02. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

Allir Íslendingar eru nú líffæragjafar

                                       
                                        Runólfur Pálsson, Steinunn Rósa Einarsdóttir, Kristinn Sigvaldason,
                                        Jóhannes Kristjánsson og Alma Möller að loknu málþingi um líffæragjafir
                                        laugardaginn 26. janúar. Mynd/Védís.

Embætti landlæknis, Maríanna Garðarsdóttir röntgenlæknir og Runólfur Pálsson nýrnalæknir voru í samstarfi við Siggu Heimis, Gagarín og fleiri um sýningu í Ásmundarsal sem er haldin í tilefni þeirra breytinga á lögum um líffæragjöf sem gengu í gildi um síðustu áramót. Nú má nema brott líffæri eða lífræn efni úr líkama látins manns til læknismeðferðar hafi sá hinn sami ekki lýst sig andvígan því og kallast með laganna bókstaf ætlað samþykki. Nánasti aðstandandi getur þó lagst gegn þessum gjörningi. Um 100 manns hafa gefið líffæri sín hérlendis síðan líffæragjafir hófust, árið 1992 og um 30 Íslendingar þurfa ný líffæri árlega.

Sýningin er óvenjuleg, mjög upplýsandi og listræn í senn. Með hnitmiðuðum skýringatextum um hvert líffæri og röntgenmyndum og samspili þeirra við ægifögur glerlistaverk af nokkrum líffærum mannsins sem þó eru ekki öll tæk til gjafa. Mannslíkaminn er náttúrlega sköpunarverk sem slær allt út. Þessa dagana er dáldið rætt um nekt og listaverk. Í því samhengi má segja að varla sé til nokkuð naktara eða betur hannað í þessum heimi en innyfli.

Á nýafstöðnu málþingi landlæknis á Hótel Natura fóru Alma Möller, Kristinn Sigvaldason, Salvör Nordal og Runólfur Pálsson í saumana á nýju löggjöfinni, sögu líffæragjafa og röktu samstarf okkar við Scandiatransplant. Steinunn Rósa Einarsdóttir móðir líffæragjafa sagði sögu sinnar fjölskyldu. Jóhannes Kristjánsson skemmtikraftur og hjartaþegi lýsti því þegar hann hélt hann væri kominn til himna með Ölmu Möller sem brosti við honum en svo gat það ekki verið því honum á aðra hönd var Felix Valsson svæfingalæknir.                                                                         VS

                                        

                                         

                                           

                                            
                                            Auga, lungu, hjarta og heili, - glerlistaverk á sýningunni LÍFfærin. Þau
                                            voru munnblásin á Corning-glersafninu í New York-fylki að forsögn
                                           Siggu Heimis. Kristján Kristjánsson hannaði lýsinguna og er raunar einnig
                                           nýrnaþegi. Myndir/Védís.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica