Þriggja daga haustferð ÖLDLÍ um Snæfellsnes og Mýrar 2026

Ferðin hófst eftirminnilega, því að ein hjón gleymdust í Hlíðasmára. Snarráðir, gleymnir öldungar sköffuðu leigara í snatri og hjónunum var ekið í loftköstum í Mosfellsbæ, þar sem rútan beið í rólegheitum. En fall er fararheill. Gott veður allan tímann, ekki nógu mikið rok samt, en ljúf og góð rigning. Í rútunni voru bæði brandarakarlar og sagnaspessjalistar, þeir Siggi Árna og Óttar. Og leiðsögumenn bættust við síðar, Anna Melsteð lóðsaði ferðalangana frá Miðhrauni og í Stykkishólm, en Ragnhildur Sigurðardóttir vestur um nesið í þjóðgarðinum og að Búðum. Önnur Ragnhildur sýndi okkur Hvanneyrarkirkju og landbúnaðarsafnið þar. Séra Heiðrún Helga, prestur að Borg, bauð okkur velkomin að Borg á Mýrum. Þriðja daginn vísaði Svanur Steinarsson, verndari Pourquoi-Pas? á Mýrum, veginn í Straumfjörð. Ferðalangar kunnu vel að meta þau öll en þó sérílagi bílstjórann Sigurð, sem var bæði öruggur, hlýr og afburða hjálplegur, sjá mynd. Ólafur Z læknir tók ferðamyndirnar. Náttstaðir voru Hótel Stykkishólmur og Hótel Búðir seinni nóttina. Dagsferðirnar allar voru stuttar, frá 11.00 og til 17.00, einnig stuttar göngur og skammar rútusetur, en svo lengri matar-, kaffi- og skoðunarstopp.

Nestið var í formi augna sem augnlæknirinn í stjórninni skar úr sjúklingum sínum, algjört sælgæti, sjá mynd. Sönglagahefti var dreift fyrir raularana í hópnum, og hópurinn vökvaður í blávatni og söngvatni. Allt nestið reyndist afar vinsælt umræðuefni.
Eyrbyggjasaga gerist á Snæfellsnesi og hefur ægifagur refill verið teiknaður til að sauma eftir þeirri sögu og er hann nú í refilsaumi hjá kvenfélögum Snæfellsness. Faðir dráttlistamannsins, Kristínar, var með í ferðinni, læknirinn Gunnar Sigurðsson. Teikningarnar eru sýndar að Hraunhálsi, og þar er hluti af reflinum. Mikilfenglegt bókasafn Snæfellinga er þar einnig geymt, engar bækur eru þó þar til útláns.

Safnahús þjóðgarðsins komu sér vel í vætunni og voru bæði heillandi og fræðandi. Stórt líkan af eldfjallinu Snæfellsjökli og grjót og hljóð lífguðu upp á.

Sigurður Þorvaldsson læknir flutti erindi um Charcot og strand skipsins Pourquoi-Pas? fyrir ÖDLÍ síðastliðinn vetur, en haldið var á strandstað skipsins á Mýrum og í leiðinni leitað að mógröfum. Þær fundust engar en dásamlegir unaðsreitir fugla í víðáttu mýrarlengjunnar og flæðiengjanna. Árið 1936 drukknuðu 39 manns á Hnokka, eyju úti í sjó, en minningarskjöldinn má sjá í Straumfirði, sjá mynd. 90 ár eru liðin frá atburðinum, en Frakkar, Mýrarmenn og Borgnesingar hafa minnst þessa slyss undanfarnar haustvikur. Vert að nefna að haustið er tími gullnu og fölvu litanna og farfuglanna og víða glampaði á hvíta svani í hópum á leið til Skotlands á tjörnum, pollum og mýrum Snæfellsness.
Ekki gafst tími fyrir heimsókn í gúrkugróðurhús að þessu sinni, og Stafholtskirkja varð að bíða. Ferðamennirnir fóru allir þreyttir heim að búa til danskt gúrkusalat í staðinn og fengu uppskriftina með sér heim: gúrka, edik, sykur og salt.