webmastery

Notendahandbók

Um notendahandbókina

Þessi síða innheldur notendahandbók fyrir ýmissa skráningu á vefnum. Það má bæta við upplýsingum að vild.

Allar myndir sem birtast hér fara í möppu í skjalasafninu sem heitir Webmastery. Hægt er að smella á þær til að fá þær til að birtast stærri.

Síðan kemur hvorki upp í leit, né á vefnum sjálfum.

Búa til síðu með nýju ártal fyrir tölublöð (í janúar)

  1. Opna síðuvalmyndina í vinstra horninu og velja "Opna veftré". Veftréð er yfirlit yfir allar síður vefsins og skráningu þeirra. 
  2. Hægri smella á flokkinn "Tölublöð" og velja "Skrá nýja undirsíðu". 
    Screenshot-2016-11-30-13.43.44
  3. Fylla inn 2017 í Titill. Sniðmát á að vera stillt á "Tölublöð - árgangar (3dálkar)". Ef þessi síða á að vera falin þar til nýtt tölublað er skráð á hana, þá má stilla hana sem "Falin" undir dálknum "Birting" og sem "Óvirk" undir Vinnslustaða. Þá er síðan ekki aðgengileg þeim sem eru útskráður, hún er einungis sýnileg þeim sem eru innskráðir í Eplicuna. En það þarf að muna að stilla hana aftur sem "Virk" og "Sjálfvirk" þegar síðan á að birtast á vefnum. Og smella á Vista.
    Screenshot-2016-11-30-13.46.24
  4. Nýja ártalið kemur neðst í listann yfir tölublöð, þannig að það þarf annað hvort að fara í veftréð og draga það ofar (eða breyta „Röð í valmynd“ reitnum í skjámyndinni hér fyrir ofan).

 

Búa til nýtt tölublað 

Þegar búið er að búa til nýjan árgang fyrir árið, þá er sú síða opnuð með því að opna veftréð og hægri smella á ártalið 2017 og velja "Skrá nýja undirsíðu". Fylla þar út titil á blaðinu, laga sjálfgefnu slóðina (stytta hana einfaldlega í /tolublod/áááá/mm, t.d. /tolublod/2021/09) og velja sniðmátið "Tölublað - nýtt". Mikilvægt er að hafa síðuna stillta sem Falin og Óvirk á meðan það er í vinnslu.


Sé það gert mun 404 skilaboð birtast þeim notendum sem ekki eru innskráðir.


Þegar vinnslu er lokið og tölublaðið má fara í birtingu þarf að setja vinnustöðu í "Virk" sem og birtingu í "Sjálfvirk". Ef tölublaðið er fyrsta tölublað ársins gæti þurft að breyta líka birtingarstöðu ártalsins með sama hætti (sbr. kaflann hér á undan).

Skrá nýjan skjalaflokk fyrir tölublað

Heiti skjalaflokksins á að vera í forminu YYYY-MM (eða MMMM fyrir sumarblaðið, verður bara að endurspegla vefflokkinn, með strik í stað skástriks).

T.d. fyrir tölublaðið /tolublod/2021/03 verður skjalaflokkurinn 2021-03. Tvö dæmi sjást hér í skjáskotinu.


Síðan má skrá t.d. pdf með skráaheiti f01.pdf í Eplica skjalasafninu, í þessum skjalaflokki fyrir tölublaðið, með nafni f01. Að lokum er t.d. f01 sett inn í greinaskráningu sem tilvísunarnúmer til að tengja pdf skrána saman við grein.

Skrá efni

Til þess að byrja að skrá efni þarf að opna nýja tölublaðið með því að opna veftré, hægri smella á tölublaðið og velja "Skoða vefsíðu". Eða opna yfirlitssíðuna yfir árið, þar eiga öll blöðin að birtast ef þau eru rétt skráð. Þá birtist síða með engu efni en með leiðbeinandi titli: "Þessi virkni er til að nýskrá efni (falið fyrir almenna notendur)." Þar fyrir neðan stendur „Engin grein fannst“ og með því að fara með bendilinn yfir hana kemur gulur hnappur með möguleikanum „Nýskrá efni“.


Skráning upplýsinga í fræðigreinum

Þegar búið er að setja inn titil og efni er smellt á punktanna þrjá við hlið Vista takkans og þá kemur upp greinaskráningargluggi

Í greinaskráningunni þarf að velja Greinartegund og setja inn Tilvísunarnúmer (númer úr filezilla sem birtist pdf skjali í greininni).

Farið í flipann Ítarskráning og settar inn heimildir og tilvísunarnúmer (í þessu tilviki er það f01), það er PDF skjalið sem birtist í greininni.

Höfundar eru skráðar á tvennan hátt. Það er langur listi, upptalning höfunda, sem birtist þegar notandinn skoðar heila grein, t.v. við meginmál greinar.

Upptalning höfunda er sett inn í „Heimild“. Á þessu stigi má það vera hrátt afrit (eða jafnvel bara einhver texti sem síðan má uppfæra í ritilsviðmóti greinarinnar.

Síðan er stutt form höfundar eða höfunda sem birtast í greinalista. Þetta er skráð í eigindum greinar, sjá aðeins neðar.

Enski útdrátturinn er skráður á nákvæmlega sama hátt og íslensk grein er skráð en það verður að stilla hana sem Summary in English í greinaskráningu svo að hún hverfi úr íslenska yfirlitinu yfir greinar í tölublaðinu.

Í þessari skráningu er enski útdrátturinn tengdur við íslensku greinina með því að velja flipann Ítarlegt uppi í hægra horni og velja Aðkomutengingar. Þar er smellt á mynd af litlu skjali þar sem íslenska greinin er fundin og tengd við. Muna að smella á Vista breytingar.

Stutt form höfundar eða höfunda er skráður í flipanum Eigindi, muna að smella á Vista eigindi og vista breytingar. Þetta er formið sem sést þegar grein er skoðað í lista. (Heildarlistinn sem sést við staka grein er skráð í heimildarreit greinar, nánar fyrir ofan.)

Doi númerið er sett inn efst í greininni, það er ljómað og skilgreint í vefritlinum:
Screenshot-2017-01-26-13.07.39

  • Skráning DOI tengla:

    DOI tengillinn þarf að nota P stíl "Doi linkur efst", og slóðin þarf að byrja með https://doi.org/ .

  • Inngangur:

    Fyrsta málsgreinin þarf að vera með stílinn "Áhersla/útdráttur". Það er tilvera málsgreinar með þessum stíl sem leyfir birtingu táknanna (enska fánans o.fl.).

  • Höfundar fræðigreina:
    Eftir að texti er settur inn í „Heimild“ reitinn í greinaskráningu birtist hann milli greinarheitis og útdráttar. Hér gilda nokkrar sérreglur um uppsetningu (og eru t.d. ekki notuð línuskil í ritlinum).

    Þess í stað eru notuð tvö sértákn til þess að brjóta textann í línur: lóðrétt pípa (|) og hefðbundin komma (,). Komma skiptir milli höfunda (og býr til tóma línu), lóðrétta pípan brýtur milli lína, t.d. milli nafns, starfsheitis og vinnustaðar:

      

    (Í einhverjum eldri greinum hefur verið notuð einföld-upphafsgæsalöpp (‚) sem lítur út eins og komma til þess að „feika“ kommur í höfundalistann, þetta ætti að vera óþarfi en ef vill má afrita úr sviganum hér framar)

    Fyrir þann höfund sem veitir nánari upplýsingar er skráður netfangshlekkur við nafn viðkomandi. Nafnið er svert, smellt á hlekkjahnappinn (keðjutákn) vinstra megin í ritlinum og valin tegundin „Netfang“, þá nægir að líma inn netfangið sem vefslóð:


  • Heimildaskrá:
    Nægilegt ætti að vera að afrita heimildaskrár frá crossref.org og líma inn sem töflu. Virknin ætti þá að leita uppi DOI hlekki, PMid og PMCid vísanir og birta svona hjá lesendum sem ekki eru innskráðir:


    Áður þurfti að handmerkja vísanirnar og ef það er gert birtast þær á fölgrænum grunni þegar ritillin er opnaður:

Tengja inn grein í gegnum ritstjórnarskjá

Ef ske kynni að grein sé aftengd úr blaði, þá er hægt að sækja hana aftur. Það er gert með því að vera staðsett/ur á réttu tölublaði. Fara í síðuvalmyndina uppi í vinstra horni og velja Ritstjórnarskjár. Þetta er yfirlit yfir allar þær greinar sem eru að birtast á þessari síðu (í þessu tölublaði), til að tengja greinina aftur inn þarf að smella á hnappinn með mynd af blaðsíðu:
Screenshot-2017-01-03-14.48.05

Finna þar greinina með að byrja slá inn titil og smellir á "Velja". Þá er hún komin inn og þá þarf að velja "Tengitegund" = Heimatenging. 

Einnig er hægt að raða greinum í röð í Ritstjórnarskjá. Þá er greinin sem á að vera efst númeruð 0, og svo eru næstu greinar í talnaröð 1,2,3,4...

Myndanotkun almennt

Eplica kerfið býr sjálfkrafa til allar myndastærðir sem á þarf að halda, sér í lagi myndastærð sem hentar fyrir deilingu á samfélagsmiðlum.

Ritstjórar þurfa að gæta þess að hafa myndir í nægjanlegum gæðum og hafa auga með því hvernig myndir gætu verið skornar í ólíkum birtingarformum. Hægt er að fara í skráningu viðkomandi myndar og stýra því hvernig er skorin fyrir ólík birtingarform.

Ljósmyndir ættu alltaf að vera á JPEG sniði (.jpg eða .jpeg) en skýringarmyndir/gröf/teikningar koma yfirleitt best út á PNG sniði (.png).

Helstu myndastærðir (frummyndir þurfa að vera a.m.k. þetta stórar):

  • Forsíðuborði (mest 1800 x 800 pixlar), birtist í farsímum í hlutföllunum 4:3 (nærri ferningslaga)
  • Mynd með grein (t.d. höfundur), að lágmarki 1200 x 630 (f. samfélagsmiðla). Lögun myndarinnar helst óbreytt inni í grein, en er skorin við birtingu á forsíðu

Myndir: Notkun áherslupunkts til að stýra niðurstöðum

Sjálfgefið er að skera út frá miðju viðkomandi myndar, sem kemur ekki alltaf vel út.

Til að breyta myndum sem eru óþarflega „skakkar“ má nota áherslupunkt til að stýra því hvernig myndin er skorin.

Hér klippist t.d. á höfuðið á óheppilegum stað. Til að breyta er farið inn í skráningu greinarinnar, flipann „Myndir og skjöl“ og svo smellt á viðkomandi mynd til að fá upp skráningarglugga hennar.

Ef við sjáum ekki gulan depil yfir myndinni þurfum við fyrst að breyta tegund skjals í „Myndefni á vef“ (gæti þurft að skipta yfir í „Ítarlegt“ flipann til að fá þann valkost), vista og opna skráningargluggann aftur:

Aðeins neðar í glugganum er sýnt hvernig þær myndastærðir sem skera af myndinni gera það. Hér sést að myndmiðjan (sem klippt er út frá) er við hökuna, sem veldur því að hluti höfuðsins sést ekki:

Með því að draga gula hringinn á myndinni ofar færist jafnóðum til sýnishornið neðst:

=>

Ef áherslupunkturinn færist nálægt jaðri myndarinnar þarf oft að „ýkja“ aðeins staðsetninguna til að ná fram réttum skurði, hér þarf að setja punktinn efst á ennið til þess að ná hárinu með.

Með því að vista skráninguna birtist nýja útgáfan í greinalistanum:

Myndir tengdar greinum (ritstjórnar-, fræði- og umræða)

Í skráningarglugga greina er farið í flipann „Myndir og skjöl“ og þar valið að „Tengja mynd/skjal“. Fyrsta myndin sem er tengd ætti að vera höfundarmynd (í fræðigreinum verður það sú mynd sem birtist með útdrætti). Þessar myndir ættu helst að vera í a.m.k. 1200 pixla breidd fyrir deilingu á samfélagsmiðlum.

Ef höfundar eru fleiri en einn er búið að útfæra smá trix: Myndir þeirra (allra) eru tengdar við greinina eins og venjulega, þannig að sú sem er fyrst skráð birtist í efnisyfirlitum (t.d. á forsíðu). Síðan eru þær að auki settar inn í summary-málsgreinina.

Bendillinn er settur fremst í málsgreinina og annað hvort notað copy-paste eða myndirnar dregnar til að vera fremst í málsgreininni, í raun ígildi þess að þær séu fyrstu orð málsgreinarinnar:


(Þótt það sjáist ekki á skjáskotinu er myndin til vinstri valin). Rétt stærð er Miðlungs, hún ætti að vera innan „Áhersla/útdráttur“ og loks er valinn stíllinn „Mynd - hægri“. Við það flýtur hún yfir til hægri og gera má það sama við hina myndina.

Þegar báðar hafa verið stilltar svona flæðir bæði útdráttur og meginmál vinstra megin við myndirnar:


Ef lesandi er ekki innskráður og vafrinn finnur svona myndir inni í málsgrein af þessari tegund, þá er stóra myndin við hlið fyrirsagnarinnar falin. Sjá í viðkomandi grein 

Grein með Soundcloud tengingum

Fyrir greinar sem eiga sér skráningar á Soundcloud þarf að gera tvennt:

Fyrst er búinn til hlekkur á Soundcloud slóðina, merktur í ritlinum sem „Vísun í Soundcloud“:

 

Texti tengilsins gæti t.d. verið „Hlustaðu á viðtalið við XXX“, en hann er ekki sýnilegur nema þegar ritillinn er opinn. Þess í stað færist hann upp við hlið deilingarhnappanna efst hjá óinnskráðum:


Hitt atriðið er að sækja kóða fyrir Soundcloud til að birta spilara innan greinarinnar. Til þess er farið á slóð þáttarins á Soundcloud og smellt þar á „Share“:


Valið er „Embed“ og miðútgáfan (með mynd hægra megin). Þá birtist kóði neðar á síðunni sem er afritaður í heild sinni:


Þennan kóða má líma beint inn í opinn ritilinn á viðeigandi stað (þarf ekki að fara í skráningu greinar). Við það ætti spilarinn strax að birtast. Honum fylgir líka daufgrá lína með heiti færslunnar, en það má nota ritilinn til að sverta þann texta og henda honum:


Grein sem vísar beint í skjal

Hægt er að setja inn grein sem í stað þess að vísa í meginmál vísar beint í t.d. pdf skjal. Þá er grein skráð eins og venjulega, gott er að setja í meginmál hennar hlekk í skjalið sem um ræðir, ef lesandi slysast inn á hana eftir öðrum leiðum.

Dæmi um þetta er færsla sem vísar á dagskrá Læknadaga:

Hún er í raun skráð eins og hver önnur grein, með tengdri mynd og í meginmálið er einungis settur textahlekkur á PDF skjal (sem búið er að skrá í skjalakerfi):

Galdurinn er svo að skrá "Tilvísunarslóð" fyrir greinina. Þar sem skjalið er innan vefsins má nota "/" sem kemur þá í stað "https://laeknabladid.is". Eftir að Tilvísunarslóð hefur verið skráð er ekki hægt að opna greinina frá greinayfirliti, en til að breyta skráningu hennar er alltaf hægt að nota Ritstjórnarskjá til að "ná tökum á henni":


Setja inn efnisyfirlit fyrir hvert ár

  1. Hlaða inn pdf útgáfu af efnisyfirlitinu inn í skjalasafnið. 
  2. Þegar búið er að skrá skjalið myndast vefslóð á skjalið, afrita þarf vefslóðina:
  3. Nýskrá undirsíðu í veftréinu efst á aðalsíðu fyrir hvert tölublað t.d 2017: http://www.laeknabladid.is/tolublod/2017/.
  4. Setja Efnisyfirlit í titil og í valmyndaaðgerð á að afrita slóðina á skjalið og smellt á vista:
    Screenshot-2017-02-02-11.56.25

    Þá á efnisyfirlitið að birtast.

Setja inn fylgirit

Opna veftré og finna flokkinn Fylgirit og rétt ártal. Stofna nýja undirsíðu fyrir nýtt fylgirit:

Síðan á að vera á sniðmátinu Greinagrunnur 2 (2 dálkar) og hafa titilinn Fylgirit nr. x - x. - titill.

Flokkurinn fyrir ár er með sniðmát Tölublöð - árgangur (3 dálkar) - það er með subcategory einingu sem sýnir undirflokka ársins í megindálknum:

En flokkurinn fyrir hvert fylgirit (119, 120... hér sjáum við 119) er Greinagrunnur 2 (2 dálkar). Það er með greinareiningu sem sýnir greinar í megindálknum:


Þannig kemur greinareining inn á hvert fylgiritsflokk, sem getur sýnt staka grein (þegar 1 grein er tengt) eða greinalista (þegar > 1 eru tengdar).


Þegar búið er að stofna síðuna, þá er efnið sett upp í venjulegar greinar, þannig að Ávarp er ein grein, Dagskrá er ein grein og þá verður til greinalisti, líkt og þetta:
Screenshot-2017-02-08-11.48.35

Að gefa út nýtt tölublað

Hér er útgáfuferlið:

Daginn fyrir opnun er flettirit sent til Hugsmiðjunnar. Þar er það uppsett á vefþjón. Mappan með flettirit á að vera með heiti í formi ÁÁÁÁ-MM, t.d. 2020-09 (má líka vera t.d. 2020-0708 fyrir sumarblaðið).

( Leiðbeiningar um flettirit )

Við útgáfu:

  • Staða vefflokksins fyrir nýja tölublað er breytt úr Falinn í Sjálfvirk. Þar með birtast það í tölublaðsyfirlitinu. Vinnslustaðan er svo breytt úr Óvirk í Virk.
  • Á forsíðunni eru tvær síðueiningar sem eru tengdar við tölublaðsvefflokk. Þarf þar að fara inn og breyta tengingunni úr vefflokk núverandi blaðsins í vefflokk nýja blaðsins.

    Sú efri:




    Hér þarf að velja vefflokk fyrir nýjasta tölublaðið efst, og síðan breyta titlinum. Athugið að það þarf að skruna niður til að sjá stillingu fyrir aukafyrirsögn og uppfæra hann:



    Ef enginn titill er skráður í einingunni birtist „kerfisnafnið“ (númer tölublaðs). Til að birta mánaðarheiti og númer tölublaðs er mánaðarheitið skráð sem Fyrirsögn og númer tölublaðs sem Aukafyrirsögn.

  • Sama ferlið á við fyrir síðueininguna sem sýnir umræður og fréttir, en þar þarf aðeins að skipta um vefflokk tölublaðs.
  • Stóru myndinni þarf að skipta út og líka textum tengdir henni. Þetta er gert í stillingum.





    Í stillingarglugganums sem opnist, undir flipanum Mynd 1, er þrennt sem þarf að breyta: mynd, titil, og lýsingu:


    Þeim er skipt út fyrir nýtt, og ýtt á vista.


  • Greinin sem inniheldur listann með flettirit þarf að uppfæra (mögulega gerir Hugsmiðjan það sem hluta af skráningarferlinu á nýja tölublaðinu).

    ATH, með því að birta tvær útgáfur af flettiritum (með og án auglýsinga) flækist ferlið aðeins. Best er að Hugsmiðjan sjái um að koma þeim útgáfum fyrir, svona fyrst um sinn. Skjámyndirnar hér fyrir neðan eiga ekki 100% við þegar um er að ræða tvær útgáfur.

    Farið er inn á /flettirit, smelltu á gula takkinn fyrir greinina og Breyta skráningu:



    Síðan í flipanum Grein, neðarlega við Meginmál, sést takki með <> - það er til að sýna source kóða:



    Þegar smellt er þar, sprettur upp þessi gluggi:



    Hér geturðu bara afritað efsta línuna frá <li> til </li>, breyta innihaldið á þrem stöðum, eins og mynstrið sýnir, og settu nýju afrituðu línuna inn efst og vista. Þar með ætti ný thumbnail-mynd sem vísar á nýja ritið að detta inn á síðuna.

Umsýsla auglýsinga

Auglýsingarnar sem birtast í vinstri dálki þar sem við á, koma úr greinalista á síðunni Auglýsingar.

Til að skrá nýja auglýsingu er nýskráð grein í þeim greinalista. Ef hún á sér hefðbundinn meginmálstexta er hann skráður og vistaður eins og venjulega. Það eina sem þarf er þá heiti greinarinnar og meginmál (sbr. t.d. auglýsingu um AA fundi ) og hægt að gefa hana strax út og birta.

Annar möguleiki er að efni auglýsingarinnar sé í raun PDF skjal. Þá er byrjað á að skrá skjalið í skjalakerfi í skjalaflokki við hæfi (t.d. innan tölublaðs sem hún tengist) en það eru engar tæknilegar kröfur til skjalaflokka. Í skráningu viðkomandi skjals (t.d. gegnum lista yfir skjöl í stjórnkerfinu) má svo afrita vefslóð þess: 


Næst er að stofna greinafærsluna sjálfa. Heiti hennar er hinn sýnilegi titill og gera þarf einhverjar breytingar á innihaldi meginmálsins (sem enginn ætti að sjá). Það gæti t.d. verið textavísun í nýja skjalið, en a.m.k. má reiturinn ekki vera tómur. Útdrátturinn ætti hins vegar að vera tómur til að vera í samræmi við aðrar auglýsingar.

Eftir vistun er greinin komin í greinalistann sem óútgefin.

Farið er í að breyta skráningu hennar og vefslóð PDF skjalsins límd inn í reitinn Framvísunarslóð. Það er þá sú slóð sem notendum er beint á við að smella á greinina (í stað þess að opna meginmálið).


Myndin sýnir: Tilvísunarslóð er skráin á pdf-skjalið. Útdrátturinn er tómur og í meginmálinu (sem trúlega enginn mun sjá) er settur einfaldur textatengill á skjalið. (Ef kerfið kemur með tillögu að „Slug“ má það alveg halda sér).

Þegar sannreynt hefur verið að þetta virki rétt má gefa auglýsinguna út.

Til að taka auglýsingar úr birtingu má t.d. fara í efnisvalmyndina (gulu valmyndina) og taka úr birtingu þar, eða í ritstjórnarskjá og fjarlægja tenginguna þar.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica