Fræðigreinar

Ómskoðun við 18-20 vikur

Ágrip

Ómskoðun við 18-20 vikna meðgöngu er víðast hvar talin sjálfsagður hluti nútíma mæðraverndar og hófst á Íslandi á árunum 1984-1986. Lesa meira
 

Greining hjartasjúkdóma á fósturskeiði

Ágrip

Við fósturhjartaómskoðun er hjarta fósturs, bygging þess og virkni skoðuð. Slíka skoðun er hægt að framkvæma frá 14 til 18 vikna meðgöngu þó best sé að gera hana um 20 viku. Lesa meira
 

Ómskoðun fósturs við 11-13 vikur, hnakkaþykktarmæling og líkindamat með tilliti til litningagalla og hjartagalla

Ágrip

Ómskoðun á meðgöngu er í dag hluti af hefðbundinni mæðravernd. Á Íslandi er öllum konum boðin ómskoðun við 18-20 vikur en um þriðjungur kvenna fer auk þess í snemmómskoðun, til dæmis vegna blæðinga, verkja eða óvissrar meðgöngulengdar. Lesa meira
 

Líkindamat með tilliti til litningagalla fósturs eftir hnakkaþykktarmælingu

Ágrip

Í þessari grein er fjallað um líkindamat en það er byggt á forriti sem reiknar út tölfræðilegar líkur á þrístæðu 13, 18 og 21. Lesa meira
 

Lífefnaskimun fyrir fósturgöllum - alfa-fetóprótín

Ágrip

Í þessari grein verður fjallað um alfa-fetóprótín (AFP) og þátt þess í skimprófum fyrir miðtaugakerfisgöllum hjá fóstrum auk annarra fósturgalla. Lesa meira
 

Lífefnaskimun fyrir fósturgöllum

Ágrip

Lífefnaskimun fyrir fósturgöllum er um það bil 30 ára gömul. Í fyrstu var markmiðið leit að miðtaugakerfisgöllum með mælingum á a-fetópróteini í mæðrasermi (MS-AFP) og legvatni (Lv-AFP). Lesa meira
 

Samþætt líkindamat með tilliti til þrístæðu 21 byggt á lífefnaskimun móður og hnakkaþykktarmælingu fósturs við 11-13 vikur

Ágrip

Hér er sagt frá skimun með tilliti til litningagalla fósturs, með mælingu á lífefnavísum í blóði móður og ómmælingu á hnakkaþykkt fósturs. Lesa meira
 

Legvatnsástunga og fylgjuvefssýni til greiningar á litningagerð fósturs

Ágrip

Hér er gefið yfirlit um legvatnsástungur og fylgjusýnistökur. Greint er frá því hvernig þessar rannsóknir eru framkvæmdar, hverjir helstu fylgikvillar eru, bæði þeir sem koma fram strax og einnig síðkomnar afleiðingar. Lesa meira
 

Litningarannsóknir til fósturgreiningar

Inngangur

Litningarannsóknir hófust á Íslandi sumarið 1967 á vegum Erfðafræðinefndar Háskóla Íslands og Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Lesa meira
 

Hnakkaþykktarmælingar fósturs hjá konum 35 ára og eldri Niðurstöður frá 1.1.99-31.12.00

Ágrip

Inngangur: Með ómskoðun fósturs og hnakkaþykktarmælingu við 11-13 vikur ásamt upplýsingum um aldur móður má reikna líkindamat með tilliti til litningagalla fósturs. Lesa meira
 

Ráðgjöf til foreldra um ómskoðanir í meðgöngu

Ágrip

Í þessari grein er lögð áhersla á hvernig ljósmæður, hjúkrunarfræðingar, læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur við mæðravernd kynnir ómskoðanir í meðgöngu. Lesa meira
 

Fósturgreining Siðfræði - sálgæsla

Ágrip

Framfarir á sviði fósturgreiningar hafa orðið miklar á undanförnum árum. Það er ómetanlegt að hægt skuli vera að fylgjast með vexti, þroska og líðan fósturs eða barns í móðurkviði og hlýtur það að stuðla að auknu öryggi móður og barns. Lesa meira
 



Flýtival


Þetta vefsvæði byggir á Eplica