðs. Þannig eru það ekki einungis nýjustu lyf og efni sem íþróttamenn freistast til að nota heldur hafa þeir tekið í þjónustu sína hátækniiðnaðinn með öllu því nýjasta sem þar er að finna. Þessi iðnaður lyfja og hátækni hefur sannarlega dansað með, en á þeim bæjum er það meðal annars þekking lækna sem skapar og kemur því miður oft á framfæri við íþróttamennina ólöglegri notkun afurðanna. Þessi iðnaður er kominn af stað og veltir milljörðum, og það sem verra er, hann er skrefinu á undan þeim er leita uppi og kanna lögmæti afurðanna og gullin gagnast venjulega þeim einum er geta borgað. Það er því ef til vill ekki svo mikill munur á töflu eða tjaldi þegar lokaniðurstaðan verður sú sama, munurinn er helstur sá hverjir hafa ráð á borga hvað. Læknar, verum ekki sölumenn á þessum markaði, verum í hinu sanna sigurliði!



Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica