02. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Dagur í lífi. Ríkasti kandídatinn. Björn Vilhelm Ólafsson

07:00 Vekjaraklukkan hringir nokkrum sinnum til að minna á sig, daginn og veginn. Stekk loks af stað um 7:30, hoppa í sturtuna og velti fyrir mér á hvorum Benzinum ég ætti að fara á í vinnuna. Geymi morgunmatinn fram að hádegi, gríp einn Monster úr vínkælinum og dríf mig af stað á þeim nýrri, vopnaður aðgangskorti og nælu sem segir að ég sé læknir.

08:00 Náði ljósunum vel svo stimpilgjaldið verður rétt og morgunfundurinn á lyflækningasviði í Fossvogi, hressandi. Farið yfir sjaldgæf og áhugaverð tilfelli, greiningin að þessu sinni nýlega nýnefndur sjúkdómur.

08:20 Stillum upp í sókn, andstæðingarnir hafa yfirtölu þennan morguninn sem og aðra. Setjum okkar yngsta mann í brúna hjá aldursforseta vikunnar með aldursmun sem spannar tímann frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar til dagsins í dag. Á meðan tek ég að mér einföld og flóknari verk í bland. Glöggva mig á nótum góðra kollega, „Sjúklingur yngri en aldur segir til um,“ „Sjúklingur segist aldrei hafa gengist undir hnífinn, sný athygli hans að stóru miðlínuöri sem hvorugt okkar getur skýrt.“

09:00 Leifturhraður stofugangur, enda lifir Parkinson’s lögmálið góðu lífi. Hitti níræðan sjúkling með fljótandi fætur, hver ætli sé meðferðin við því þessa dagana? Sérfræðingurinn grípur tækifærið til að babbla um þvagræsimeðferð enn einu sinni. Allnokkrir með flensuna, en það er allt í lagi því flestir fá herbergi. Rifja upp: Tamiflu? er það enn notað?

10:30 Hripa niður upphaf dagála, kem heitum boltum áleiðis á aðra og svara spurningum sem hafa borist í gegnum tölvukerfið. Hitti fyrir nýtt fólk og passa mig að minnast á Siglufjörð allavega tvisvar í von um að fá stig fyrir að vera þaðan.

12:10 Samráð margra sérfræðinga um flókinn sjúkling á sér stað, á meðan kinka ég kolli á viðeigandi tímum og þykist fylgja sögunni og hugsanaferlum, áður en ég skottast í bröns. Eitt og hálft kíló koltvísýrings, eins gott að ég kom á rafmagninu. Hitti fyrir fyrrum bekkjarsystkini og blanda geði eftir fremsta megni. Uppnefndur í gríni „ríkasti kandídatinn“ af sérfræðingi.

13:00 Legg mig fram við skrifin, dagnótur, læknabréf, bréf til sjúklinga og beiðni um heimasjúkraþjálfun, svo fátt eitt sé nefnt. Útskriftir heim, í bland við útskriftir annað eða pseudóútskriftir eins og ég kýs að kalla það. Lyflæknir veltir fyrir sér hvað þarf að sækja marga fundi til að lækna sjúkling. Ég spyr hann upp á djókið hvort hann haldi að hann sé skurðlæknir, en honum finnst það ekki fyndið.

15:30 Rapport í kvöldvaktina, flókni sjúklingurinn tekinn upp og ég jafn týndur og áður. Kemur svo loks að því að ég útskrifa sjálfan mig heim.

16:00 Bíll veisluþjónustunnar bilaður, þarf að leggja land undir fót og rifja upp löngu gleymda takta í stálsmíði. Hver þarf svo sem sílsa?

19:00 Elda mjólkurgraut fyrir tvo, góður vinur í mat.

20:00 Hringi í betri helminginn, hún er erlendis þessa dagana, farið að styttast í próf í þessum vísindum óvissunar og list líkinda -WO. Rifjum upp GOLD leiðbeiningar, C BIG K DROP, I GET SMASHED og fleira spennandi.

21:00 Eyði iðulega kvöldinu í sjónvarpsgláp, tölvuleiki eða léttar trésmíðar, hver fann upp gólflista?

22:50 Leggst á koddann og minnist þess að kandídatar eru víst ekki lengur til, heldur aðeins sérnámsgrunnslæknar.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica