3. tbl. 107. árg. 2021

Umræða og fréttir

„Við hefðum getað greint öll sýnin“ segir Karl G. Kristinsson

Gagnrýnt að heilsugæslan semji við danska sjúkrahúsið Hvidovre um að greina krabbameinssýni úr íslenskum konum.

„Við hefðum getað greint öll sýnin sem biðu, og auk þess tekið að okkur allar HPV-skimanirnar á Íslandi með nýja afkastamikla tækinu okkar. Ekki nein spurning um skort á öryggi og gæðum, enda fékk deildin faggildingu frá SWEDAC á síðasta ári, “ segir Karl, prófessor og yfirlæknir.

Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild. Mynd/gag

„Á óformlegum fundi með þeim í haust kom fram að við gætum auðveldlega gert þessar HPV-rannsóknir. Ekki var haft samband við mig aftur.“ Verðið hafi verið sambærilegt og í Svíþjóð. „Og við sáum fram á að geta boðið ódýrari rannsókn með nýja tækinu.“ Hann bendir á að deildin hafi sinnt HPV--greiningum fyrir Krabbameinsfélagið síðustu tvö árin, eða þar til Heilsugæslan tók við.

Kurr er innan heilbrigðisstétta eftir að ákveðið var að greiningarnar yrðu gerðar í Danmörku. Stjórn Læknafélags Íslands hefur ályktað að við þetta séu mikilvæg sérhæfð störf lögð niður og flutt úr landi.

„Þá telur LÍ að það veki upp spurningar um atvinnu- og heilbrigðispólitíkina sem nú er rekin í landinu að hægt virðist vera að gera samninga um heilbrigðisþjónustu erlendis án útboðs á sama tíma og stjórnvöld telji sér óheimilt að ganga til samninga um sérhæfða innlenda heilbrigðisþjónustu án útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu.“

Heilsugæslan samdi við danska sjúkrahúsið Hvidovre um að greina 2000 íslensk sýni sem stóðu útaf eftir að heilsugæslan tók við af Krabbameinsfélagi Íslands. Stefnt væri að því að semja við sjúkrahúsið um að greina öll íslensku sýnin.

Læknablaðið sendi fyrirspurn á Ríkiskaup vegna málsins. Í svari Ríkiskaupa segir að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefði átt að setja þjónustuna í útboð næmi upphæðin meira en rétt tæpum 98 milljónum króna. Kærunefnd útboðsmála geti lýst samning óvirkan eða beitt öðrum viðurlögum sé upphæðin umfram þá fjárhæð. Heilsugæslan hafi ekki leitað til Ríkiskaupa vegna þessarar þjónustu eða hugsanlegs útboðs á henni.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica