1. tbl. 107. árg. 2021

Umræða og fréttir

Dagur í lífi HNE-læknis á Akureyri á aðventunni. Hannes Petersen

07:20 Opna augun, loka þeim, opna aftur, loka, opna … enginn munur. Svakalegt sem það er þetta skammdegi. Næ fókus á klukkuna, góðir átta svefntímar að baki, glaðvakna því heilmargt er framundan. Kaffi og ristað brauð, kertaljós við morgunverðarborðið og Sigrún mín gegnt mér í skímunni. Jólalög á Retró í morgunútvarpinu, gefum pestar-þrástefinu frí.

08:20 Kominn á SAK, ræsi tölvuna. Saga spyr hvort ég eigi erindi… tja, jú ætli það ekki; kanna afdrif sjúklinga sem ég tengdist á slysadeildinni daginn áður og sé að allt hefur leyst. Maður er semsagt ekki ómissandi, skrítið. Næst eru það tölvupóstar; tvö póstföng sem þarf að sinna. Alltaf eitthvað um „þumallinn upp“ svarað til allra, en inn á milli póstar sem þarf að svara strax og svo aðrir sem mega bíða. Tölvupóstar eru svo mikil ferskvara.

09:40 Sinni tveimur HNE-tilvísunum, hnútar á hálsi, þeim er mikilvægt að sinna eins fljótt og hægt er og jafn mikilvægt að búa við heilbrigðiskerfi sem leyfir það.

10:30 Næ að setjast við skjáinn og fara enn einu sinni yfir fyrirlestur eftirmiðdagsins. Núna er það aðallega að slípa frönskuna, en síðastliðið sumar hafði ég, í gleðikasti, lofað að halda fyrirlesturinn á frönsku en PP-slæðurnar fengju að vera á ensku. Hádegismatur í dós, skyr og malt og appelsín, reynist ekki vera sú hátíðlega hjálparblanda sem ég taldi tungunni nauðsynlega svo franskan fljóti. Rauðvín og ostar hefðu eflaust staðið betur með mér.

Ráðstefna í „útlöndum“ en ekkert farið. Helgi Sigurðsson æðaskurðlæknir tók myndina.

13:00 Set rör í hljóðhimnur tveggja miðaldra kvenna, önnur hægri, hin vinstri og velti fyrir mér hversu tímarnir hafi breyst, börnin mikið til að sleppa. En tvisvar verður gamall maður víst barn.

14:00 ESCEBD-ráðstefnan að byrja á Zoom. Þetta er ráðstefna sem haldin er árlega í Nancy í Frakklandi þar sem jafnvægisvísindamenn frá frönskumælandi löndum kynna rannsóknir sínar og treysta rannsóknarsamvinnuböndin. Ráðstefnan mun standa yfir til klukkan átta og þannig eru þátttakendur frá Líbanon í austri og Kanada í vestri innan þokkalegs tímaramma. Kunningjarnir fara að birtast, við vinkum og spjöllum, Phillipe, Pierre, Raphael, Solara, Hermann og Art, en það er eitthvað sem passar ekki, eitthvað sem vantar.

16:50 Röðin komin að mér og það er bara gaman að fá að miðla rannsóknum sínum; sínum, neiii rannsóknir eru samstarf þar sem margir koma saman í kringum hugmyndir, aðferðir og úrlausnir. Í dag kynni ég fyrstu niðurstöður okkar úr sjóveikiherminum. Þar stendur þátttakandinn á hreyfanlegum palli og horfir á öldur, í sýndarveruleikagleraugum, eins og hann standi á bát. Allt fer síðan af stað, hreyfing pallsins í takt við öldurnar sem hann sér. Fjöldi lífmerkja er síðan greindur, sem eru svör við upplifuninni í sjóveikiherminum, en þessi samsetning er ný og gefur góð fyrirheit.

20:00 Ráðstefnan búin, tvö til þrjú klikk með músinni, skjárinn svartur og þú einn. Ekkert spjall og bjór, ekkert tækifæri til að leita ráða, kanna samstarf, spyrja um fjölskyldur, lífið og tilveruna. Best að drífa sig heim.

20:10 Tókuð þið eftir tímanum, allt innan seilingar á Akureyri. Kvöldmatur, heitt brauð í ofni og spánskt hvítvín. Ofninn var heitur eftir smákökubakstur Sigrúnar, fjórar sortir í eftirrétt, kaffi og Crown sem streymir úr Netflix.

22:00 Fréttir; hvað er maður alltaf að hlusta á þessa endurtekningu, og þó, loksins virðist vera að birta yfir þeim.

22:30 Kominn upp í, þarf mína níu tíma. Þessi dagur þaut hjá, kviss bang, enn er eins og vikurnar séu bara mánudagar og föstudagar.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica