06.tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
„Heilbrigðiskerfið er traust og gott og undirbúið fyrir almyrkvann“
Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Þetta er fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík síðan 17. júní 1433. Læknablaðið spurði Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um undirbúning í tengslum við væntanlegt álag á heilbrigðis- og neyðarþjónustu á fyrrgreindum svæðum.
„Já, heilbrigðisráðuneytið fylgist grannt með undirbúningi heilbrigðisstofnana og almannavarna vegna myrkvans. Almannavarnir leiða samráðshóp með fulltrúum allra helstu aðila (sveitarfélög, löggæsla, Landhelgisgæsla, Vegagerð, Ferðamálastofa, RKÍ, Neyðarlínan, Náttúruverndarstofnun, ferðaþjónustuaðilar og fleiri)“ segir Alma. Forstjórar heilbrigðisstofnana eigi sæti í þessum hópi sem hittist reglulega, fari yfir stöðu undirbúnings og miðli upplýsingum.
Forsætisráðuneytið leiði svo stýrihóp ráðuneyta (ráðuneyta heilbrigðis, dómsmála, innviða- og umhverfis, fjármála, efnahags og atvinnuvega). Þessi hópur hafi einnig samræmingarhlutverk og muni koma sterkur inn þegar nær dregur með miðlæga upplýsingagjöf til almennings. Þá hafi heilbrigðisráðherra nýverið fundað með fulltrúum þeirra stofnana sem málið varðar (HSS, Hvest og HVE auk Landspítala) og þar hafi komið fram að undirbúningur sé í góðum gangi.
Aðspurð hvort mönnun verði aukin á heilbrigðisstofnunum eða viðbragðsgeta á þeim svæðum þar sem búist er við mestum fjölda ferðamanna og gesta segir Alma: „Hlutaðeigandi heilbrigðisstofnanir hafa gert áætlanir um aukna mönnun, breytingar á vaktafyrirkomulagi, staðsetningu sjúkrabíla, samstarf við björgunarsveitir og fleira. Þá eru til viðbragðsáætlanir hjá öllum þessum stofnunum við heilbrigðisvá, þar með taldar hópslysaáætlanir, og ef á reynir þá verða þær virkjaðar. Landspítali er jafnframt í viðbragðsstöðu enda alltaf reiðubúinn,“ áréttar Alma.
Leiðbeiningar varðandi verndun augna þegar horft verður til sólar
Varðandi sérstakar ráðstafanir sem tengjast sjúkraflutningum, þar með talið flutning sjúklinga milli landshluta eða aukinn viðbúnað þyrla og sjúkrabifreiða, segir Alma að viðbragð vegna sjúkraflutninga af hálfu heilbrigðisstofnana verði aukið og samráð haft við lögreglu og Landhelgisgæslu sem er í samráðshópnum og meti þörf fyrir þyrluviðbragð. „Ég hef auk þessa falið embætti landlæknis að undirbúa leiðbeiningar varðandi verndun augna þegar horft verður til sólar þann 12. ágúst.“
Spurð að lokum um hvort núverandi innviðir heilbrigðis- og neyðarþjónustu séu nægilega öflugir til að mæta þeim fjölda fólks sem búist er við á landinu vegna sólmyrkvans, segir Alma: „Já, heilbrigðiskerfið er traust og gott og undirbúið fyrir almyrkvann. Vandaður undirbúningur stuðlar enn fremur að því að bjargir verði nægar.“
Því má bæta við að Læknablaðið hefur fengið staðfest hjá Hjördísi Garðarsdóttur á Neyðarlínunni að mannafli verði aukinn í kringum 12. ágúst, svo svörun símtala við neyð gangi vel fyrir sig.
