02. tbl. 105. árg. 2019
Umræða og fréttir
LÆKNADAGAR 2019
Þyngsta áhersla Læknadaganna var heilsa og kulnun sem hlustendur ríkisútvarpsins völdu orð ársins 2018, spurning hvaða orð hefði orðið fyrir valinu frostaveturinn mikla fyrir 100 árum?
Myndir/Védís.
Haraldur Erlendsson, Allan D. Peterkin geðlæknir í Toronto, Stein Nilsen
heimilislæknir í Noregi, Gerður Aagot Árnadóttir, Matthías Örn
Halldórsson og Ólafur Þór Ævarsson - ræddu heilsu lækna. Fyrsta
kulnunarboðorð: lesa góðar bækur og fá leiðsögn um listasöfn, - hætta
að hugsa bara um sjálfan sig. Annað boðorð: vera úti í náttúrunni, fara
á fjöll. Þriðja boðorð: tala saman.
Ármann Jakobsson prófessor í íslenskum bókmenntum, Ólöf
Garðarsdóttir sagnfræðingur, Torfi Tulinius miðaldafræðingur,
Ingibjörg Eyþórsdóttir íslenskufræðingur og Óttar Guðmundsson geðlæknir
ræddu streituröskun Sturlunga og samtalsmeðferð við hirð Noregskonunga.
Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar stóð fyrir þessu málþingi og
sannaði að það er líka næst nútímanum. Í pallborðsumræðum og
spurningum úr sal komu bæði klaustur og stjórnmál við sögu og niðurstaðan
var sú að mannlegt eðli hefði ekki breyst vitund frá Sturlungaöld og fram á
þennan dag.
Hrafnkell Stefánsson sérnámslæknir
vann eina lotu í Glímunni, þar sem
áhorfendur í sal gátu svarað 10
spurningum í smáforriti, og allir tóku
þátt.
Við setningu Læknadaga, þeir eru einsog Litlu jólin fyrir lækna.
Ein af eftirminnilegum spurningum úr Glímunni, - þar voru nýir stjórnendur við völd í þetta sinn: Sigríður
Sveinsdóttir, Gunnar Tómasson og Halla Fróðadóttir.