09. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Vill leggja sérstaka áherslu á samstarf milli þjónustustiga
Einar Þór Þórarinsson heimilislæknir var um mánaðamótin ráðinn sem annar tveggja yfirlækna í hálft starf hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, ÞÍH. Hann segir í viðtali við Læknablaðið að gæða- og umbótastarf hafi lengi verið sér hugleikið og sér mörg tækifæri til að efla samræmt verklag og samvinnu innan heilsugæslunnar.
Einar Þór tekur við af Jóni Steinari Jónssyni heimilislækni sem gegnt hefur starfi yfirlæknis hjá ÞÍH um árabil og fór á eftirlaun í sumar. Jón Steinar lét hann vita í vor að staðan væri að losna og Einari Þór leist vel á og sótti um og var hann ráðinn.
„Ég hef alltaf haft áhuga á gæða- og umbótastarfi,“ segir hann. Undanfarið hefur hann meðal annars starfað í litlu hlutastarfi hjá Verkefnastofu HH sem kemur að útgáfu gæðaskjala og öðrum umbótaverkefnum. Einar Þór útskrifaðist úr læknisfræði árið 2001 og hóf sérnám í heimilislækningum hér á landi þegar íslenska heimilislæknaprógrammið var enn á fyrstu árum sínum. Hann fluttist til Svíþjóðar árið 2006, lauk sérnámi þar og starfaði sem heimilislæknir í Uppsölum frá 2008-2014. Síðustu árin starfaði hann á einkarekinni heilsugæslustöð í örum vexti þar sem mikil áhersla var lögð á samvinnu. Hann segir reynsluna af því að taka þátt í uppbyggingu og þróun slíks starfs hafa verið mjög lærdómsríka.
Eftir heimkomuna 2014 hóf hann störf á Heilsugæslunni á Seltjarnarnesi og varð síðar fagstjóri lækninga. Árið 2022 tók hann tímabundið við starfi svæðisstjóra á Heilsugæslunni Efstaleiti og gegndi því til hausts 2023. Hann starfar nú á Heilsugæslunni í Mjódd og mun halda því áfram samhliða starf-inu hjá ÞÍH.
Einar Þór segir mikil-vægt að halda áfram þeirri vinnu sem er í gangi hjá ÞÍH við að móta gæðaviðmið fyrir heilsugæsluna, byggja upp gæðahandbók og styðja við innleiðingu samræmdra verkferla. Hann vill jafnframt skoða hvernig hægt sé að fá sérnámslækna í heimilislækningum virkari inn í slíka vinnu. „Þannig geta þeir haft áhrif á sitt framtíðarvinnuumhverfi,“ segir hann.
Einar Þór hyggst einnig taka upp þráðinn í verkefnum sem Jón Steinar leiddi, meðal annars STRAMA-verkefninu sem miðar að skynsamlegri notkun sýklalyfja og að sporna gegn þróun sýklalyfjaónæmis.
Eitt þeirra málefna sem Einar Þór vill leggja sérstaka áherslu á er samstarf milli þjónustustiga heilbrigðiskerfisins. Hann telur lengi hafa verið þörf á að skýra betur mörkin á milli fyrsta, annars og þriðja stigs þjónustu og skilgreina hvaða verkefni eigi heima í heilsugæslunni. Þar geti ÞÍH gegnt mikilvægu hlutverki fyrsta stigs þjónustunnar. Hann bendir jafnframt á að ÞÍH þjóni allri heilsugæslu á landinu, óháð staðsetningu eða rekstrarformi, og öll gæðaþróun þurfi að taka mið af þeim fjölbreytileika.
