12. tbl. 91. árg. 2005

Broshornið 64. Af illa áttuðu fólki og leiðarlokum

Gulur að austan

Í fjölþjóðasamfélagi nútímans kom Kínverji á bráðamóttöku háskólasjúkrahússins ásamt eiginkonu sinni. Maðurinn kvartaði undan kviðverkjum og þvagið var dökkt á litinn. Aðstoðarlæknirinn á vakt sneri sér að eiginkonunni og spurði:

"Hefur þú tekið eftir því að eiginmaður þinn er orðinn gulur"?

Konan horfði undrandi á lækninn og svaraði: "Maðurinn minn alltaf gulur, maðurinn minn Kínverji."

Illa áttuð

Eldri kona á bráðamóttökunni hrópaði:

"Þjónustustúlka, þjónustustúlka, þetta er hræði­legt hótel."

"Jóhanna mín, slakaðu á, þú ert á spítala."

"Af hverju er ég á spítala"?

"Þú dast og lærbrotnaðir."

"Datt ég á hótelinu"?

"Nei, þú dast heima hjá þér."

"Bíddu nú við, ef ég hef dottið og lærbrotnað ætti ég þá ekki að vera á spítala"?

Góð jól

Svæfingalæknir nokkur þótti einstaklega natinn við börn og lagði sig allan fram til að ná góðu sambandi við þau áður en hann svæfði þau.

Hann spurði sjö ára gutta sem var að fara í kviðslitsaðgerð á aðventunni hvort hann hlakkaði ekki til jólanna.

"Jú, alveg svakalega," sagði strákurinn, "þetta verða bestu jólin í ár."

Hreinsa með alkóhóli

Jónína sem var þekkt fyrir það á sínum yngri árum að vera mikil gleðimanneskja var komin á fertugs­aldurinn þegar hún eignaðist fyrsta barn sitt. Hún fékk að fara heim sama dag og barnið fæddist enda hafði allt gengið eins og í sögu. Í fyrstu heimsókn hjúkrunarfræðings í ungbarnaeftirlitinu heim til Jónínu eftir barnsburðinn var farið yfir nokkur lykilatriði eins og það að hreinsa naflann. "Það er best að nota alkóhól þegar maður hreinsar naflann, svona þrisvar til fjórum sinnum á dag," sagði hjúkrunarfræðingurinn.

"Er þá ekki í lagi að maður noti bara smá sherrý"? spurði mamman.

Raki í lofti

Kona um sextugt sem taldi sig hafa verið "viðkvæma í lungunum" um árabil hafði notað rakatæki heima hjá sér í fjölda ára. Konan var gallhörð á því að rakatækið hefði ekki haft "nein heilsubætandi áhrif" eins og hún orðaði það. Í einni af mörgum heimsóknum hennar til læknisins þegar það barst í tal hve mikilvægt væri að vatnið í rakatækinu væri ávallt sem hreinast hváði konan: "Bíddu, á að vera vatn í tækinu"?

Gallið

Læknir á vakt fékk símtal frá konu að kvöldi dags. "Ég er með sáran verk undir hægri rifjaboga og verkurinn liggur aftur í bak. Hvað heldur þú að þetta geti verið"? spurði konan. "Hefur þú fundið fyrir ógleði eða kastað upp"? spurði læknirinn. "Nei, hvorugt" svaraði konan.

Læknirinn gat þess að um nokkur atriði gæti verið að ræða og gallblaðran væri þar á meðal. Þá kom þögn í drykklanga stund áður en konan spurði: "Svona á skalanum frá einum til tíu, hversu alvarlegt er að vera með gallblöðru"?

Betra minni?

Eldri kona kom til heimilislæknisins sem hún hafði trúað fyrir einkamálum sínum árum saman og bað hann um að fara með sér í gegnum poka sem var fullur af náttúrulækningameðulum.

"Hvers vegna er ég að taka ginkgo biloba"? spurði konan.

"Ætli það sé ekki til að bæta minnið þitt," sagði læknirinn. Konan fór þá að skellihlæja og læknirinn líka. Eftir dágóða spurði konan grafalvarleg: "Heldurðu að það sé eitthvað að hjálpa mér"?

Leiðarlok

Og að lokum einn "ekki-brandari". Broshornið leit dagsins ljós á síðum Læknablaðsins í upphafi árs 2000 fyrir tilstilli Birnu Þórðardóttur, þáverandi ritstjórnarfulltrúa. Ritstjórn Læknablaðsins hefur ákveðið að frá og með áramótum 2005-2006 muni nokkrir fastir pistlar hverfa af síðum Læknablaðsins. Broshornið er í þeim flokki. Með­fylgjandi pistill er sá 64. í röðinni og um leið sá síðasti.

Við leiðarlok þakkar undirritaður lesendum Læknablaðsins samfylgdina og óskar þeim og blaðinu alls hins besta. Hann á þá ósk heitasta að lesendur haldi bjartsýni sinni og jákvæðni þótt Broshornið kveðji.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica