Fleiri íbúar, færri fastráðnir heimilislæknar – Þróun Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri (HAk) 1990-2026

Nýtt og vandað húsnæði hefur bætt umgjörð Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri (HAk) en hefur ekki snúið við fækkun fastráðinna sérfræðinga í heimilislækningum. Ef spá fyrir haustið 2026 gengur eftir verða aðeins 6,5 klínísk stöðugildi heimilislækna til staðar fyrir um 24.000 íbúa.
Heilsugæsla byggð á samfellu
HAk tók til starfa 1. janúar 1985 samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 59/1983. Starfsleyfi var fyrir ellefu heilsugæslulækna, eða einn lækni á hverja 1.500 íbúa. Frá upphafi var markmiðið að veita almenna læknisþjónustu sem byggðist á samfelldri læknisumsjá, víðtækri ábyrgð og persónulegum tengslum við skjólstæðinga. Árið 1990 bjuggu um 16.750 íbúar á þjónustusvæði HAk. Þar störfuðu tíu fastráðnir heimilislæknar og 95% íbúa voru með fastskráðan heimilislækni.1
Samfella er einn af hornsteinum heimilislækninga ásamt aðgengi, nálægð, heildarsýn og persónulegri þekkingu á skjólstæðingum. Mikilvægt er að heimilislæknar starfi sem lengst á sömu stöð þar sem rannsóknir sýna að lítil læknavelta og stöðug mönnun tengjast meiri samfellu í þjónustu. Rannsóknir benda einnig til þess að skipulag vinnustaða og aðgerðir sem stuðla að því að halda starfsfólki séu lykilatriði til langs tíma.16
Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar árið 2004 kom fram að samstarf HAk og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri væri gott og að verkaskipting milli þjónustustiganna væri skýr.14 Um 90% þeirra sem leituðu til sérfræðinga á sjúkrahúsinu komu með tilvísun frá heilsugæslulækni. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun notuðu íbúar Akureyrar árið 2002 fjórum sinnum færri sérfræðiþjónustur utan heilsugæslunnar en íbúar Reykjavíkur.14 Þótt sá samanburður sé orðinn gamall bendir hann til kerfislegs gildis vel mannaðrar heilsugæslu.
Norsk rannsókn á rúmlega 4,5 milljónum íbúa sýndi að samband við sama heimilislækni í meira en 15 ár tengdist 30% minni notkun læknavaktar, 28% færri bráðainnlögnum og 25% lægri dánartíðni en samband sem hafði aðeins varað í eitt ár.8 Ný sænsk rannsókn sýndi jafnframt að lítil læknavelta væri sá þáttur sem sterkast tengdist meiri samfellu í þjónustu.16
Íbúum fjölgar en sérfræðingum fækkar
Í grein heilbrigðisráðherra og aðstoðarmanns hennar sem birtist árið 2026 kom fram að á Íslandi væru 61 heimilislæknir á hverja 100.000 íbúa samanborið við 89 á hinum Norðurlöndunum.6 Í ritstjórnargrein í Læknablaðinu sama ár var bent á að 181 klínískt stöðugildi heimilislækna væru starfandi á landsvísu, eða um 45 stöðugildi á hverja 100.000 íbúa.5

Á sama tíma hefur þróunin á Akureyri verið sérstaklega áhyggjuefni. Frá 1990 til 2025 fjölgaði íbúum á þjónustusvæði HAk úr um 16.750 í 23.300, eða um 39%. Fjöldi fastráðinna sérfræðinga í heimilislækningum fylgdi þeirri þróun ekki. Í maí 2026 störfuðu þar átta sérfræðingar í 6–7 klínískum stöðugildum. Í ágúst voru stöðugildin orðin 5–6 og spáð er að þau verði 6,5 haustið 2026.1
Miðað við 24.000 íbúa jafngildir það einu klínísku stöðugildi á hverja 3,692 íbúa, eða 27 stöðugildum á 100.000 íbúa. Þá eru aðeins 27% íbúa með fastskráðan heimilislækni á HAk, samanborið við 95% árið 1990.1

Til að tryggja góða þjónustu þurfa fastráðnir heimilislæknar að vera í samræmi við íbúafjölda. Miðað við 1.500 íbúa á hvert stöðugildi þyrfti 16 klínísk stöðugildi fyrir 24.000 íbúa, en 20 stöðugildi ef miðað er við 1.200 íbúa á hvert stöðugildi. Miðað við aðeins 6,5 stöðugildi haustið 2026 vantar því um 10–14 klínísk stöðugildi til að ná þessum markmiðum.10
Tímabundin mönnun leysir ekki vandann
Á síðustu árum hefur ársstörfum lækna við HAk fjölgað vegna læknanema,
grunnsérnámslækna, sérnámslækna og afleysingalækna. Slík mönnun getur tryggt ákveðið þjónustustig til skamms tíma, en kemur ekki í stað stöðugs sambands íbúa við nafngreindan heimilislækni.
Gögn úr ársskýrslum HAk benda til þess að meðalbið eftir bókuðum viðtalstíma hjá lækni hafi lengst úr 1,2–5,5 virkum dögum á árunum 2001–2013 í 21 dag vorið 2024 en þá hafði aðeins um helmingur íbúa fastskráðan heimilislækni.1
Langvarandi skortur á fastráðnum sérfræðingum eykur álag á þá lækna sem eftir eru. Þeir bera aukna ábyrgð á stjórnun, kennslu, handleiðslu og eftirliti með nemum samhliða eigin klínískum störfum. Þetta getur leitt til þess að læknar dragi úr starfshlutfalli sínu eða leiti annað til starfa, sem eykur vandann enn frekar.9
Breskar rannsóknir hafa lýst slíku sem vítahring þar sem skortur á læknum dregur úr samfellu í þjónustu, sem eykur álag og eftirspurn og gerir enn erfiðara að halda í starfsfólk.9 Sænsk gögn benda einnig til þess að læknavelta sé meiri þar sem álag er hátt.11
Því þarf að fylgjast markvisst með þróuninni með mælingum á stöðugildum, starfsmannaveltu, hlutfalli íbúa með nafngreindan heimilislækni, biðtíma og notkun bráðaþjónustu.12 Rannsóknir benda til þess að góð starfsskilyrði, faglegur stuðningur, viðráðanlegir sjúklingalistar og raunhæf vaktabyrði skipti meira máli fyrir varanlega mönnun en skammtímaaðgerðir.13

Ný heilsugæslustöð en húsnæði eitt nægir ekki
Árið 2019 var stefnt að tveimur heilsu- gæslustöðvum á Akureyri. Þarfagreining árið 2020 byggðist á þeirri forsendu en árið 2025 var byggingu annarrar stöðvar
frestað um að minnsta kosti fimm ár.3,4
Ný 1.840 fermetra heilsugæslustöð í Sunnuhlíð var opnuð 19. febrúar 2024 í stað eldra húsnæðis í Hafnarstræti.2 Umgjörðin batnaði verulega og starfsfólk og skjólstæðingar hafa lýst aukinni ánægju.15
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) greindi jafnframt frá því árið 2026 að sérnámsstöðum í heimilislækningum hefði fjölgað úr fjórum í 17 frá árslokum 2020, flestar á Akureyri.7 Það bendir til þess að nýja húsnæðið og bætt starfsaðstaða hafi styrkt aðdráttarafl stöðvarinnar sem námsseturs.
Þrátt fyrir það hefur fjölgun sérnámslækna ekki enn skilað sér í samsvarandi fjölgun fastráðinna sérfræðinga í klínísku starfi. Lykilspurningin er því ekki aðeins hvernig megi laða unga lækna til sérnáms heldur einnig hvernig megi halda þeim til starfa eftir að sérnámi lýkur. Kanna þarf markvisst ástæður þess að læknar velja að starfa annars staðar eða í hlutastörfum.
Niðurstaða
Saga HAk sýnir að nýtt húsnæði og fjölgun tímabundinna stöðugilda duga ekki ef mikilvægasta grunnstoð þjónustunnar veikist, það er nægur fjöldi fastráðinna sérfræðinga í heimilislækningum sem bera ábyrgð á skilgreindum hópi íbúa til langs tíma.
Frá 1990 hefur íbúum á þjónustusvæði HAk fjölgað um nær 40%, en haustið 2026 stefnir í að klínísk stöðugildi fastráðinna heimilislækna verði aðeins rúmlega helmingur þess sem þau voru áður.1 Samhliða hefur hlutfall íbúa með fastskráðan heimilislækni dregist verulega saman og bið eftir þjónustu lengst.
Úrbætur krefjast skýrrar og mælanlegrar mönnunaráætlunar, aðgerða til að halda reyndum heimilislæknum í starfi, markvissrar tengingar sérnáms við framtíðarstörf og skipulags sem verndar samfellu í læknisþjónustu. Samfella er ekki aðeins gæðavísir heldur tengist hún betri heilsu, færri innlögnum og hagkvæmari nýtingu heilbrigðiskerfisins.8,16
Á Akureyri blikka rauð viðvörunarljós. Nú þarf tímasettar aðgerðir.
Heimildir
1. Ársskýrslur Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri 1990-2013 og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands 2015-2025; samantekt H. Þorgils Sigurðssonar um þróun HAk, 2026. Óbirt vinnuskjal.
2. Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Ný heilsugæslustöð HSN opnar á Akureyri 19. febrúar. 14. febrúar 2024. https://island.is/s/hsn/frett/ny-heilsugaeslustoed-hsn-opnar-a-akureyri-19-februar – september 2026.
3. Alþingi. Svar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn um heilsugæsluna á Akureyri. Þingskjal 1404, 154. löggjafarþing 2023-2024. https://www.althingi.is/altext/154/s/1404.html – september 2026.
4. Heilbrigðisstofnun Norðurlands. HSN frestar byggingu annarrar heilsugæslustöðvar á Akureyri. 26. ágúst 2025. https://island.is/s/hsn/frett/hsn-frestar-byggingu-annarrar-heilsugaeslustoedvar-a-akureyri – september 2026.
5. Ólafsson ÞG. Mönnunarvandi heimilislækna. Læknablaðið. 2026;112(6).
6. Heilbrigðisráðuneytið | Sterk heilsugæsla um allt land. Sterk heilsugæsla um allt land – september 2026
7. Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Norðurland - segull fyrir sérnámslækna í heimilislækningum? 17. febrúar 2026. https://island.is/s/hsn/frett/nordurland-segull-fyrir-sernamslaekna-i-heimilislaekningum – september 2026
8. Sandvik H, Hetlevik Ø, Blinkenberg J, et al. Continuity in general practice as predictor of mortality, acute hospitalisation, and use of out-of-hours care: a registry-based observational study in Norway. Br J Gen Pract. 2022;72(715):e84-e90.
9. Marshall T, Scholtes S, Wyatt S, et al. What makes general practice work: the role of continuity in efficient and sustainable primary care. Br J Gen Pract. 2025;75(757):373-376.
10. Socialstyrelsen. Nationellt riktvärde för fast läkarkontakt ska bidra till ökad kontinuitet och trygghet i primärvården. 2022. https://www.socialstyrelsen.se/om-socialstyrelsen/pressrum/press/nationellt-riktvarde-for-fast-lakarkontakt-ska-bidra-till-okad-kontinuitet-och-trygghet-i-primarvarden/ – september 2026
11. Ellegård LM, Anell A, Kjellsson G. GP turnover in a multiprofessional team-based primary care system: evidence from Sweden. Scand J Prim Health Care. 2026;44(1):1-10.
12. Svenska Distriktsläkarföreningen. Mål utan styrning - fast läkarkontakt i svensk primärvård. Stockholm; 2026. https://slf.se/dlf/nyheter/fast-lakarkontakt-kan-ligga-over-100-ar-bort/ – september 2026
13. Ogden J, Preston S, Partanen RL, Ostini R, Coxeter P. Recruiting and retaining general practitioners in rural practice: systematic review and meta-analysis of rural pipeline effects. Med J Aust. 2020;213(5):228-236.
14. Ríkisendurskoðun. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri - stjórnsýsluendurskoðun. Reykjavík; 2004. https://www.rikisend.is/reskjol/files/Skyrslur/2004-fsa-stjornsysluend.pdf – september 2026
15. Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Norðurlands - niðurstöður rekstrarársins 2025. 26. maí 2026. https://island.is/s/hsn/frett/arsfundur-heilbrigdisstofnunar-nordurlands-mai-2026 – september 2026
16. Johansson E, Pétursson H, Månsson J, et al. Continuity in a fragmented healthcare system - organizational and individual determinants. Scand J Prim Health Care. 2026;44(1):2690608.