09. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Dagur í lífi læknis. Kaffibolli, kardíómyópatía og kvöldrútína

Klukkan er 6:00 í Gautaborg ég vakna yfirleitt á undan vekjaraklukkunni. Það er gott að fara niður og fá sér kaffibolla áður en stelpurnar vakna. Nú er að komast á ákveðin rútína aftur eftir sumarleyfi. Yngri dóttir okkar þurfti að vera á sumarleikskóla þar sem báðir foreldrar þurftu að vinna á lokunartíma hefðbundinna leikskóla. Það þurfti töluvert meiri sannfæringarkraft og fortölur við að koma stelpugreyinu af stað á þennan ókunnuga leikskóla.

Í dag er þetta frekar auðvelt, við hjálpumst að við að græja stelpurnar. Edda þarf að mæta á morgunfund á gjörgæslunni klukkan 7:30. Ég mæti klukkan 8:00 svo það er mitt hlutskipti að skila stelpunum í skóla og leikskóla.

Í þetta sinn var mikið spjallað yfir morgunmatnum, bursta tennur, græja sig út – gleymdi sólarvörninni, sný við í dyragættinni. Sletti sitt hvorri lúkunni í andlit og á framhandleggi með ákveðinni mótspyrnu.

Drífum okkur á hjólin og hjólum af stað. Ég þarf að taka aukalega á því þessa 8 kílómetra til að mæta á réttum tíma á morgunfund á Sahlgrenska.

Vakthafandi sérnámslæknir fer yfir innlagnir næturinnar, 3 STEMI. Eitt tilfelli af manni með kardiomyopatíu og VT--storm sem ekki svaraði meðferð hjá okkur á hjartadeildinni. Alltaf svolítið flókið að ráða niðurlögum þeirra sem ekki eru með iskemískt ör í sleglinum.

Ég er með tvær hjartabrennslur fyrir hádegi, fyrsta reyndist vera dæmigerð AVNRT hjá ungum manni. Seinni aðgerð var lungnavenufrysting hjá eldri sjúklingi með gáttatif. Þessi aðgerð er barn síns tíma og við erum búin að innleiða nýrri tækni sem ég hef komist í góða rútínu með, PFA. Hins vegar er það vandamál að við þurfum að svæfa sjúklinginn fyrir þá meðferð. Svæfingalæknar vaxa víst ekki á trjánum og þurfum við að komast af án þeirra að mestu leyti yfir sumarmánuðina.

Ég er búinn með þessi tvö inngrip, þau gengu áfallalaust fyrir sig. Hádegismatur tekinn úti í sólinni, hitti fyrir Eddu með hinum hetjunum á gjörgæslunni. Allir léttir á bárunni, fórum yfir sumarfríin, alltaf yfirvegaður bragur á þessum gjörgæslulæknum.

Eftir hádegi sest ég niður með kollegum á teyminu og við komumst að þeirri niðurstöðu að við munum gera tilraun til brennslu í vinstri slegli hjá þessum manni með VT-storm. Við gerum það innan tveggja daga, gjörgæslan heldur honum stabílum þangað til. Eftir þetta er töluvert magn af tilvísunum og ráðgjafabeiðnum sem bíða mín frá kollegum sem vilja ráðgjöf varðandi alls kyns hjartsláttartruflanir. Það er enn ákveðinn hægagangur í brennslum, við erum ekki komin í full afköst í lok sumarsins, annars hefðu brennslur dagsins orðið fleiri.

Deginum lýkur formlega kl. 16:45. Eftir tæp 8 ár er ég enn að reyna að venjast því að vinna svona lengi. Þetta var sérstaklega erfitt þegar stelpurnar okkar voru minni, næstum 10 tímar á leikskóla voru áskorun fyrir okkur öll.

Við búum í dásamlegu hverfi, Kålltorp, og á blíðviðrisdögum sem þessum erum við lengi á leið heim. Setjumst í almenningsgarðinn, Renströmska, og leyfum stelp-unum að leika með vinum. Þegar heim er komið græjum við pasta en stelp-urnar þurfa að fara í bað því þær eru skítugar upp fyrir haus eftir leik í trjám og vatnsbrunni. Edda þarf að yfirfara vísindagrein sem hún ætlar að fá birta í tímariti. Stelpurnar sofna seint eins og vanalega. Við reynum að komast yfir eitthvað af heimilisverkunum um leið og við undirbúum næsta dag á hamstrahjólinu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica