10. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

„Akureyri á sérstakan stað í hjarta mér“

Girish Hirlekar hafði nýlokið sérnámi í svæfingalækningum í heimalandi sínu, Indlandi,
þegar hann réð sig til starfa við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri árið 1976.
Hann ætlaði sér aðeins að vera í hálft ár en svo fór að hann settist að, stofnaði fjölskyldu og lauk í haust fimmtíu ára starfsævi á Íslandi. Girish var gestur Læknavarpsins sem er
aðgengilegt á helstu hlaðvarpsveitum.

Girish var aðeins tíu ára þegar hann var orðinn harðákveðinn í því að leggja fyrir sig læknisfræði. „Ég er fæddur og uppalinn á austurströnd Indlands í borg sem heitir Pune sem er sunnan við Mombai. Ég flutti svo að heiman 15 ára gamall í stærri borg til þess að halda áfram námi. Ég var mikill námsmaður og hlaut ríkisstyrk og gat því séð um bæði grunn- og framhaldsnámið mitt í læknisfræði,“ segir Girish, sem var áttundi hæstur af þeim 200.000 sem þreyttu inntökupróf í læknisfræði samhliða honum. Hann var aðeins 24 ára gamall þegar hann lauk sérnámi í svæfingalækningum.

Frétti af Íslandi gegnum frænda sinn

Girish segir að á þessum tíma hafi verið algengt að nýútskrifaðir indverskir læknar héldu til Bandaríkjanna að námi loknu til að starfa þar og hafi það einnig verið hans stefna. En örlögin ætluðu honum greinilega annað. „Frændi minn var ræðismaður Íslands á Indlandi og gegndi því starfi í 30 ár. Hann hafði nokkrum sinnum komið til Íslands og var duglegur að segja okkur fjölskyldunni frá landinu og sýndi okkur meðal annars myndir af sér með Kristjáni Eldjárn forseta. Heima vorum við einnig með tímarit á borð við Iceland Review og áttum nokkrar íslenskar bækur. Mér þótti þetta allt saman ofsalega spennandi. Eins og áður sagði stefndi ég á að fara til Bandaríkjanna en í millitíðinni skrifaði ég nokkur bréf til íslenskra heilbrigðisstofnana. Eitt þeirra lenti hjá Nikulási Sigfússyni, sem þá var yfirlæknir Hjartaverndar, sem kom því til Þórarins Ólafssonar yfirsvæfingalæknis á Landspítalanum. Hann kom þeim skilaboðum til mín að enginn svæfingalæknir hefði verið við Sjúkrahúsið á Akureyri í tvö ár og fékk ég fljótlega starfstilboð þaðan. Ég sagðist vera á leið til Bandaríkjanna en væri tilbúinn til þess að koma og vera í sex mánuði, sem urðu svo að fimmtíu ára starfsævi á Íslandi,“ segir Girish.

Vissi að hann yrði að læra íslensku til þess að ná til sjúklinganna

Girish hóf störf á Sjúkrahúsinu á Akureyri árið 1976. Fyrstu fjögur árin var hann einn, en frá 1994 yfirlæknir svæfinga- og gjörgæsludeildar og síðar forstöðulæknir deildarinnar allt til ársins 2019. Hann þreytti próf í læknisfræði við Háskóla Íslands og hlaut sérfræðiviðurkenningu á Íslandi árið 1983. Þá starfaði hann einnig í nokkur ár bæði í Svíþjóð og Noregi. Það hljóta að hafa verið mikil viðbrigði fyrir ungan mann frá Indlandi að lenda á Íslandi í desemberlok. „Satt að segja fannst mér það mjög spennandi. Ég var ungur, spenntur og fullur af orku, tilbúinn til þess að takast á við starfið og nýja tíma. Það voru þó vissulega mikil viðbrigði fyrir mig að lenda hér í kolsvarta myrkri, kulda og snjó. Tungumálið var framandi sem og maturinn, veðurfarið og almennir lifnaðarhættir. En ég fann ekki fyrir neinni hræðslu eða kvíða og hefur það sjálfsagt hjálpað að mér var afskaplega vel tekið frá fyrsta degi, sýnt fullt traust, kærleikur og ást,“ segir Girish, sem talar alveg einstaklega góða íslensku. „Ég vissi að ég yrði að læra íslenskuna til þess að ná til sjúklinganna, en það voru ekki margir sem töluðu ensku á þessum tíma. Ég fór ekki í neina kennslu heldur hlustaði mikið á útvarp og horfði á sjónvarp. Fólkið í kringum mig var líka duglegt að kenna mér og leiðrétta mig. Ég var fljótlega farinn að babbla og þetta kom svo bara smám saman.“

Sviðin á þorranum fyrsta almennilega menningarsjokkið

Girish segir fyrsta almennilega menningarsjokkið hafa hellst yfir þegar hann gekk inn í matsal sjúkrahússins dag einn á þorranum. „Mér mætti svo skrítin lykt og þegar ég kom inn lágu lambahausar með opin augun á borðinu. Mér brá svo mikið! Þar var líka hákarl og annar þorramatur. Ég borðaði nú bara kartöflurnar þann daginn en hægt og rólega lærði ég að borða allan íslenskan mat og hreinlega gleymdi indverskum mat um tíma.“

Girish kynntist konu sinni, Önnu Gunnarsdóttur, árið 1977 en hún starfaði þá sem sjúkraliði á sömu deild og hann. Eiga þau saman tvö börn og fimm barnabörn en auk þess á hann fósturdóttur og þar tvö barnabörn „ Anna kemur úr stórri fjölskyldu á Akureyri sem gaman er að tilheyra og þar var mér einnig afskaplega vel tekið. Hún var mín stoð og stytta þar sem ég var alltaf í vinnunni og lá ábyrgð á heimili og börnum því mikið á hennar herðum á þessum árum,“ segir Girish.

Verðum að spila með tækninni ekki hræðast hana

Þau hjónin fluttu svo í höfuðborgina árið 2021 og settust að á Seltjarnarnesi. Girish réð sig til starfa hjá Skurðstofunum í Lágmúla þar sem hann var allt þar til hann hætti störfum í haust. Hvað er það helst sem stendur upp úr þegar hann lítur yfir ferilinn? „Það hefur orðið alveg gífurleg þróun í svæfingalækningum á þessum tíma, í svæfingalyfjum, verkjalyfjameðferð, og deyfingaraðferðum. Svæfingin er orðin miklu öruggari en hún var. Svo ruddu tölvurnar sér til rúms. Við vorum fljót að tileinka okkur nýja tækni á Sjúkrahúsinu á Akureyri og fylgdumst vel með. Ég man þegar fyrsta tölvusneiðmyndatækið kom á Landspítalann. Yfirlæknirinn okkar á Akureyri óskaði eftir sambærilegu tæki en það var bara hlegið að honum, það þótti alveg galin hugmynd að slíkt fengist norður. Nú er þetta nánast í öllum stöðum og þykir alveg sjálfsagt. Samtímis varð mikil þróun í skurðlækningum, sem í dag eru svo tæknivæddar og aðallega orðnar róbótalækningar, þannig að umbyltingin hefur verið gífurleg,“ segir Girish.

Aðspurður hvort Girish telji lækna uggandi um að gervigreindin taki hreinlega yfir læknisfræðinga segir hann: „Nei, það verður aldrei. En ég man eftir því þegar ég var í Svíþjóð og fyrstu sjálfvirku blóðþrýstimælarnir voru að koma kringum 1980. Svæfingahjúkrunarfræðingar vildu ekki sjá þá og hræddust að missa tengslin við sjúklingana við það að hætta að leggja höndina á púlsinn. En svona verður þetta alltaf. Það kemur ný tækni og við verðum bara að spila með og nýta okkur hana.“ Girish segir sér ekki hafa þótt erfitt að hætta að vinna. „Ég er mjög sáttur og fannst bara nóg komið. Ég get litið stoltur um öxl og ætla að fara að njóta lífsins. Ég er afar stoltur af því að hafa verið hluti af spítalanum og svæfingadeildinni á Akureyri þar sem fyrsta svæfingin fór fram árið 1856. Ég er líka fullur þakklætis öllum mínum vinnufélögum og sjúklingum og samfélaginu á Akureyri. Þessi 44 ár fyrir norðan eru stór partur af mínu lífi og Akureyri á sérstakan stað í hjarta mér. Þetta allt hefur verið alveg ógleymanlegt ævintýri og ég á í raun engin orð til þess að lýsa því.“

„Þetta hafa verið örlögin mín“

Saga Girish er um margt einstök. En hefur hann einhvern tímann leitt hugann að því hvernig hún hefði verið hefði hann búið áfram á Indlandi? „Já, ég hef gert það. Það hefði farið einhvern veginn, en auðvitað veit ég ekki hvernig. Það þýðir ekkert að vera að velta sér upp úr því. Þetta hafa verið örlögin mín og ég hef gefið mig að fullu í þetta og það hefur gengið vel,“ segir Girish. En trúir hann á að lífið sé allt skrifað fyrir okkur, að allt sé eins og það á að vera? „Já, ég held það. Annars, hugsaðu þér. Lítill strákur frá Indlandi kemur til Íslands, stofnar fjölskyldu, er tekinn svona vel inn í samfélagið og á farsæla starfsævi. Það getur bara ekki betra verið.“

Fær gæsahúð þegar hann les Laxness

Girish hefur engar áhyggjur af því að sér eigi eftir að leiðast nú þegar hann er hættur að vinna. En hvað er það sem hann ætlar að taka sér fyrir hendur? „Maður þarf að fylgjast vel með heilsunni, það er númer eitt, tvö og þrjú. Ég geng mikið og legg einnig stund á jóga. Ég hef einnig gaman af lestri og á margt ólesið, bæði á íslensku og indversku,“ segir Girish og þegar hann er spurður nánar út í hvaða íslenski rithöfundur sé í uppáhaldi stendur ekki á svari: „Það er Halldór Laxness. Mér þykir alveg óskaplega gaman að lesa um hvernig sveitalífið var áður fyrr og Halldór Laxness lýsir því alveg sérstaklega vel, maður fær alveg gæsahúð við að lesa það. Svo langar mig að ferðast meira um Ísland, já og heiminn allan, við eigum margt óséð. Svo hef ég núna tíma til þess að sinna börnum og barnabörnum. Það verður nóg að gera og tíminn líður alveg rosalega hratt.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica