09. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Læknafélags Íslands stofnar fagráð
Á síðasta aðalfundi Læknafélags Íslands (LÍ), í október 2025, kom fram áhugi félagsins á að koma frekar að faglegum málum læknisfræðinnar.1 Erlend læknafélög hafa ekki einungis sinnt stéttar-félagshluta viðkomandi félags held-ur einnig faglega hlutanum og lagt fram ráðleggjandi fagleg atriði til lækna eins og sérfræðingar menntaðir erlendis frá þekkja vel til, bæði vestanhafs og austan. Þar hafa sérgreinafélögin haft skýrt hlutverk bæði hvað varðar marklýsingar og uppsetningu sérmenntunar, vísindavinnu og faglegar ráðleggingar við klíníska vinnu, ásamt fleiru. LÍ hefur nú stofnað fagráð, sem mun vinna í nánu samstarfi við sérgreinafélög lækna á Íslandi. Í erindisbréfi Fagráðs LÍ kemur fram að LÍ hafi langa reynslu af hlutverki sínu sem stéttarfélag og nokkuð skýrt verklag sem byggir á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80 frá 1938. Faghlutverkið hafi hins vegar verið unnið eftir tilfallandi verkefnum. Faghlutverkið er nú verið að efla með stofnun Fagráðs LÍ sem er skipað fulltrúum frá hverju sérgreinafélagi lækna. Fagráðið hefur nú verið stofnað og hélt sinn fyrsta fund í júní síðastliðnum.
Formaður nýstofnaðs Fagráðs LÍ er Bjarni Viðar Geirsson, sem situr í ráðinu fyrir hönd Skurðlæknafélags Íslands. Aðrir stjórnarmenn eru Þórunn Halldóra Þórðardóttir blóð- og krabbameinslæknir, Sigrún Ásgeirsdóttir svæfinga- og gjörgæslulæknir, Lovísa Kristín Sigurjónsdóttir barna- og unglingageðlæknir, Arnar Þórisson röntgenlæknir, Lilja Arnardóttir heimilislæknir og Matthildur Sigurðardóttir fæðinga- og kvensjúkdómalæknir.
Samkvæmt upplýsingum Læknablaðsins munu frekari upplýsingar um Fagráðið, erindisbréf þess og fleira finnast á heimasíðu LÍ.
Heimild: Læknablaðið 11. tbl. 111.árg. 2025: 490-491
