10. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Aðdragandi að stofnun Lækningaminjasjóðs Jóns Steffensen

Frá Bjarna Pálssyni til Nesstofu

Friðrik fimmti, Danakonungur, skipaði Bjarna Pálsson (1719-1779) landlækni árið 1760. Í tengslum við skipan hans var Nesstofa byggð árin 1759-1762. Hér hefst opinber heilbrigðisþjónusta á Íslandi.

Bjarni sinnti læknisstörfum og kennslu læknanema. Orðspor hans byggist líka á vísindasamstarfi hans og Eggerts Ólafssonar við gerð Ferðabókar þeirra sem fyrst kom út 1772. Upphaf samstarfs Íslendinga og Dana í raunvísindarannsóknum.

Starfsemi landlæknis í Nesi flutti til Reykjavíkur uppúr 1830. Læknaskóli var formlega stofnaður 1876 og tengdist Háskóla Íslands við stofnun hans árið 1911.

Á tímabilinu frá aldamótunum 1900 fram til okkar daga verða mjög stórstígar framfarir í læknisfræði. Jón Steffensen prófessor (1905-1991) lifði þessar breytingar. Hann skildi vel gildi þess að varðveita þekkingu á lækningum fyrri alda. Áhugi hans á lækningaminjasafni var vakinn. Hann sinnti uppbyggingunni af miklum stórhug meðfram læknakennslu og rannsóknum. Í huga Jóns kom aldrei annað til greina en að Nesstofa yrði sá ás sem safnið snerist um. Safnmunir voru að mestu leyti geymdir í gömlum útihúsum í túninu suður af og í Nesstofu.

Nesstofa hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns frá 1979 en síðasti íbúi hússins lést 1997. Húsinu hefur nú verið komið í sem næst upprunalegt ástand eftir tillögum Þorsteins Gunnarssonar arkitekts. Þar var til skamms tíma lítið safn muna tengdra lækningum í umsjá Þjóðminjasafnsins.

Draumurinn um Lækningaminjasafn

Jón Steffensen arfleiddi Læknafélag Íslands að eignum sínum. Skilyrt var að and-virði eigna rynni til frágangs og innréttingar húsnæðis fyrir lækningaminjasafn.

Með gjafagjörningi frá 1990 afhenti Læknafélagið ríkissjóði eignir dánarbúsins sem skyldi ráðstafað í þágu Lækningaminjasafns í samræmi við erfðaskrána.

Undirbúningur að byggingu lækningaminjasafns hófst 1997 með aðkomu Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur, Seltjarnarnesbæjar og menntamálaráðuneytis.

Með samningi árið 2007 tók Seltjarnarnesbær að sér að reisa byggingu lækn-ingaminjasafns á safnasvæði við Nesstofu. Rann allt fé frá gjafagjörningi Jóns til verkefnisins, auk framlaga frá læknafélögunum, menntamálaráðuneyti og Þjóð-minja-safni. Byggingarframkvæmdir hófust, en stöðvuðust þegar byggingin var orðin rúmlega fokheld árið 2011. Seltjarnarnesbær sagði sig frá samningnum um uppbyggingu safnsins í árslok 2012.

Nokkru áður var keypt iðnaðarhús við Bygggarða 7 sem bráðabirgðalausn til að varðveita safnmuni Jóns, greitt með fé gjafagjörningsins.

Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, forstöðukona safnsins, vann við flokkun þess til ársloka 2012.

Næstu ár var leitað lausna til að gera lækningaminjasafn að veruleika eins og kom fram á aðalfundi LÍ 2013:

„Stefnt er að því að koma á fót safni á sviði heilsuvísinda, lýðheilsu og lækningaminja með tvíþætta starfsemi: sem hefðbundið safn og sem tæknivædd upplýsingaveita um lýðheilsu og heilsuvísindi.“

Þetta kallaði á samvinnu við fleiri aðila eins og Háskóla Íslands, Þjóðminjasafn, Náttúruminjasafn og Listasafn Íslands. Auk þess mætti setja upp gagnvirkar sýningar á starfsemi mannslíkamans, erfðafræði sjúkdóma, lýðheilsu og jafnvel með víðtækara fræðasvið.

Horfið var frá því að húsið hýsti ein-ungis safn lækningaminja. Sýningar á lækningaminjum og sögu yrðu fyrst og fremst á stafrænu formi en sýningar á eldri safnmunum mætti setja upp í Nesstofu.

Þak hússins er útsýnispallur, kjörstaður fyrir stjörnuskoðun og upplifun norðurljósa að vetrarlagi. Urtagarðurinn er í nágrenninu en þar hefur verið ræktað upp safn lækningajurta.

Þema safnsins yrði: Maður – Náttúra – Menning

Ameríkumaður búsettur hér, áður einn af framkvæmdastjórum Disney, leiddi hugmyndavinnuna um tíma og kynningar fyrir fjármálaráðherra, menntamálaráðherra og forsvarsmenn ofangreindra safna. Tendraðist upp mikill áhugi meðal ráðamanna sem skilaði sér þó ekki til að tryggja fjárframlög.

Hann nýtti sér tengsl sín í Bandaríkjunum við stjórnendur safna til að fá hugmyndir og mögulega fjárstyrki. Meðal ann-arra var stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg. Hann hreifst af hugmyndinni, sem skilaði sér í uppsetningu á stórri vídeó-tökuvél inni á miðhálendinu, sem snerist einn hring á sólarhring og sendi út á Facebook í heilt ár.

Ágætis landkynning en engir peningar.

Nesstofa og baráttan um arfleifðina

Í október 2016 undirrituðu forsvarsmenn læknafélaganna, Seltjarnarnessbæjar og Listasafns Íslands viljayfirlýsingu um samstarf til að ljúka byggingu hússins á þeirri forsendu að ríkissjóður keypti fasteignina. Engu varð um þokað. Má um það kenna pólitískum sviptingum næstu árin, með tíðum stólaskiptum ráðherra. Með nýjum ráðherra fjaraði undan áhuga á lækningaminjasafni innan menntamálaráðuneytisins. Sem dæmi um það þá höfðum við beðið um fund með ráðherra árið 2018. Svarið var alltaf að ráðherra væri mjög upptekinn og við kæmumst fljótlega að. Við erum ennþá á biðlista!

Eflaust hefur sumum fundist hugmyndir okkar draumkenndar en ekki áttað sig á því að nútíma safn getur verið staðsett í tölvugerðu skýi.

Hugmyndir spruttu upp í stjórnsýslunni um að hús Lækningaminjasafns myndi henta Náttúruminjasafninu. Þrátt fyrir andóf okkar og læknafélaganna þá varð það ákvörðun ráðherra að taka yfir bygginguna í Nesi fyrir Náttúruminjasafn og endurgreiða læknafélögunum þeirra framlag.

Um nokkurt skeið hafði Nesstofa verið opin nokkra daga á sumri þar sem settar voru upp sýningar á gömlum lækningamunum. Þessu var hætt með þeim rökum að húsið þyldi ekki álagið. Samstarf við Þjóðminjasafnið um sýningarhald í Nesstofu varð æ stirðara. Var því borið við að húsið væri gamalt og viðkvæmt þó að nýuppgert væri. Sagt var að gólfin þyldu ekki átroðning sýningargesta. Þetta var furðulegur fyrirsláttur því ekki voru sýningar þar fjölsóttar.

Árið 2019 spurðist út að verið væri að ljúka samningum um sýningu í Nesstofu í tilefni af 75 ára afmælis lýðveldisins. Í upphafi mátti skilja að sýningin yrði helguð vísindastarfi Bjarna Pálssonar og Eggerts Ólafssonar næstu fjögur ár. Að þeim tíma loknum átti að koma tækifæri fyrir lækningaminjasafnið.

Seinna kom önnur mynd í ljós. Íslendingar og Danir skyldu taka höndum saman um vísindasamstarf á sviði náttúru og menningar á norðurslóðum. Markmiðið væri að efla samvinnu vinaþjóðanna á sviði vísinda og mennta og heiðra „margra alda farsæla samvinnu“ (sic). Nesstofa skyldi helguð dansk-íslensku fræðasamstarfi, táknmynd fyrir samvinnu Dana og Íslendinga.

Fjórum árum seinna varð okkur ljóst að ríkisstjórn lýðveldisins hafði þegar á árinu 2019 ákveðið að Nesstofa yrði helguð þessu samstarfi vinaþjóðanna til framtíðar. Samstarfsaðilar eru Háskóli Íslands og Kaupmannahafnarháskóli, Þjóðminjasafnið og Náttúruminjasafn Íslands.

Hvergi var minnst á sögu læknisfræð-innar né áratuga baráttu við að koma á fót lækningaminjasafni. Gjafagjörningur Jóns Steffensen með sínum skilyrðum var fokinn út um glugga í ráðuneytinu eða lentur í pappírstætara.

Þegar þetta lá ljóst fyrir sendi formaður LÍ bréf til menntamálaráðherra í árslok 2023 þar sem þessum gjörningi var harðlega mótmælt með skýrum og óyggjandi rökum. Svar hefur ekki borist.

Seltjarnarnes keypti húsið í Bygggörðum 7 árið 2018 og afhenti Þjóðminjasafninu kaupverðið. Sá gjörningur stenst ekki skilyrði dánargjafar Jóns, því munirnir eru í geymsluhúsnæði fyrir sunnan Hafnarfjörð, illa aðgengilegir og ekki til sýnis almenningi.

Ríkisendurskoðun hefur í tvígang staðfest þetta. Forsætisráðuneytið mótmælti niðurstöðu Ríkisendurskoðunar og benti á að lækningaminjar væru til sýnis í Nesstofu. Svo hefur ekki verið um lengri tíma og verður ekki. Menntamálaráðuneytið benti einnig á í svari til Ríkisendurskoðunar að eftir standi að ráðstafa söluandvirði Bygggarða, sem var kr. 97 milljónir í ársbyrjun 2017, til uppbyggingar lækningaminjasafns. Þessir peningar kæmu sér vel í þeim sjóði sem nú hefur verið stofnaður.

Nýr kafli: Lækningaminjasjóður Jóns Steffensen

Með stofnun Lækningaminjasjóðs Jóns Steffensen hefst nýtt tímabil. Sjóðurinn er almannaheillasjóður þannig að framlög til hans eru skattfrjáls. Stofnfé sjóðsins er þær fjárhæðir sem læknafélögin lögðu til byggingarinnar. Innan tíðar verða kynntar starfsreglur sjóðsins um styrkveitingar. Loksins gefst tækifæri til að styðja við rannsóknir á sögu læknisfræði á Íslandi og nýta nútímatækni til sýninga og fræðslu um fortíð, nútíð og framtíð lækninga.

Vefsíða stafræns lækningaminjasafns gæti verið staðsett í Nesstofu. Þar með væri skilyrðum dánargjafarinnar fullnægt. Lækningaminjasafn Jóns Steffensen í netskýi.

Þakkir til þeirra mörgu sem hafa lagt hönd á plóg í störfum undirbúningsnefnda Læknafélags Íslands, þau eru Óttar Guðmundsson, Jón Jóhannes Jónsson, Steinn Jónsson, Lilja Sigrún Jónsdóttir, Guð-mundur Þorgeirsson, Sigurður Guðmundsson, Arna Einarsdóttir, Steinunn Þórðardóttir og ekki síst, Dögg Pálsdóttir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica