11. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

Dagskrá á Læknadögum 2020 - Málþing barna- og unglingageðlækna

Á komandi Læknadögum, þann 20. janúar, er fyrirhuguð dagskrá í tilefni af 50 ára afmæli barna- og unglingageðlækninga á Íslandi. Sagt verður frá Geðverndardeild barna, sem starfrækt var undir forystu prófessors Sigurjóns Björnssonar, sálfræðings, í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg, en sú deild hóf starfsemi í október 1960 og var hlutverk hennar að annast rannsóknir og lækningu á börnum sem þjáðust af taugaveiklunareinkennum eða öðrum sálrænum erfiðleikum, og mun Sigurjón kynna þá sögu sjálfur. Eru því 60 ár frá stofnum þeirrar deildar.

Páll Ásgeirsson, fyrsti yfirlæknir geðdeildar Barnaspítala Hringsins, eins og deildin hét í upphafi, mun segja frá aðdraganda og stofnun hennar árið 1970, fyrir 50 árum, og þróunarstarfinu síðar, og Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, núverandi yfirlæknir BUGL (eins og Barna og unglingageðdeild Landspítalans er nú skammstöfuð) kynnir deildina og stöðu sérgreinarinnar í dag, þegar liðin eru 50 ár frá stofnun deildarinnar.

Gunnsteinn Gunnarsson, barna- og unglingageðlæknir, mun rekja sögu Barnageðlæknafélags Íslands, sem stofnað var 3. maí 1980, og eru því 40 ár liðin frá stofnun þess á árinu. Eins og segir í lögum félagsins var markmiðið með stofnun þess að eiga sameiginlegan vettvang til umræðu fyrir lækna við störf að geðlækningum barna og unglinga, og annarra lækna sem hefðu áhuga á geðvernd og geðmeðferð barna og unglinga. Annað markmið félagsins var að vinna að framþróun og vexti barnageðlækninga á Íslandi með fræðslufundum fyrir lækna og aðrar fagstéttir um geðmeðferð barna og unglinga. Enn var markmið félagsins að vera fulltrúi fagsins gagnvart yfirvöldum geðheilbrigðismála með ráðgjöf og/eða athugasemdum. Að lokum var markmið félagsins að standa vörð um hagsmuni félagsmanna, m.a. varðandi aðbúnað, kaup og kjör.

Stofnfélagar voru 7 og var Helga Hannesdóttir kosin fyrsti formaður félagsins, en Helga varð síðar fyrst Íslendinga doktor í sérgreininni. Félagið var ætíð fámennt, en félagsmenn skiptu með sér verkum við að stuðla að fræðslu fyrir lækna og aðrar fagstéttir sem að geðvernd og geðmeðferð störfuðu með námsstefnum um barnageðlækningar og geðheilbrigðismál barna og unglinga.

Barnageðlæknarnir Dagbjörg Sigurðardóttir og Gísli Baldursson munu kynna starf á legudeildum BUGL og þróun unglingageðlækninga á legudeildum.

Ólafur Ó. Guðmundsson, barna og unglingageðlæknir og fyrrverandi yfirlæknir á BUGL, og Bertrand Lauth, lektor, formaður Barnageðlæknafélagsins, munu skýra frá samvinnu við alþjóðleg félög, IACAPAP og evrópsku ESCAP-samtökin. Einnig um norrænt rannsóknarsamstarf NORCAP, og íslenskar rannsóknir í sérgreininni. Jafnframt verður kynnt faglegt starf í barna- og unglingageðlækningum á Norðurlandi og starfsemi sérfræðilækninga í barna- og unglingageðlækningum á Reykjavíkursvæðinu.

Anna María Jónsdóttir, barna- og unglingageðlæknir, kynnir þróun ungbarnageðlækninga á Íslandi og stöðu þeirra í dag.

Bertrand Lauth, lektor, lýsir uppbyggingu barna- og unglingageðlækninga á Íslandi, fjallar um áskoranir, rannsóknir, og akademíska og klíníska kennslu og tengsl við HÍ, og kynnir uppbyggingu á sérnámi í greininni hér á landi.

Hvers vegna barna- og unglingageðlækningar? Björn Hjálmarsson, barna- og unglingageðlæknir, greinir frá því hvers vegna hann lagði stund á barna- og unglingageðlækningar, en fyrir var hann sérfræðingur í barnalækningum.

Vert er að geta þess að Helga Hannesdóttir á hugmyndina að þessari afmælisdagskrá og hefur skipulagt hana og undirbúningsnefnd Læknadaga tók hugmyndinni opnum örmum.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica