09. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Nýjar leiðir í meðferð offitu
Efnaskipta- og offituteymi Reykjalundar, sem er leitt af Guðrúnu Höskuldsdóttur innkirtlalækni, hefur undanfarið prófað meðferðarúrræði til að mæta betur ólíkum hópum einstaklinga með offitu. Síðastliðið vor var boðið upp á sérsniðið úrræði fyrir unga fullorðna. Teymið hefur einnig aðlagað meðferðina fyrir pólskumælandi einstaklinga. Við ræddum nýju úrræðin og þróun meðferðarinnar við Hjalta Kristjánsson, íþróttafræðing og formann teymisins, og Svövu Björk Jónasdóttur, hjúkrunarfræðing.
Hvers vegna hefur teymið verið að endurskoða meðferðina?
Hjalti: „Offita er langvinnur sjúkdómur sem þarfnast einstaklingsmiðaðrar meðferðar. Þarfir fólks eru ólíkar og sama meðferðarform hentar ekki öllum. Undanfarið höfum við sérstaklega horft til ungra fullorðinna með alvarlega offitu, félagslega einangrun og í sumum tilfellum taugaþroskaröskun. Við prófuðum að hafa minni hópa og styttri lotur, með áherslu á félagslega þátttöku, næringu, virkni í daglegu lífi og jákvæða reynslu af hreyfingu.“
Svava: „Já, við höfum einnig aðlagað meðferðarúrræði fyrir pólskumælandi einstaklinga. Með styrk frá Embætti landlæknis gátum við þýtt fræðsluefni teymisins á pólsku og fengið til liðs við okkur frábæran túlk. Þetta var teyminu mjög lærdómsríkt og við urðum vör við mikla uppsafnaða þörf fyrir heilbrigðisþjónustu hjá þátttakendum. Við lögðum því áherslu á að efla heilsulæsi og skilning á offitu og meðferð hennar. Hópmeðferðin reyndist vel og þátttakendur sögðu það hjálplegt að vera í hópi með öðrum pólskumælandi einstaklingum í sambærilegum aðstæðum.“
Hvað viljið þið að læknar hafi helst í huga varðandi tilvísanir til ykkar og hvert stefnir teymið?
Hjalti: „Að bíða ekki of lengi. Við viljum gjarnan sinna yngri einstaklingum og þeim sem eru að greinast með fylgisjúkdóma. Við metum allar tilvísanir og þær hjálpa okkur líka að þróa þjónustuna áfram þar sem þörfin er mest.“
Svava: „Ef við sjáum að ákveðnir hópar þurfa önnur úrræði, höldum við áfram að aðlaga þjónustuna, samhliða því að þróa og efla hefðbundna meðferð.“
Nánar má lesa um teymið í nýlegri umfjöllun European Association for the -Study of Obesity:
https://easo.org/meet-the-adult-coms--reykjalundur-rehabilitation/
