Ritstjórnargreinar
  • Hannes

Ný heimsmynd í kjölfar árásanna í Bandaríkjunum

Með hruni Tvíburaturnanna á Manhattaneyju í New York í síðasta mánuði hrundu vonir okkar um friðsaman heim. Vonir okkar er einungis hafa heyrt um styrjaldir og hinna sem lifað hafa af ógnvænlegustu styrjaldir sem háðar hafa verið á jörðinni.

Þessar styrjaldir hafa verið sérstakar fyrir marga hluta sakir. Með fyrri heimsstyrjöldinni hófst hin tæknivædda hermennska og er óþarfi er rekja sögu síðari heimsstyrjaldarinnar, utan að geta þess að í henni varð mannfall með þvílíkum hætti að ekki finnst neitt sambærilegt. Er þá ekki einvörðungu átt við mannfall í röðum hermanna heldur ekki síður í röðum saklausra jarðarbúa. Mannfallið var ekki einvörðungu fyrir þær sakir að saklausir íbúar átakasvæða blönduðust í styrjaldarátök vegna búsetu sinnar heldur var í fyrsta sinn ráðist á þá sérstaklega, bæði á skipulegan hátt með það að leiðarljósi að útrýma heilu kynþáttunum og líka þannig að í fyrsta sinn var kjarnorkuvopnum beitt á þann hátt að hernaðarlega mikilvæg skotmörk voru ekki í sigtinu heldur heimili manna. Kaldastríðið tók við þar sem friður ríkti vegna svokallaðrar gagnkvæmrar firringar sem gekk út á frið eða gjöreyðingu. Þessu ástandi fylgdi töluverð skerðing á frelsi einstaklinganna hjá öðrum kaldastríðsaðilanum en stöðugri hræðslu um kjarnorkuvá, fimbulkulda og dauða hjá hinum. Sú spennitreyja var engum eftirsjá þá járntjaldið hrundi, enda fóru í hönd hagvaxtartímar í okkar heimshluta.

Það eru því sérstök ónot og óvissa sem fylgja ástandi friðarmála á jörðinni í dag, ástandi sem líkt hefur verið við styrjöld. Þessi styrjöld hefur fylgt styrjaldarþróun aldarinnar sérstaklega vel vegna þeirrar sérstöðu sem hún hefur markað sér með því, að þar eru saklausir borgarar fyrsta og helsta skotmarkið, óvinurinn er óþekktur og sýnileg markmið hans eru ekki ljós nema ef vera skyldi að drepa. Enn eru ekki öll kurl komin til grafar hvað varðar fjölda látinna í hryðjuverkaárásinni í Bandaríkjunum þann 11. september síðastliðinn en talið er að um 6700 manns hafi látist í árásinni. Einungis björguðust fimm einstaklingar úr rústunum árásardaginn og aðeins einum var bjargað daginn eftir, en frá þeim tíma hefur enginn fundist á lífi í rústunum. Tæplega 300 lík hafa fundist og af þeim hefur einungis verði unnt að bera kennsl á um 150. Af þessu má ráða að annað hvort hafi einstaklingarnir er lentu í harmleiknum komist af með minniháttar líkamlega áverka ellegar látist. Herlæknar árásarinnar í Bandaríkjunum eru því réttarlæknar sem ásamt samstarfsfólki hafa þurft að bera kennsl á hina látnu og reyna að ráða í þá tugþúsund sundurlausu líkamsparta er fundist hafa og eru enn án persónueinkenna. Herlæknarnir eru líka geðlæknar sem ásamt samstarfsfólki hafa reyna að lækna sálræna áverka aðstandenda þeirra er létust og annarra er hjá kviknaði ótti og kvíði við árásina. Ætla má að hlutverk geðlækna eigi eftir að aukast, þar sem kvíðanum og óttanum mun að öllum líkindum fylgja aukning geðrænna vandamála, einkum hjá börnum, enda var það eitt af fyrstu tilmælunum til almennings í Bandaríkjunum að huga að sálarástandi barna sinna og kynna þeim hina nýju og grimmu heimsmynd á sem mildilegastan hátt. Heimsmynd sem felur í sér að flugvélarhljóð yfir höfði þýðir ekki lengur gleðilega heimkomu ættingja heldur ótta um eyðileggingu og dauða.

Herlæknar þessa nýja stríðs koma ekki einvörðungu til með að vinna á vígvöllunum fjarri heimilum sínum heldur á vígvellinum sem nú er heima hjá hverjum og einum. Þar munu læknar þurfa að kljást við ýmis vandamál er fylgja stríðsrekstri sem þessum, vandamál er tengjast notkun sýkla og eiturefna, eitthvað sem hingað til hefur verið óþekkt í okkar heimshluta. Á átakasvæðunum munu áverkar er tengjast stríðsrekstri vera augljósir bæði vegna hertólanna sjálfra en líka vegna slysa er af hljótast er stórir hópar hermanna eru fluttir milli staða og eitt er víst að sama hversu vopnin eru fullkomin þá verða alltaf saklausir þegnar fyrir áverkum og dauða. Búast má við að hernaðarátökin auki á hryðjuverk fjarri átakasvæðum og það leiðir okkur enn að aðalatriðinu varðandi það ófriðarbál sem nú hefur verið tendrað, en það er að það logar á lóðinni okkar. Óbeinu áhrif þessa ástands verða ef til vill enn meiri og af áður óþekktum toga. Versnandi efnahagsástand sem fylgir stóráföllum sem þessum getur kallað yfir líkamleg, andleg og félagsleg vandamál þegnanna, auk þess sem lausnir ýmissa heilsufarslegra og samfélagslegra vandamála er ekki tengjast herrekstrinum verði látnar sitja á hakanum. Þannig snertir þessi nýja heimsmynd okkur öll og ekki hvað síst lækna sem ber að vera bjartsýnir og búa sig undir það versta.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica