09. tbl. 98. árg. 2012

Umræða og fréttir

Tvær nýjar vefsíður um krabbamein

Í vor og sumar hafa tvær nýjar vefsíður um krabbamein litið dagsins ljós. Ljóst er að þeir sem búa yfir þekkingu og reynslu af meðferð krabbameina eru vel meðvitaðir um mikilvægi þess að miðla gagnlegum fróðleik. Ennfremur að nýta til þess þá miðla sem tiltækir eru, í þessu tilviki netið sem þorri þjóðarinnar notar nú sem fyrsta kost þegar leita þarf upplýsinga.

u06-fig1           u06-fig2

Skjáskot af heimasíðunum sem getið er um í greininni. Á síðunni hér að ofan er fjallað um
lungnakrabbamein en á þeirri minni er brjóstakrabbamein til umfjöllunar.

Önnur þessara síðna er helguð umfjöllun um brjóstakrabbamein og er einkum ætlað að veita upplýsingar um skurðmeðferð brjóstakrabbameina. Síðunni er haldið úti af teymi skurðlækninga brjóstakrabbameina á Landspítala. Slóð síðunnar er skurdlaekningarbrjostakrabbameina.is/ 

Um tilgang vefsins segir á forsíðunni: ,,Á þessum síðum eru upplýsingar fyrir sjúklinga sem hafa greinst með brjóstakrabbamein og aðstandendur þeirra. Þeim er ætlað að vera viðbót við þær upplýsingar sem veittar eru í viðtölum við lækna og hjúkrunarfræðinga.“ Það vakti nokkra athygli í fjölmiðlum er síðan var opnuð að meðal þess fjármagns sem fékkst til að setja hana á laggir var ágóði af gjörningi Gíslínu Daggar Bjarkadóttur. Gjörningurinn fólst í því að bjóða upp 365 kjóla sem hún hafði safnað fyrir hvern dag ársins, og raunar nokkra í viðbót. Vefsíðan nýtur einnig styrks úr minningarsjóði um Margréti Oddsdóttur skurðlækni sem lést langt um aldur fram í ársbyrjun 2009.

Hin síðan er helguð lungnakrabbameinum og er á slóðinni lungnakrabbamein.is/ Hún af svipuðum rótum runnin en á síðunni segir meðal annars: ,,Á Landspítala hefur verið starfandi hópur lækna sem hefur sérhæft sig í greiningu og meðferð lungnakrabbameins. Þessi hópur hefur á síðustu árum staðið að útgáfu bæklinga um lungnakrabbamein fyrir sjúklinga og aðstandendur auk bóka og vísindagreina fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Mikilvægt skref í þessu  fræðslustarfi  er heimasíðan lungnakrabbamein.is, en hún hefur verið í undirbúningi sl. hálft ár. Þar geta sjúklingar og aðstandendur fundið fræðsluefni sem tengist greiningu sjúkdómsins og meðferð, ásamt fróðleik um t.d. reykingavarnir og óhefðbundnar meðferðir.“ Heimasíðan hefur notið styrkja úr ýmsum áttum og var unnin í nánu samstarfi við samtök sjúklinga og aðstandenda þeirra.

Báðar síðurnar eiga það sammerkt að hafa góðar tengingar yfir á aðrar vefsíður, innlendar og erlendar sem fjalla um svipað efni og miðla fræðsluefni, svo sem bæklingum og spurningum og svörum sjúklinga og aðstandenda. Þeirra á meðal er einmitt síða og fræðsluefni í bókarformi sem út kom á vegum krabbameinsskrárinnar, en um þessa bók er fjallað í þessu blaði. Á vefsíðunni um brjóstakrabbamein er sjónum einkum beint að sjúklingunum sjálfum, fjölskyldum þeirra og vinum. Hin síðan beinir sínu efni jafnt til sjúklinga og aðstandenda þeirra sem og heilbrigðisstarfsfólks. Báðar síðurnar eru gagnleg viðbót efnis fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir krabbameinssjúklingum. Það á ekki síst við um heimilislækna sem oftast þekkja sjúklinga sína hvað best og eru líklegir til að vera þeir fyrstu sem leitað er til og það eru þeir sem koma sjúklingunum áfram til sérfræðinga og í rétta meðferð. 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica