10. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Liprir pennar. Hvað ef…? Óskar Örn Óskarsson

Getur sorglegur atburður orðið jákvæður þegar frá líður? Ef hann leiðir til einhvers góðs? Ef hann er ein ástæða þess að ég er til?

Langafi minn, Óskar Bjarni Stefánsson, fæddist í Skagafirði 1901, fyrsta barn Stefáns og Guðrúnar á Syðstu-Grund. Árið 1903 ákveða hjónin að flytja til Kanada í leit að betra lífi. Þau selja bæinn og ætla með Ameríkuskipi frá Sauðárkróki vorið eftir.

Fjölskyldan fær inni hjá bróður Stefáns, Bjarna Jónssyni, og Guðrúnu Ósk konu hans á Sauðárkróki í húsi sem þá, eins og í dag, kallaðist Bjarnabærinn. Bjarni er hafnsögumaður, útgerðarmaður og Drangeyjar-formaður. Hann hefur umsjón með Drangey á Skagafirði stýrir því hverjir síga eftir eggjum, hvar og hvenær. Framámaður í litlu samfélagi.

Bjarni formaður og Guðrún Ósk eru barnlaus. Það hefur ekki verið minna þungbært þá en nú og húsfreyjan tekur miklu ástfóstri við Óskar litla. Lítil systir fæðist líka þennan vetur, Helga.

Vorið 1904 er komið að brottför. Í Sauðárkróksfjöru er bátur sem mun flytja þau í skipið. Guðrún Ósk verður þá skyndilega frávita af sorg. Óskar litli er að fara frá henni. Hún grætur og sárbiður foreldrana að leyfa sér að hafa hann lengur. Báturinn er að fara og tekin er skyndiákvörðun í fjörunni. Óskar verði eftir en sigli ári seinna með skyldfólki. Fjölskyldan geti komið sér fyrir úti og síðan tekið vel á móti honum. Óvænt sigla því Stefán og Guðrún burt til Ameríku án sonar síns, með loforð um að hann sameinist þeim aftur.

Aldrei var staðið við þetta loforð. 

Frá Saskatchewan í Kanada var skrifað heim og kallað eftir Óskari. Bréfin og árin urðu mörg en aldrei varð Bjarni við bón bróður síns. Ekki er vitað hver svörin voru nema að 1909 skrifaði Bjarni að Guðrún væri dáin. Drengurinn væri það eina sem hann ætti eftir.

Ég veit ekki hvort foreldrarnir höfðu samband við yfirvöld. Bjarni formaður var stór maður í litlu sjávarþorpi. Breytti það einhverju? Ekki verður fullyrt um það en slíkar vangaveltur hafa ætið verið hluti þessarar sögu.

Árin liðu, heimsstyrjöld og heimskreppa. Óskar varð ungur maður. Seig í Drangey og lærði tunnusmíði. Eini maðurinn sem ég hef kynnst með starfsheitið beykir, eða tunnusmiður. 

Stefán og Guðrún eignuðust fleiri börn í Kanada. Hjónin dóu bæði úti í Ameríku og langafi hitti foreldra sína aldrei aftur.

Óskar bjó áfram í Bjarnabænum, stofnaði fjölskyldu og eignaðist þrjú börn. Eitt þeirra var Ingibjörg föðuramma mín. Langafi var 73 ára árið 1974 þegar hann ferðaðist loks vestur ásamt dætrum sínum. Hann hitti í fyrsta sinn alsystkini sín, fullorðið fólk. Hann hitti Helgu systur sína í fyrsta skipti síðan í Sauðárkróksfjöru 1904 þegar Óskar var þriggja ára og Helga á fyrsta ári. Hvernig var sá fundur eiginlega?

Enginn afkomenda langafa efar það að Bjarni og Guðrún hafi elskað drenginn og viljað honum vel. Langafa mínum var samt rænt þriggja ára gömlum frá foreldrum sínum. Þau létu hann frá sér og sáu hann aldrei aftur.

Hvað ef staðið hefði verið við loforðið úr Sauðárkróksfjöru? Þá hefði langafi aldrei eignast fjölskyldu á Sauðárkróki. Hefði aldrei eignast ömmu sem hefði aldrei eignast pabba Ég væri ekki til. Dætur mínar væru ekki til. Fjórar kynslóðir af okkur.

Má ég vera sáttur við að barni var rænt fyrir 120 árum? Varla! Hvað á mér að finnast?

Ég veit hvað Ingibjörgu ömmu fannst. Hennar svar var afdráttarlaust: Þetta var ófyrirgefanlegt. Hún vildi innilega að Óskar hefði alist upp hjá foreldrum sínum og systkinum. Þó að hún og við öll værum þá ekki til? Að sjálfsögðu! Amma var ekki í nokkrum vafa. Kannski tekst mér einhvern tímann að verða eins og amma.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica