09. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Bókin mín. Bækur sem sitja eftir
Nú þegar við erum öll orðin háð símunum og skjáunum í lífum okkar er fátt betra en að setjast niður með góða bók og gleyma stað og stund.
Stoner eftir John Williams segir frá William Stoner, bændasyni sem fer í háskóla til að læra landbúnað en heillast af bókmenntum og verður háskólakennari. Líf hans einkennist af átökum, erfiðu hjónabandi, vonbrigðum í starfi og takmörkuðum tækifærum til hamingju. Þrátt fyrir mótlætið heldur hann tryggð við köllun sína og finnur tilgang í kennslu og ást sinni á bókmenntum. Sagan dregur fram fegurð hins venjulega lífs og sýnir hvernig reisn, þrautseigja og heilindi geta skipt meira máli en frægð eða velgengni. Hún fjallar á áhrifaríkan hátt um lífið, ástina og dauðleikann. Það er ekki hægt að mæla nógsamlega með þessari bók.
Phil Jackson, sigursælasti þjálfari NBA deildarinnar frá upphafi, er frægur fyrir óhefðbundnar aðferðir þegar kemur að þjálfun. Hann fær leikmenn sína til að lesa ákveðnar bækur sem hann telur geta hjálpað þeim að styrkja sig andlega. Zen and the Art of Motorcycle Maintenance eftir Robert Pirsig er ein þessara bóka. Hún fjallar um feðga á mótorhjólaferðalagi um N-Ameríku. Ferðalagið verður jafnframt leit að tilgangi, þekkingu og lífsgildum. Höfundurinn veltir fyrir sér tengslum skynsemi og innsæis, tækni og listar og gagnrýnir aðskilnað þeirra í vestrænni hugsun. Kjarnahugtakið er „gæði“, sem Pirsig lýsir sem grundvallarþætti sem er erfitt að skilgreina en má upplifa í góðu handverki, umhyggju og athygli. Bókin sameinar heimspeki, sjálfskoðun og persónulega sögu um leit að jafnvægi, sjálfsþekkingu og dýpri skilningi á lífinu.

Á sumrin les ég ósjaldan ævisögur. Life er sjálfsævisaga Keith Richards, gítarleikara hljómsveitarinnar Rolling Stones. Bókin rekur æsku hans, fyrstu kynni af tónlist og vináttuna við Mick Jagger sem varð grunnurinn að einni áhrifamestu rokksveit sögunnar. Má nefna að í bókinni ýjar Richards að því að fjölskyldudjásn Jaggers sé í minna lagi, sem eðlilega féll í grýttan jarðveg hjá Jagger. Andaði köldu milli þeirra í nokkurn tíma á eftir. Richards lýsir sköpunarferli hljómsveitarinnar, tónleikaferðalögum, frægð og átökum innan sveitarinnar. Hann fjallar einnig opinskátt um fíkniefnaneyslu, lagaleg vandamál og hvernig hann með tímanum náði að endurmeta líf sitt. Með hreinskilni og húmor veitir bókin innsýn í líf tónlistarmanns sem lifði á brúninni. Á sama tíma var ástríðan fyrir tónlistinni ávallt í fyrirrúmi.
Two Years Before the Mast eftir Richard Henry Dana jr. er frásögn af ferðalagi hans sem háseta á kaupskipinu Pilgrim frá Boston til Kaliforníu á árunum 1834–1836. Hann stundaði nám í læknisfræði við Harvard. Dana fékk mislinga árið 1832 og þeim fylgdu sjónvandamál, svo hann varð að gera hlé á náminu. Hann lýsir lífi sjómannsins af mikilli nákvæmni og segir frá erfiðum vinnuaðstæðum, ströngum aga og harkalegri framkomu yfirmanna sinna. Bókin gefur raunsæja og áhugaverða mynd af sjómennsku 19. aldar og varpar jafnframt ljósi á stéttaskiptingu og réttindaleysi sjómanna.
När barnet lagt sig er sjálfsævisaga sænska leikarans Michael Nyqvist sem lést fyrir aldur fram árið 2017. Hann öðlaðist frægð fyrir leik sinn í Millenium-þríleiknum. Í bókinni segir hann frá æsku sinni sem ættleitt barn, leitinni að líffræðilegum foreldrum sínum og þeirri djúpu þrá að skilja eigin uppruna. Hann lýsir því hvernig óvissan um fortíðina mótaði sjálfsmynd hans, sambönd og leiklistarferil. Samhliða leitinni fjallar hann um fjölskyldulíf sitt, föðurhlutverkið og hvernig reynsla hans hafði áhrif á líf hans og listsköpun. Bókin er einlæg og persónuleg frásögn um sjálfsleit, sorg, von og mikilvægi þess að sættast við fortíðina til að geta horft fram á veginn. Eftirminnileg bók sem sat í mér í langan tíma að lestri loknum.
Ég skora á Hrólf Brynjarsson að skrifa næsta bókapistil.
