0708.tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Nýútskrifaðir læknar boðnir velkomnir í hópinn

Á sólbjörtum júnídegi bauð Læknafélag Íslands nýútskrifaða lækna velkomna í hóp íslenskra lækna. Þetta er einn af gleðilegum viðburðum Læknafélags Íslands (LÍ) og afar hátíðleg stund.

Þetta vorið hafa 107 nýir læknar útskrifast, fjórir fleiri en í fyrra, 53 frá HÍ, 45 frá Slóvakíu, tveir frá Ungverjalandi, sex frá Danmörku og einn frá Kýpur.

Formaður LÍ, Steinunn Þórðardóttir, bauð alla velkomna og flutti nýju læknunum erindi sem lýsti meðal annars komandi og ævarandi ábyrgð læknisins og hvatti þau til góðra verka með góðum heilræðum.

Það gerði líka heilbrigðisráðherra Alma Möller sem flutti einnig miklar fréttir úr sínu ráðuneyti og tilkynnti meðal annars í sinni ræðu að nú liggi fyrir ákvörðun um að setja 500 milljónir í sérnám lækna á þessu ári og yfir 600 milljónir á næsta ári. Þetta sé byrjunin á að styðja við sérnám á Íslandi. Ekki kom fram í hennar máli á hvern hátt þetta fé yrði nýtt. Ráðherra gaf sér síðan góðan tíma til að staldra við og njóta stundarinnar með nýju læknunum og öðrum gestum.

Forseti læknadeildar Háskóla Íslands (HÍ), Sædís Svavarsdóttir, flutti hvetjandi erindi og bar með sér „bókina góðu“ með eið Hippokratesar, sem allir íslenskir læknar undirrita við útskrift.

Jón Snædal öldrunarlæknir flutti erindi fyrir hönd 50 ára útskriftarnema. Oddur Steinarsson heimilislæknir flutti erindi fyrir hönd 25 ára útskriftarnema og hvatti nýja lækna til að mennta sig í stjórnun og taka að sér stjórnunarstörf í heilbrigðiskerfinu í framtíðinni.

Ritstjóri Læknablaðsins, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, minnti á blað okkar lækna og mikilvægi birtingar lærdómsríkra sjúkratilfella fyrir alla lækna auk annarrar vísindavinnu. Mælendaskrá lauk með erindi Engilberts Sigurðssonar, prófessors í geðlæknisfræði, fyrrverandi forseta læknadeildar HÍ, sem á sinn skýra og hnitmiðaða hátt gaf heilræði inn í læknisstarfið. Þau síðast töldu reyndust fulltrúar 35 ára útskriftarnema ásamt fleirum í salnum.

Læknablaðið óskar læknum útskrifuðum 2026 innilega til hamingju með áfangann!

Agnes Kristjánsdóttir

Agnes Ylfa Jónasdóttir

Almar Viðarsson

Andri Már Tómasson

Aníta Ösp Gunnlaugsdóttir

Anna Margrét Stefánsdóttir

Anna Sigríður Jóhannsdóttir

Arna Bjarnadóttir

Arnar Þór Sigtryggsson

Arnheiður Erla Guðbrandsdóttir

Arnór Ingvarsson

Auður Indriðadóttir

Ágústa Dröfn Pétursdóttir

Ágústa Eyjólfsdóttir

Áslaug Haraldsdóttir

Ásthildur Rafnsdóttir

Berglind Ólafsdóttir

Birna Aradóttir

Birta Rakel Óskarsdóttir

Bjarki Leó Snorrason

Björg Bergsveinsdóttir

Dagbjört Arnþórsdóttir

Dagný Halla Ágústsdóttir

Dagur Tjörvi Arnarsson

Dagur Tómas Steinarsson

Egill Ívarsson

Elfa Rún Björnsdóttir

Elín María Árnadóttir

Elín Perla Stefánsdóttir

Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir

Elvar Már S. Jóhönnuson

Emelía Góa Briem

Eygló Helga Haraldsdóttir

Eva Kjartansdóttir

Fanney Birgisdóttir

Fehima Líf Purisevic

Gabríel Frostason

Gísli Baldur Friðbjarnarson

Guðbjörg Ragna Vilhelmsdóttir

Guðbjörn Snær Björnsson

Guðfinna Kristín Björnsdóttir

Guðný Hildur Dagsdóttir

Gunnar Ingvi Ingvason

Hafdís Erla Gunnarsdóttir

Hákon Elliði Arnarson

Hákon Ingi Halldórsson

Heiðrún Dóra Friðriksdóttir

Helga Magnea Gestsdóttir

Helga Sif Guðmundsdóttir

Hildur Gyða Grétarsdóttir

Hilma Jakobsdóttir

Hjörtur Snær Gunnarsson

Hólmfríður Í Steinþórsdóttir

Hólmgeir Gauti Agnarsson

Hrund Hákonardóttir

Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir

Ingibjörg Sóley Einarsdóttir

Íris Arna Tómasdóttir

Íris Brynja Helgadóttir

Jakob Þórir Hansen

Jökull S. Gunnarsson Breiðfjör

Katla Björg Jónsdóttir

Katla Rut Robertsdóttir Kluver

Katla Þormóðsdóttir

Katrín Hólmgrímsdóttir

Katrín Þóra Hermannsdóttir

Kári Ingason

Kjartan Þorri Kristjánsson

Kolbrún Sonja Rúnarsdóttir

Kristín Fjóla Jónsdóttir

Kristín Valdís Örnólfsdóttir

Kristjana Birta Kristinsdóttir

Kristján Berg Guðmundsson

Kristján Harðarson

Kristján Helgi Garðarsson

Lilja Bragadóttir

Linda Marie Thorarensen

Lísa Margrét Rúnarsdóttir

Margrét Olsen

Margrét Rut Þórarinsdóttir

Marín Rún Einarsdóttir

Marta Ragnhildardóttir

Móeiður Kara Óladóttir

Ólafur Bjarni Rafnar Karlsson

Ólafur Sánchez

Óliver Dofri Björgvinsson

Pétur Tryggvi Pétursson

Ragnheiður Tómasdóttir

Sara Björk Sverrisdóttir

Selma Björk Almarsdóttir

Selma Eir Hilmarsdóttir

Sigríður Björg Helgadóttir

Sigríður Kristjánsdóttir

Sigrún Ágústsdóttir

Sigurður Sölvi Sigurðarson

Sigursteinn Óli Ingólfsson

Sonja Kiernan

Sunneva Roinesdóttir

Svava H Johannessen

Sveinn Helgi Karlsson

Trausti Jónsson

Urður Helga Gísladóttir

Úlfhildur Ármey Hilmarsdóttir

Valdís Harpa Porca

Viktor Ásbjörnsson

Þorri Geir Rúnarsson

Þóra Lucrezia Bettaglio

 

Þuríður Rut Þuríðardóttir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica