04. tbl. 104. árg. 2018

Umræða og fréttir

Ný tæki á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins fyrir 132 milljónir króna

 

                                     
                                     Á myndinni eru frá vinstri: Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri
                                     Krabbameinsfélagsins, Magnús Baldvinsson, röntgenlæknir og yfirlæknir
                                     á Leitarstöðinni og Guðrún Birgisdóttir, deildarstjóri á röntgendeild
                                     Leitarstöðvar við eitt af nýju tækjunum.

Krabbameinsfélag Íslands hefur nú endurnýjað að stórum hluta tækjabúnað Leitarstöðvarinnar til skipulegrar leitar að brjóstakrabbameini. Safnað var fyrir tækjunum í Bleiku slaufunni 2016. Alls söfnuðust 132 milljónir í átakinu sem runnu óskiptar til tækjakaupanna. Endurnýjunin gerist í tveimur áföngum og hafa hópleitartæki nú verið uppfærð. „Ávinningurinn af endurnýjuðum tækjabúnaði er meðal annars minni geislun og óþægindi við myndatökur, meiri hraði í myndatöku, nákvæmari skjáir sem bæta greiningarmöguleika, hagræðing vegna lægri bilanatíðni og sparnaður við viðhald tækjanna,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

„Þetta er til mikilla bóta og eykur gæðin í starfi okkar í leit að brjóstakrabbameini,” segir Magnús Baldvinsson, röngtenlæknir og yfirlæknir á Leitarstöðinni. „Þessi endurnýjun auðveldar mjög alla vinnu okkar og fullnægir nú þeim kröfum sem gerðar eru fyrir slíka starfsemi, bæði varðandi gesti Leitarstöðvarinnar og starfsfólk hennar,“ bætir hann við.

„Hér er um mikið framfaraskref að ræða og afar ánægjulegt að hægt sé að styðja leitarstarfið með þessum hætti,” segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins og segir jafnframt að Bleika slaufan njóti mikillar velvildar meðal landsmanna enda sjáist það á afgerandi hátt hjá Krabbameinsfélaginu hve miklu er hægt að áorka með dyggum stuðningi almennings.

Í þessum fyrri áfanga voru hópleitartæki uppfærð, en einnig tölvu- og hugbúnaður sem notaður er við hópleitina ásamt hugbúnaði til geymslu og skoðunar á myndum. Einnig hafa nýir skjáir sem notaðir eru til greiningar á röntgenmyndum verið endurnýjaðir, en þeir búa yfir stóraukinni upplausn og fleiri greiningarmöguleikum sem auðvelda vinnu við greiningar á brjóstakrabbameini. Í seinni áfanganum verða tæki til sérskoðana uppfærð og keypt ný tæki sem innihalda möguleika til þrívíddargreiningar, myndatöku með skuggaefni og nýrri tækni við sýnatöku úr meinum. Einnig verða keypt ómtæki til notkunar við sérskoðanir og hugbúnaður fyrir boðun uppfærður.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica