Umræða fréttir

Ný heimasíða Læknafélags Íslands

Í vetur opnaði LÍ nýja heimasíðu á slóðinni www. lis.is og tekur hún við af þeirri gömlu (www.icemed. is). Sem vefstjóra og notanda síðunnar langar undirritaðan að koma á framfæri nokkrum punktum til að hjálpa félaginu að byggja upp virðingarverðan og málefnalegan vef. Kerfið á bak við vefinn hefur undirritaður verið með í þróun síðastliðin þrjú ár og er það sérstaklega sniðið að þröfum félagasamtaka eins og LÍ er.





Aðgangsorð félagsmanna

Þeim félagsmönnum sem voru með skráð netfang við opnun síðunnar hafa þegar verið send aðgangsorð. Um 700 skeyti voru send út en 600 manns höfðu ekkert netfang. Þeim er bent á að hafa samband við skrifstofu LÍ til að fá aðgangsorð sitt. Við viljum biðja viðkomandi aðila um að byrja á því að skrá á sig rétt netfang þegar þeir tengjast síðunni. Það er gert með því að smella á Mínar upplýsingar á vinstri spássíu síðunnar. Mjög mikilvægt er að félagatalið innihaldi alltaf sem réttastar upplýsingar um félagsmenn, einkum netföng. Mikilvægar tilkynningar eru öðru hvoru sendar á póstlista vefsins og berast skiljanlega aðeins til þeirra sem hafa netfang sitt skráð.





Möguleikar vefsins

Hér er á ferðinni vefur af allt öðrum toga en sá gamli. Sú vefsíða var ekki "gagnvirk" efnisinnihald síðunnar var sett inn af ritstjóra einum og félagsmenn höfðu ekki möguleika á að koma á framfæri skoðunum sínum eða fyrirspurnum. Með nýju vefsíðunni geta allir félagsmenn LÍ tekið þátt í að móta efnið.



Greinar

Ritstjórar síðunnar sjá að mestu leyti um að vista nýjar greinar á heimasíðuna (svo sem fréttir og tilkynningar). Í suma greinaflokka geta allir félagsmenn lagt inn efni. Þar gætu menn til dæmis komið á framfæri ábendingum um áhugaverðar ráðstefnur eða bent á nýlegar rannsóknarniðurstöður.



Umræður

Á umræðuhluta vefsins hafa félagsmenn bestan möguleika á að koma á framfæri skoðunum sínum eða fyrirspurnum til annarra lækna. Vonast ég til að hér eigi eftir að skapast skemmtilegar og fróðlegar umræður, einkum er lúta að klínískum og praktískum atriðum þannig að aðrir geti fylgst með og lært af. Til dæmis gætu unglæknar leitað álits eldri lækna og sérfræðingar spurt kollega sína um nýjustu uppgötvanir eða meðferðir sjúkdóma. Ég tel umræðuvefinn vera mikilvægt tól í þeirri þróun sem nú er hafin á heimsvísu, þar sem læknar veita sjúklingum sínum bestu mögulegu meðferð hverju sinni með nýjum og fullkomnari samskiptaleiðum við kollega.



Tenglasafn

Tenglasafninu er skipt upp í flokka eftir sérgreinum læknisfræðinnar og er hugmyndin sú að læknar visti sjálfir áhugaverða tengla á sínu sviði. Allir notendur geta svo gefið einkunn og álit á viðkomandi tengil (það er heimasíðu). Þannig byggist smátt og smátt upp á vísum stað safn bestu tengla í hverri sérgrein og allir félagsmenn njóta góðs af.



Framtíð vefsins

Það er skoðun undirritaðs að nýr vefur LÍ hafi alla burði til að gjörbylta möguleikum félagsins á að koma á framfæri upplýsingum hvort sem er til félagsmanna sinna eða út á við til almennings. Við sem að vefnum stöndum vonumst til að félagsmenn taki í framtíðinni virkan þátt í uppbyggingu hans. Allar ábendingar um vefinn eru vel þegnar og hefur undirritaður opnað til þess nýjan umræðuþráð Heimasíðan opnuð á spjallþráðunum. Sjáumst þar!

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica