09. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Vill efla hlutverk ÞÍH á sviði kennslu, rannsókna og vísindastarfs

Anna Bryndís Blöndal tók nýverið við sem forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH). Hún kom þó ekki ný inn í starfsemina, enda hafði hún starfað hjá ÞÍH frá árinu 2019. Hún segir í viðtali við Læknablaðið að meginverkefnið verði áfram að styðja fagfólk, stuðla að samræmdri og faglegri þjónustu um allt land og efla þróun, gæði, kennslu og vísindi innan heilsugæslunnar.

 

„Þetta á bara miklu betur við mig en mig grunaði,“ segir Anna Bryndís um forstöðumannsstarfið. Hún er með doktorspróf í lyfjafræði og segir það höfða sérstaklega til sín að vinna með fjölbreyttum fagstéttum, þróa ný verkefni og horfa til framtíðar.

Anna Bryndís segir ekki hafa orðið miklar stefnubreytingar með nýjum forstöðumanni. Frekar hafi verið lögð áhersla á að gera starfsemina sýnilegri og skýra betur hlutverk ÞÍH. „Við höfum reynt að vera sýnilegri þannig að fólk átti sig betur á hvað við gerum.“

Kjarninn í starfseminni sé að styðja fagfólk í heilsugæslu og vinna að samræmdri þjónustu um allt land. Þar skipti búseta fólks ekki máli. „Kona sem sækir mæðravernd í litlu bæjarfélagi á þannig að geta treyst því að þjónustan sé byggð á sama faglega grunni og annars staðar. Sama gildir um aðra þjónustu heilsugæslunnar,“ segir hún.

 

 

Leiðbeiningar þurfi að nýtast í klínísku starfi

Anna Bryndís segir eitt mikilvægasta einkenni ÞÍH vera náin tengsl við klínískt starf. Margir starfsmenn hennar vinni jafnframt í heilsugæslu eða hafi langa reynslu þaðan. Þessi tenging sé mikilvæg til að tryggja að fagleg vinna ÞÍH taki mið af raunverulegum aðstæðum og þörfum í heilsugæslunni.

„Það er auðvelt að búa til leiðbeiningar en þær þurfa líka að nýtast í klínísku starfi. Þessi tenging við klíníska starfið er okkur mjög mikilvæg.“ Hún fagnar því að Embætti landlæknis muni efla vinnu við klínískar leiðbeiningar fyrir heilbrigðiskerfið í heild. Hlutverk ÞÍH sé síðan meðal annars að styðja við innleiðingu þeirra í heilsugæslunni um allt land. Þar sé ekki um annaðhvort-eða að ræða, heldur samstarf.

Anna Bryndís vill jafnframt efla hlutverk ÞÍH á sviði kennslu, rannsókna og vísindastarfs. Þar fer meðal annars fram sérnám í heimilislækningum og framhaldsnám í heilsugæsluhjúkrun, auk þess sem miðstöðin styður við rannsóknir og gæðastarf.

 

Hún segir dreifða uppbyggingu heilsugæslunnar gera slíka sameiginlega tengingu sérstaklega mikilvæga. Einstakar heilsugæslustöðvar, ekki síst þær minni, hafa eðli málsins samkvæmt takmarkaðri möguleika á að byggja upp rannsóknarumhverfi hver fyrir sig. Þar hefur ÞÍH mikilvægu hlutverki að gegna við að tengja saman fagfólk, byggja upp þekkingu og styðja við rannsóknir og faglega þróun í heilsugæslunni. „Við viljum að heilsugæslan virki vel, en líka að heilbrigðiskerfið í heild virki vel. Við eigum að vera öflug saman,“ segir Anna Bryndís að endingu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica