Umræða fréttir

Broshornið 20. Af barnleysi og veðhlaupahrossi

Barnleysi

Umræðan um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði og genalækningar hafði verið áberandi í fjölmiðlum. Það ýtti við Lalla og Löllu konu hans. Þau fóru saman til læknis til að létta af sér áhyggjum vegna áralangs barnleysis, sem var gegn vilja og óskum þeirra beggja.

"Læknir, er nokkur hætta á því að þetta barnleysi okkar sé arfgengt?"



Í augnaðgerð

Sjúklingurinn: "Læknir, ég hef miklar áhyggjur af því hvernig sjónin verður eftir aðgerðina. Hverjar eru horfurnar?"

Augnlæknirinn: "Það er ekkert að óttast. Þú átt aldrei eftir að sjá muninn."



Umönnun

Hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild fór að vitja sjúklings sem var þungt haldinn og þurfti á súrefni að halda. Hjúkrunarfræðingurinn reyndi að tala við sjúklinginn, sem gat ekki talað og umlaði eitthvað óskiljanlegt. Svo varð hann allur slappari að sjá. Loks hugkvæmdist hjúkrunarfræðingnum að ná í skrifblokk og penna og bað sjúklinginn að skrifa það sem honum lá á hjarta.

Með veikum mætti og skjálfandi hönd gat hann párað "ÞÚ STENDUR Á SÚREFNISSLÖNGUNNI."



Við gullna hliðið

Sankti-Pétur var að sinna daglegum verkum sínum úti við Hlið, þegar hann sá einn nýkominn. Pétur leit í bókina og sagði: "Þú átt ekki að vera hérna fyrr en eftir fimm ár. Hver er eiginlega læknirinn þinn?"



Af veðhlaupahrossi

Siggu Línu var mikið niðri fyrir þegar hún ávarpaði geðlækninn.

"Þú verður að gera allt sem þú getur til að hjálpa manninum mínum. Hann heldur að hann sé veðhlaupahestur. Hann vill búa í hesthúsinu, gengur á fjórum fótum og þú ræður hvort þú trúir því, hann étur hey."

"Ég er viss um að ég get læknað hann, en það mun taka langan tíma og verða mjög dýrt," sagði læknirinn.

"Ég hef nú engar áhyggjur af kostnaðinum," sagði Sigga Lína, "hann er þegar búinn að sigra í tvennum kappreiðum."



Út í frelsið

Þrír sjúklingar ákváðu að strjúka af geðveikrahæli. Sá fyrsti gekk fram hjá gæslumanninum, mjálmaði eins og köttur og komst út. Sá næsti fór nákvæmlega eins að, mjálmaði og komst fram hjá gæslumanninum. Þriðji sjúklingurinn hugðist fara sömu leið og kallaði: "Ég er líka köttur, bið að heilsa."



Seinn að kyngja

Heyrst hefur af karlmanni undir ellilífeyrisaldri sem var dálítið seinn að kyngja viagratöflu og fékk umsvifalaust hálsríg.



Eldist illa

Eldri kona kom til heimilislæknisins, sem hún hafði þekkt í áratugi og var áhyggjufull.

"Maðurinn minn hefur greinilega minni kynorku en hann hafði."

"Nú, jæja og hvað er bóndinn þinn gamall?"

"Sjötíu og fimm."

"Nú, já. Það er nú ef til vill ekki von á öðru fyrir mann á hans aldri. Hvenær veittir þú því annars athygli að karlinn væri farinn að slappast?" spurði læknirinn.

"Í gærkvöldi og svo aftur í morgun," sagði konan.



Fastar linsur

Drukkinn maður kom inn á slysadeild og kvartaði um sáran verk, þegar hann reyndi að ná linsunum úr augunum. Hann sagðist ná þeim út að nokkru leyti en síðan hrykkju þær alltaf inn aftur. Hjúkrunarfræðingur reyndi að hjálpa til með því að nota sogskál, en allt kom fyrir ekki.

Loks kom læknir, sem skoðaði manninn og komst að því að hann var ekki með neinar linsur í augunum, heldur hafði hann verið að bjástra við að ná hornhimnunni af hvoru auga fyrir sig.



Hættur að hósta

Einn af undirmálsmönnum borgarinnar stóð fyrir utan apótek og hélt dauðahaldi í ljósastaur. Maðurinn var gjörsamlega hreyfingarlaus og stóð eins og frosinn. Þegar lyfsalinn leit út og sá manninn spurði hann afgreiðslustúlkuna: "Hvað er eiginlega að þessum manni? Var hann ekki annars hérna inni í apótekinu áðan?"

"Jú, hann var hér," svaraði afgreiðslustúlkan. "Hann var reyndar búinn að koma nokkrum sinnum áður út af óstöðvandi hósta. Það var alveg sama hvað ég gaf honum við hóstanum að ekkert dugði."

"En nú sýnist mér hann vera hættur að hósta" sagði apótekarinn.

"Já, þó væri. Ég gaf honum pakka af kröftugasta hægðalyfinu, sem við eigum og ég held að hann þori bókstaflega ekki að hósta meira."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica