10. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Dagur í lífi læknis. Röntgenlæknir hættir sér út í sólina. Sigrún Lína Pétursdóttir

06:40 Laumast fram úr án þess að vekja sofandi börnin. Næ svo rétt að kveðja börnin sem eru nývöknuð áður en ég fer út.

07:15 Vinnudagurinn hefst og þá er gott að búa nálægt sjúkrahúsinu en ég er um það bil fimm mínútur á hjólinu upp á Barnasjúkrahús Sylviu drottningar. Fallegur haustdagur í Gautaborg en núna er samt byrjað að vera svolítið kalt á morgnana.

Fyrsta verk dagsins er að ná í uppáhellingu og fer svo með rjúkandi bollann inn á ómver. Venjulega er einn sérfræðilæknir og einn sérnámslæknir sem manna ómun en í dag eru allir sérnámslæknarnir á árlegu sænsku röntgenvikunni sem er þetta árið í Gautaborg. Það eru því ég og Martin Bonnier barnaröntgenlæknir sem sjáum um prógram dagsins. Martin er einmitt handleiðarinn minn í undirsérhæfingunni minni hér á barnaröntgen.

Fyrstu tveir sjúklingar dagsins eru að koma í lifrarsýnatöku hjá mér. Börnin eru svæfð hér á ómstofunni og í dag er það Ása Unnur Bergmann sem svæfir og svo kemur Auður Heiða Guðjónsdóttir, sérfræðingur í meltingar-, lifrar- og næringarlækningum barna, til að taka á móti sýnunum og því þrír íslenskir læknar á stofunni á einum tímapunkti.

Eftir fyrstu sýnatökuna er kominn tími á morgun „fika“ með kollegunum. Mál málanna er röntgenvikan þar sem ég og fleiri kollegar fluttum tilfelli og erindi deginum áður.

Móttakan rúllar áfram. Það heyrist í síðasta sjúklingi fyrir hádegishlé frá næstu stofu þar sem hann er í lungnamynd og kviðarholsyfirliti en virðist ekki vera hrifinn. Ég verð sein i hádegismat. Drengurinn verður svo ljúfur sem lamb hjá mér þegar ég ómskoða hann í fangi pabba síns á meðan mamman heldur uppi símaskjá og við syngjum öllsömul með „Boolibompa“. Það virkar. Hleyp svo út í matsalinn þar sem kollegarnir eru búnir að stilla sér út á bekk í sólinni. Þetta er sennilega síðasti hádegismaturinn útivið í ár en við erum búin að borða reglulega úti frá því í lok mars.

12:30 Hádegisfræðsla þar sem farið er yfir nýleg lærdómsrík tilfelli og Martin sýnir segulómun af hrygg barns með útlimamáttleysi. Segulómunin sýnir hypertrófískar taugarætur sem vekur grun um Charcot-Marie-Tooth-sjúkdóm.

13:00 Held áfram með fjölbreytt prógramm eftir hádegi. Dagarnir á ómun eru yfirleitt mjög skemmtilegir og rannsóknirnar eru fjölbreyttar sem og sjúklingahópurinn en minnsti sjúklingur dagsins er nýfæddur og sá stærsti er nokkrum höfðum hærri en ég. Svo er líka alltaf gaman að fá að leysa krakkana út með gjöfum.

16:15 Vinnudagurinn er að klárast og ég lýk deginum með því að klára að skrifa seinustu röntgensvörin og forgangsraða ómbeiðnum. Þessa vikuna erum við svo heppin að vera með mömmu og pabba í heimsókn þannig að ég þarf hvorki að sækja börnin í leikskólann né undirbúa kvöldmat.

Eftir kvöldmat ætlum við Hrafnkell að sjá Ódysseifskviðu í bíó. Dóttirin er alsæl með kvöldlestur með ömmu og afa en tveggja ára guttinn setur upp skeifu og vill fá að koma með í bíó. Þegar maður er búsettur erlendis með mjög takmarkaðan aðgang að kvöldpössun er alltaf hálfskrítið að fara út bara tvö, eins og maður sé að gleyma einhverju.

Klukkan er að nálgast miðnætti þegar við komum heim en Christopher Nolan stóð fyrir sínu og vel þess virði að verða smá þreyttur daginn eftir. Svo er stuttur vinnudagur á morgun en við klárum klukkan 15:00 á föstudögum.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica