10. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

Besti vinur aðal, um fund norrænu læknablaðanna

Frá árinu 1972 hafa ritstjórnir norrænu læknablaðanna komið saman, fyrst annað hvert ár en nú árlega, og veitir ekki af því hið fornkveðna heldur gildi með sínu einfalda sniði: Tempus fugit, en samt er ekki því að neita að öll hjól snúast æ hraðar. Útgáfubransinn tók hænuskref árlega árið 1972 en 2019 er ástundað þrístökk daglega, þrátt fyrir núvitund.

                                         
                                          Fundargestir í Stokkhólmi í septemberbyrjun sigldu yfir höfnina til að
                                          snæða í gamalli vefnaðarverksmiðju. Hér eru fulltrúar norrænu
                                          blaðanna: frá vinstri Ugeskrift for læger, Läkartidningen og Lääkärilehti,
                                          en ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins tók myndina.

Norrænu læknablöðin eru systurblöð Læknablaðsins, ámóta gömul, hafa fylgst að í gegnum tíðina, og sameina ritrýnt efni og félagslegt. Danska blaðið tók það íslenska í skammtog á árunum 1986-1995 þegar læknafélögin íslensku höfðu ekki bolmagn til að standa straum af kostnaði við prentun og dreifingu. Örn Bjarnason ritstjóri kom því þá til leiðar að danska læknablaðið sá um það íslenska, tók það í fóstur, safnaði auglýsingum, setti blaðið, prentaði og dreifði hér heima á eigin kostnað. Á sama tíma var Fréttabréf lækna útgefið hér heima.

Beinagrind þessara blaða er sambærileg en að sjálfsögðu eru ritstjórnir hinna norrænu blaðanna mun stærri en við Læknablaðið þar sem stöðugildi eru 2,5.

Sama er uppi á teningnum hjá öllum blöðum:  þau glíma við það sem nú er náttúrulögmál: stórfelld fækkun auglýsinga. Lyfjaframleiðendur snúa sér nú beint til neytandans og tala við þá í bíó, sjónvarpinu, blöðunum og á facebook og öðrum alltumlykjandi samfélagsmiðlum. Og það er best að horfast í augu við að þessari þróun verður ekki snúið við.

Eftir stendur það sem er kjarni blaðanna: ritrýnt efni, – það er fótfestan og ekkert sem mun leysa það af hólmi sýnist manni. Íslenskt efni byggt á íslenskum rannsóknum og spurningin er að vinna og spinna úr fræðiefni aðra þætti sem gætu tengst víðar. Jafnframt eykst hröðum skrefum áhugi almennings á öllu efni þar sem heilsa og sjúkdómar koma við sögu.

Læknablaðið hefur líka greikkað sporið með vaxandi umferðarþunga um heimasíðuna, – nú er hægt að fletta blaðinu þar. Við mikið af efni í blaðinu, bæði fræðilegt og félagslegt, eru nú hlaðvarpsþættir sem auðvelt er að nálgast og hlusta á. Öllu er þessu dreift á facebook-síðu blaðsins, og má segja að útgáfan hafi teygt sig í nýjar deildir jarðar.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica