06. tbl. 94. árg. 2008

Umræða og fréttir

Frá Mumbai til Reykjavíkur. Viðtal við Vikas Pethkar

Það er ekki á hverjum degi sem heimilislæknir í milljónaborginni Mumbai (Bombay) á Indlandi tekur sig upp og flyst til Íslands með það fyrir augum að setjast þar að með fjölskyldu sinni. Vikas Pethkar gerði þetta og hafði upplýsingar um landið í gegnum svila sinn bandarískan en þeir eru giftir systrum frá Úkraínu. "Ég hafði því engin tengsl við landið en þetta á sér samt allt sinn rökrétta aðdraganda," segir Vikar.

Vikar PetkarHann er fæddur og uppalinn í Mumbai, móðir hans háskólarektor og faðir hans embættismaður í stjórnsýslunni. "Ég lauk læknanámi frá háskólanum í Puna árið 1996 og ákvað þá að fara í sérnám í bæklunarlækningum til Kharkov í Úkraínu. Eftir eitt og hálft ár komst ég að þeirri niðurstöðu að skurðlækningar áttu ekki við mig og fór aftur til Mumbai og starfaði þar sem heimilislæknir næstu fimm árin. Í Kharkov kynntist ég konu minni og í fjölskyldu hennar heyrði ég fyrst talað um Ísland því mágur hennar var þá í varnarliðinu í Keflavík. Hann talaði mjög vel um Ísland og hvatti okkur til að koma í heimsókn."

Í ársbyrjun 2004 tók Vikas sig upp og fór til Íslands í eins konar könnunarleiðangur, dvaldi á Vellinum hjá svila sínum og kynnti sér möguleika á að fá starf sem læknir. "Það tók sinn tíma að fá tilskilin leyfi en ég fékk að starfa til reynslu á heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Konan mín kom svo til Íslands nokkrum mánuðum síðar og við erum hér enn. Haustið 2004 tók ég svo prófið sem veitti mér almennt lækningaleyfi á Íslandi."

Vikar leggur nú stund á sérnám í heimilislækningum og gerir ráð fyrir að ljúka því næsta vor.

"Það er mikill munur á því að starfa sem heimilislæknir í Mumbai eða Reykjavík. Í Mumbai er maður að fást við árstíðabundna smitsjúkdóma eins og malaríu sem gýs alltaf upp á regntímanum í júlí og ágúst, einnig alls kyns niðurgangssýkingar og ekki er óalgengt að maður meðhöndli allt að 200 sjúklinga á dag. Aldrei færri en 100. Að öðru leyti eru viðfangsefni heimilislæknisins fremur svipuð; fólksfjöldi á Indlandi er 1,2 milljarður og af þeim eru um 300 milljónir ágætlega stæð miðstétt. Þetta fólk leitar læknis með alla sömu lífsstílssjúkdóma og þekkjast á Vesturlöndum og það hefur efni á að borga fyrir þjónustuna."

Vikas segir íslenska heilbrigðiskerfið mun betra en kerfið á Indlandi.

"Hér fá allir sömu þjónustu en á Indlandi fer þjónustan eftir efnahag og búsetu fólks. Kerfið er tvöfalt, annars vegar einkaþjónusta og hins vegar ríkisrekin heilbrigðisþjónusta sem byggist að miklu leyti á litlum heilsugæslustöðvum og þær eru sumar hverjar vanbúnar tækjum og aðstöðu. Heimilislæknar í Mumbai eru langflestir með einkastofur en þeir starfa líka saman á einkareknum stöðvum eða spítölum. Starf heimilislæknisins á Íslandi er mun fjölbreyttara en á Indlandi og það gefur tækifæri til að nýta kunnáttuna sína og þekkingu."

Það vekur athygli hversu góða íslensku Vikar talar og hann segir að sér hafi verið sagðar ýmsar tröllasögur af því hversu erfitt væri að læra tungumálið. "Ég hafði fyrirmyndir í útlendum læknum sem ég kynntist hér og töluðu ágæta íslensku. Ég hugsaði bara að ég hlyti að geta lært hana eins og þeir og það hefur tekist. Ég hef aldrei lent í því að tala ensku við sjúklinga mína en spyr þá alltaf hvort þeir skilji ekki örugglega allt sem ég segi og svarið hingað til hefur verið já. Það er auðvitað misjafnt hversu vel mér gengur að skilja fólk og unglingar tala öðruvísi en fullorðnir en ég er fljótur að læra ný orð og hef gaman af því. Ég ætla samt á námskeið og læra meiri íslensku."

Kona Vikas er menntuð leikkona og vald á tungumálinu er mikilvægt í þeirri listgrein. "Hún er að læra íslenskuna en í bili stefnir hún ekki á starf sem leikkona. Við erum mjög sátt við lífið hér á Íslandi, hér er gott að vera með fjölskyldu, og veðrið hefur lítil áhrif á okkur. Í Úkraínu verður miklu kaldara á veturna og hér er miklu hlýrra innanhúss. Kannski saknar maður þess stundum að hafa ekki heitari sumur en það getur líka orðið of mikið af því góða eins og í Mumbai þar sem hitinn fer í allt að 50 gráður þegar heitast er. Okkur líður vel hér og á hverju ári heimsækjum við fjölskyldu okkar og vini í Úkraínu og Indlandi. Þetta er gott líf"



Þetta vefsvæði byggir á Eplica