09. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Bréf til blaðsins. Samskipti á vinnustöðum
Hér er leitast við að skapa grundvöll að sameiginlegum skilningi á þeim samskiptavandamálum sem upp koma á vinnustöðum.
Birtingarmyndir á faglegum ágreiningi og persónulegum á vinnustöðum má skoða með hjálp stjórnunarfræða, siðfræði og gervigreindar.
Við úrlausn flókinna verkefna er teymisvinna ómissandi. Patrick Lencioni segir hinn kjörna liðsmann teymis (the ideal team player) vera allt í senn auðmjúkan, metnaðarfullan og góðan í samskiptum.
Faglegur ágreiningur á vinnustað lýsir af fagmennsku, auðmýkt og góðri samskiptahæfni. Persónulegur ágreiningur á vinnustað bendir til ófagmennsku, hroka og skertrar samskiptafærni.
Fagleg samskipti
Faglegur ágreiningur á vinnustöðum er jákvæður og grundvallast á trausti og sálrænu öryggi. Meðlimir teymis þora að tjá hug sinn af háttvísi (kurteisi og siðprýði). Unnið er að sameiginlegu markmiði. Samskipti eru skilvirk. Gagnkvæm virðing ríkir og samvinna. Gildi vinnustaðar ríkja.
Besta lausnin er gripin hvaðan sem hún kemur, enda heldur fólk sig við það sem það veit best og innsæið segir því. Lægsta röddin getur komið með besta svarið. Gagnkvæmur stuðningur er til staðar og sameiginleg skuldbinding teymis gagnvart góðri niðurstöðu.
Ófagleg samskipti
Það er neikvætt þegar faglegur ágreiningur á vinnustöðum hrapar niður á persónulegt plan. Það er ófaglegt. Við tökum að meiða hvert annað, jafnvel ómeðvitað. Sálrænt öryggi og háttvísi hverfa. Í stað samvinnu ríkir samkeppni, togstreita og jafnvel klíkumyndun. Baktal og undirferli lama teymisvinnu. Gildi vinnustaðar víkja.
Gagnkvæm virðing dofnar. Vantraust gerir allt að vandamálum. Lausnir hætta að streyma fram. Fólk hættir að tjá hug sinn af ótta við gagnrýni og yfirgang. Innsæi lamast. Háværasta röddin ræður för. Þessi staða leiðir til slæmra ákvarðana. Skuldbinding teymis gagnvart niðurstöðu verður veik.
Gildi Landspítala
Gildi Landspítala eru umhyggja, fagmennska, öryggi og framþróun. Þessum gildum verður ekki náð án heilinda, ábyrgðar, virðingar, góðs brjóstvits og skapandi innsæis. Þjónandi forysta laðar þessa eiginleika fram. Þegar gildin ráða för eykst starfsánægja, teymin styrkjast, afurðir þeirra batna, sem og samvinna. Traust og sálarænt öryggi vaxa í anda faglegrar vinnustaðamenningar.
Heimildir
Bredeson, D, Goree, K. Ethics in the Workplace 3. edition. South-Western: Cenage Learning, 2012.
Greenleaf, RK. Servant Leadership. A Journey into the Nature of Legitimate Power & Greatness. New Jersey: Paulist Press, 2002.
Íslensk orðabók. Ritstj. Mörður Árnason. Reykjavík Edda, 2002.
Lencioni, P. The Ideal Team Player. How to Recognize and Cultivate the Three Essential Virtues. New Jersey: John Wiley & Sons, 2016.
