07/08. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

Embætti landlæknis 30. pistill. Ávísanir flogaveikilyfja á Íslandi

Árið 2015 fóru Íslendingar fram úr Finnum í sölu flogaveikilyfja og eru þar með komnir í efsta sætið á Norðurlöndum varðandi sölu þessara lyfja, sjá mynd 1. Sala flogaveikilyfja hefur aukist jafnt og þétt á öllum Norðurlöndunum frá árinu 2004 samkvæmt tölum frá Nomesco.

                                   

                                    

Ávísanir gabapentíns og pregabalíns hafa aukist mikið á Íslandi frá árinu 2007, sjá mynd 2. Ávísanir pragabalíns náðu hámarki 2010 en eftir það dró úr þeim við breytingu á greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.

Flogaveikilyf eru iðulega tekin reglulega árum saman. Árið 2018 fengu rúmlega 15 þúsund Íslendingar ávísað flogaveikilyfjum, eða um 4% landsmanna. Auk ábendinga við flogaveiki er lyfjunum ávísað við taugaverkjum, kvíða, geðhvarfasýki o.fl. Gabapentín er mun meira notað en önnur flogaveikilyf. Árið 2018 var gabapentíni ávísað handa 8.500 einstaklingum og hefur fjöldinn tvöfaldast frá árinu 2011. Árið 2018 fengu 13 einstaklingar lyfinu ávísað frá 8 eða fleiri læknum. Til samanburðar fengu rúmlega 14 þúsund einstaklingar ávísað háþrýstingslyfinu amlódipíni árið 2018 en enginn frá 8 eða fleiri læknum. Árið 2018 greindist gabapentín í einhverju magni í sýnum 13 látinna einstaklinga af þeim 55 sem voru til skoðunar hjá lyfjateymi embættis landlæknis. Tvö dauðsföll voru á Íslandi af völdum flogaveikilyfja árið 2018, eitt vegna gabapentíns og eitt vegna pregabalíns og zopiclons. Gabapentín hefur verið álitið mjög öruggt lyf (sjá t.d. Sérlyfjaskrá).

Töluvert er ritað um misnotkun pregabalíns, en gabapentín er einnig misnotað þótt það gefi ekki eins mikla vímu og pregabalín ( who.int/medicines/access/controlled-substances/Pregabalin_FINAL.pdf?ua=1 ). Þessi lyf eru fyrst og fremst misnotuð af einstaklingum sem eru að misnota önnur lyf og ættu læknar að vera meðvitaðir um þessa áhættu.

Heimildir

1. nowbase.org
 
2. Lyfjagagnagrunnur Embættis landlæknis.  
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica