0708.tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Dagur í lífi læknis. Föstudagsvakt tveggja kviðarholsskurðlækna á Landspítalanum. Örvar Arnarson

Föstudagurinn 29. maí og vaktahelgi framundan hjá okkur Jórunni Atladóttur kviðarholsskurðlæknum. Vaktir skurðlæknis eru jafnan fjölbreytilegar og spennandi. Svona eins og lítill súkkulaði-kassi, maður veit aldrei hvað maður fær. Dagurinn byrjaði með skipulögðum aðgerðum og á dagskránni voru tvær viðgerðir á naflakviðsliti í þjarka. Það hefur orðið mikil framþróun í kviðslitsaðgerðum síðusta áratuginn með tilkomu aðgerðarþjarka. Aðgerðir á kviðvegg með hefðbundinni kviðsjá eru tæknilega erfiðar með beinum og stífum verkfærum þar sem skurðlæknirinn þarf að vinna „upp fyrir sig“ samanborið við aðrar aðgerðir í kviðarholi þar sem líffærin „liggja niðri“. Armar þjarkans eru með mörg liðamót sem gerir aðgerð á kviðvegg mun auðveldari. Með viðbót nýs aðgerðarþjarka á skurðstofu sex er hægt að bjóða fleiri sjúklingum kviðsjáraðgerðir sem í mörgum tilfellum þýðir færri legudaga og styttra veikindaleyfi.

Þegar leið á daginn var mér tilkynnt að fyrirhugaðar væru nýrnaígræðslur á tveimur sjúklingum um kvöldið og því væri hætta á að ekki yrði hægt að framkvæma aðrar bráðaaðgerðir. Ég leit á bráðalistann og sá að það voru þegar komnar upp sex aðgerðir: JJ-leggur í þvagleiðara, tveir botnlangar, tvö göll og hægra hlutabrottnám á ristli vegna ristilkrabbameins með bráðum einkennum. Það var því ljóst að spýta þurfti í lófana ef takast ætti að klára bráðaprógrammið áður en nýrun kæmu í hús. Það eru engir aukvisar sem starfa á skurðstofugangi Landspítalans og var strax hafist handa. Það var lán í óláni að annarri kviðslitsaðgerðinni var aflýst vegna veikinda sjúklings og því laus aukaskurðstofa. Á meðan Jóhann Páll Ingimarsson þvagfæraskurðlæknir þræddi JJ-legg inn á stofu tvö, svæfði Magnús Karl Magnússon svæfingarlæknir fyrri botnlangann á stofu þrjú og framkvæmdum við Hjördís Ásta sérnámslæknir aðgerðina. Þá var strax farið að undirbúa skurðstofu sex fyrir næsta botnlanga. Að þeirri aðgerð lokinni var andrými fyrir pappírsvinnu og að sinna deildinni áður en tími var kominn að fyrri gallköguninni sem ég gerði ásamt Matthildi læknanema. Seinni gallblöðrutökuna gerðum við Alfa Ýr sérnámslæknir á sömu skurðstofu en sá sjúklingur var kominn inn á stofu 20 mínútum eftir að þeim fyrri var rúllað út, sem þykir mjög gott. Samhliða þessum aðgerðum hafði hitt skurðstofuteymið undir forystu Arons Freys Lúðvíkssonar svæfingalæknis hafið undirbúning á hægra hlutabrottnáminu á stofu fjögur og framkvæmdi Jórunn aðgerðina ásamt Ölfu. Við náðum þannig að klára allar bráðaaðgerðirnar klukkan 18 og hreinsa borðið fyrir þvagfæraskurðlæknana en Rafn Hilmarsson og Árni Sæmundsson stóðu frá klukkan 20 til 03 við nýrnaígræðslurnar.

 

Restin af helgarvaktinni var nokkuð róleg hjá okkur Jórunni. Bæði laugardagur og sunnudagur buðu upp á fjölbreyttar aðgerðir frá morgni til kvölds en lítið var um næturbrölt. Áður en við vissum af var kominn mánudagur, þó að okkur hafi liðið eins og kominn væri miðvikudagur og allt of langt í næstu helgi! Sé litið til baka sýndi allt starfsfólkið á skurðstofugangi Landspítalans hvernig unnið er á skilvirkan og faglegan hátt og get ég staðfest að Landspítalinn fékk mikið fyrir peninginn þessa helgi, hvort sem það er frá starfsmönnum í fullu- eða hlutastarfi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica