Fara í efni
Bókin mín

Ævintýri með hugmyndaflugið að vopni

Fyrsta minning mín var í fangi afa þar sem hann var að lesa fyrir mig. Kyrrðin og friðurinn, ævintýraheimurinn, ég gat farið með ímyndunaraflinu einu langt í burtu. Ég flaug á vit ævintýranna með orðum og hugarflugi og gleymdi stað og stund. Ævintýri æsku minnar voru Þúsund og ein nótt, Þjóðsögur Jóns Árnasonar og Hringadróttinssaga. Ég las þessar bækur aftur og aftur. Sjerasade varð fyrirmynd, sem og álfadrottningin í hólnum og hvaða ungmeyjarhjarta slær ekki aðeins hraðar þegar Aragorn berst fyrir hinu góða í heiminum.  

Þegar unglingurinn tók við af barninu hófst tímabil rússnesku meistaranna. Fullkomnun einnar setningar finnum við í Glæp og refsingu Dostojevskís þar sem lesandinn og ákærandinn vita að Raskolnikoff stúdent er sekur um morð.  

Bókin sem hefur fylgt unglingnum til fullorðinsára og ég les árlega er Meistarinn og Margaríta eftir Mikail Bulgakov. Djöfullinn kemur til Moskvu og flettir ofan af spillingu, mútuþegum, loddurum, rógberum, forréttindahyski og hrokagikkjum. Saman við ævintýri Satans og hans skrautlega fylgdarliðs tvinnast ástarsaga Meistarans og Margaritu sem og saga Jesú frá Nasaret sem vildi öllum vel, ekki síst Heródesi sem dæmdi Jesú til dauða. Meistarinn og Margaríta speglar samtíma okkar eins og samtíma kúgunar þegar bókin var skrifuð.   

/cdn/media/07082026/three_books_combined.jpg?v=1793634065

Það er ekki alltaf gaman að læra og íslensk málfræði í menntaskóla og lífefnafræði og lífeðlisfræði í læknadeildinni geta seint talist til skemmtiefnis. Til að létta mér lærdóm og lund þá nýtti ég mér ljóð til að læra. Ég lagði á minnið ljóð meðan á torfinu stóð og þegar í próf var komið gat ég skrifað ljóðið á krassblað og þá skyndilega munað allt um viðtengingarhátt eða Krebshringinn. Ansi oft varð Einar Benediktsson fyrir valinu. Viðtengingarháttur þátíðar og Krebshringurinn eru löngu grafin og gleymd en þegar ég upplifi íslenska náttúru, dans norðurljósanna, liti sólsetursins og sólina sem speglast á haffletinum þá fæ ég hjálp frá Einari til að lýsa hughrifum mínum. 

Til purpurahiminsins hafið flýtur   

 Og hvarmar fjallanna loga.   

 Hér er svo fagurt, að andann þrýtur –   

 og augað bilar að sjá hvers það nýtur   

 því eðlið er spunnið af öðrum toga;   

þess ör á ei streng á sinn boga. 

Síðan ég varð fullorðin hef ég lesið eina bók eftir Nóbelsverðlaunahöfund ársins, Booker-verðlaunabókina og Pulitzer-verðlaunabókina. Það hefur verið brekka af og til. Mér líður ennþá illa þegar ég hugsa um bækur Elefriede Jelinek sem hlaut Nóbelsverðlaunin 2004. Það er ekki hægt að hugsa sér ljótari eða sannari lýsingu á því versta í mannlegu eðli en í bókum hennar.  

Ég hef líka lesið Toni Morrison sem lýsir ást í sinni tærustu mynd andspænis kúgun í Beloved. Fegurð og illska, ást og hatur og stundum alger leiðindi í þessum verðlaunabókum.  

Ef ég á að mæla með bókum við sundlaugarbakkann þá eru það bækur Madeleine Miller, Song of Achilles og Circe. Báðar bækurnar byggja á grískri goðafræði. Song of Achilles fjallar um hetjuna Akkiles og er ein fallegasta ástarsaga sem ég hef lesið og Circe er óður til kvenréttinda með gríska goðafræði sem sögusvið. Það er ekki nóg með að bækurnar séu frábærar, ljóðrænar og fallegar heldur hefur mér tekist að fá unglingsdætur mínar til að lesa þær. Það er gæðastimpill á bókum.  

Barnalæknirinn verður að lokum að minnast á meistara barnabókmennta Astrid Lindgren. Þegar ég var barn og sorgin knúði að dyrum þá las ég Bróðir minn Ljónshjarta. Þegar dætur mínar upplifðu sorg þá hjálpaði ferðalag til Nangiala þeim. Lífsins áskoranir, hver viltu vera? Snúður Ljónshjarta lýsir sorginni, missinum, hugrekki, ótta og því vali sem við sem manneskjur stöndum öll frammi fyrir. Tekur þú bróður þinn eða systur á bakið þegar þess þarfnast eða ertu bara lítið skítseiði?