01. tbl. 101. árg. 2015

Umræða og fréttir

„Óbætanlegt að glata mannauðnum" - Einar Páll Indriðason svæfinga- og gjörgæslulæknir hefur sagt upp

„Þetta er uppsafnaður vandi til margra ára sem hefur skapað þetta ástand, þó launakjörin og nýliðun í stéttinni séu í brennidepli núna,“ segir Einar Páll Indriðason svæfinga- og gjörgæslulæknir á Landspítalanum sem hefur sagt upp störfum frá og með 1. janúar. Hann er ekki sá eini í hópi lækna sem tekið hefur þessa erfiðu ákvörðun þar sem tveir aðrir læknar í sömu sérgrein hafa einnig sagt upp þegar þetta er skrifað (16. desember) og líklega munu fleiri hafa bæst í hópinn um áramótin.


„Hér er valinn maður í hverju rúmi og ómetanleg verðmæti fólgin í mannauðnum. Það væri
óbætanlegt tjón að glata honum,“ segir Einar Páll Indriðason svæfinga- og gjörgæslulæknir.

Einar Páll hefur starfað á Landspítalanum frá árinu 2001, eftir 8 ára sérnám við háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð. Hann hefur verið í 100% stöðu við Landspítalann frá árinu 2010 en áður var hann í 80% stöðu við spítalann og einn dag í viku á einkaskurðstofum í Domus. Það verður því skarð fyrir skildi er hann hverfur af vettvangi, hann er einn af mörgum færum sérfræðingum í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala, en þeim fer sífellt fækkandi læknunum sem helga spítalanum alla starfskrafta sína. „Slæm launakjör brenna einnig heitast á okkur sem þiggjum eingöngu laun á spítalanum,“ segir hann.

Seinþreyttir til vandræða

„Uppsafnaður vandi segi ég, eftir óábyrgar sparnaðarkröfur á spítalann, slegið hefur verið í og úr með byggingu nýs spítala allt frá því ég kom hér til starfa, álagið á starfsfólkið hefur aukist jafnt og þétt og tæki og húsnæði gengið úr sér án þess að hugað sé að endurnýjun. Þegar síðan bætist við getuleysi stjórnvalda til að bæta launakjör okkar og ekkert virðist eiga að koma til móts við lækna, finnst mér bara komið nóg. Nýliðun í læknastéttinni verður að tryggja og það gerist eingöngu ef launakjör og starfsaðstaða batnar. Þetta er líka mitt svar við orðum heilbrigðisráðherra þegar hann segir að hann trúi því ekki að læknar muni segja upp. Við læknar erum vissulega seinþreyttir til vandræða og höfum sætt okkur við að dragast aftur úr í launakjörum alltof lengi. Og hafi eitthvað skort á samstöðuna meðal lækna áður þá er hún algjör núna og stjórnvöld verða bara að átta sig á því ef ekki á verulega illa að fara.“

Hann kveðst ekki hafa hugsað það til enda hvað hann taki sér fyrir hendur eftir að starfstíma hans á Landspítalanum lýkur. „Það er allt opið. Ég get farið að vinna á stofu út í bæ og ég get ráðið mig í hálfa stöðu á spítala í Svíþjóð og farið á milli þó fjölskyldan búi hér. Samgöngur eru það góðar að slíkt er ekki nein hindrun lengur.“

Einar Páll kveðst munu íhuga að draga uppsögn sína til baka ef samningar takast fyrir áramót. „Með uppsögninni er ég vissulega að leggja mitt af mörkum til þess að samningar takist. Við erum þrjú í þessari sérgrein hér á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi sem höfum sagt upp nú þegar og það þýðir að verulega mun þrengja að starfseminni og erfitt verður að manna vaktir svo fullnægjandi sé.“

Sinna veikustu sjúklingunum

Svæfinga- og gjörgæslulæknar starfa við svæfingar í öllum aðgerðum auk þess að sinna sjúklingunum sem liggja á gjörgæsludeild. „Þetta eru veikustu sjúklingar spítalans og ég segi bara hreint út að ef svæfinga- og gjörgæslulæknar hverfa af spítalanum þá lamast hann. Þá er ekki hægt að sinna veikustu og mest slösuðu sjúklingunum og ekki hægt að framkvæma neinar aðgerðir sem kalla á svæfingar.“

Alls eru 12 svæfinga- og gjörgæslulæknar starfandi í Fossvogi og að sögn Einars Páls eru fleiri í þeim hópi að íhuga uppsögn. Þá eru ótaldir læknar í öðrum sérgreinum á Landspítala við Hringbraut og í Fossvogi, bæði sérfræðingar og almennir læknar, sem sagt hafa upp að undanförnu eða hyggjast gera það á næstunni.

„Ég vil starfa á spítala og helst hér á Landspítala. Þetta er frábær vinnustaður, og þá á ég við samstarfsfólkið, því hér er valinn maður í hverju rúmi og ómetanleg verðmæti fólgin í mannauðnum. Það væri óbætanlegt tjón að glata honum. Það er ekki auðveld ákvörðun að segja upp eftir 13 ára starf. Ég vil þó ekki vinna hér nema búið sé betur að okkur en nú er gert.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica