Fara í efni
Ritstjórnargreinar

Blindur leiðir blindan. Raunasaga nýs endurhæfingar- og örorkukerfis

Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi var tekið í notkun þann 1. september 2025.  Við það tilefni sagði Huld Magnúsdóttir, forstjóri TR: 

„Breytingarnar eru stórt skref í átt að nútímalegra örorku- og endurhæfingarkerfi sem er í takti við samfélagslegar breytingar undanfarinna ára. Hugsunin er að hver einstaklingur fái þjónustu við hæfi og að með nýju kerfi verði meiri samfella og skilvirkni í þjónustu.“¹ 

En hver er raunveruleikinn eftir rúmlega ár í nýju kerfi? 

Innleiðing kerfisins gengur hægt og margir læknar utan heilsugæslu virðast ekki geta nýtt sér það. Enn eru heimilislæknar að vinna í myrkrinu. Þeir fá ekki svör frá Tryggingastofnun (TR) við umsóknum sinna skjólstæðinga vegna persónuverndarsjónarmiða, þeir eru ekki aðilar máls. Upplýsingar um svör þurfa að koma frá skjólstæðingi. Ef nánari upplýsinga er óskað frá TR þarf að fá tiltekið númer frá skjólstæðingi og hringja í læknasíma TR, sem gengur misvel. Það þarf ansi góðan vilja til að telja þetta kerfi nútímalegt og skilvirkt. 

Skjólstæðingurinn er í erfiðri stöðu ef umsókn er hafnað um endurhæfingarúrræði. Hann þarf að ná í lækninn sem gerði umsóknina. Vonandi er hann skráður hjá heimilislækni. Mögulega gerði námslæknir umsóknina, sá gæti verið farinn annað eða mögulega hættur. Þegar heimilislæknir hefur vottað óvinnufærni og þörf fyrir endurhæfingu þá er ekki eðlilegt að greiðsla endurhæfingarlífeyris stöðvist ef umsókn er hafnað. Þörf er fyrir svigrúm í til dæmis tvo mánuði áður en bætur eru skertar.   

„Endurhæfing er fullreynd“ er frasi sem kemur frá VIRK eða öðrum endurhæfingarúrræðum þegar þverfagleg teymi þeirra hafa komist að þeirri niðurstöðu. Þá lendir málið oftar en ekki á borði heimilislæknis með tilheyrandi vottorðaskrifum og áætlanagerð. Heilsugæslan átti aldrei að vera endurhæfingaraðili í þessu kerfi. Endurhæfingarferlið getur tekið allt að sjö árum en lágmarkstíminn er þrjú ár. Oft er greinilegt mun fyrr að endurhæfing muni ekki skila árangri. Ef ekki er hlustað á rökstuðning heimilislækna þá er umsókn um örorku hafnað og þarf að sækja um í samhæfingarteymi TR fyrir skjólstæðinginn. Þar þarf umsækjandi að sækja sérstaklega um aðgang hjá TR, skrá sig inn á rafrænum skilríkjum og senda inn upplýsingar. Aðrir starfsmenn heilsugæslu geta ekki nálgast þær upplýsingar. Engar upplýsingar um þá umsókn koma fram í rafrænni sjúkraskrá né heldur afgreiðslu hennar. 

Einn fylgikvilli kerfisins er að vinna við það tekur yfir tíma sem annars gæti farið í að bæta lífsgæði og heilsufar skjólstæðings. Ítrekaðar hafnanir og óvissa geta ýtt fólki aftur á byrjunarreit þegar það er í viðkvæmri stöðu í endurhæfingu. Óvissa um framfærslu er lýjandi og dregur úr þrótti. Kerfið vinnur því í raun og veru gegn endurhæfingu. 

Í Hvítbók um endurhæfingu, gefinni út í ágúst 2026, segir: „Upplýsingar frá fyrstu mánuðum nýja kerfisins benda þó til þess að breytingarnar hafi aukið verulega álag á heilsugæsluna, en tæplega 60% umsókna til Tryggingastofnunar um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur koma frá heilsugæslunni, samanborið við um 35% áður.“ „Aukningin virðist fyrst og fremst birtast í aukinni aðsókn til heimilislækna en ekki í þjónustu annarra aðila innan kerfisins.“² 

Hið nýja kerfi hefur því skapað aukið álag á heimilislækna. 

Í því samhengi er mikilvægt að líta til baka og velta því upp hverjir bjuggu kerfið til, kerfi sem er enn jafn óskilvirkt og hefur aukið álag á heilsugæsluna. 

Fagfélag heimilislækna (FÍH) hafði enga aðkomu að þeirri vinnu. Aldrei var haft samband við FÍH um að fá þeirra álit, þrátt fyrir að heim- ilislæknar beri hitann og þungann af kerfinu. Þau vinnubrögð eru áfellisdómur fyrir íslenska stjórnsýslu. 

Heimildir 

1. Stjórnarráð Íslands, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið. „Tímamót: Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi – breytingarnar snerta hátt í 30.000 manns.“ 2025. https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025-09-01-Timamot-Nytt-ororku-og-endurhaefingarkerfi-breytingarnar-snerta-hatt-i-30.000-manns – október 2026.  

2. Heilbrigðisráðuneytið. Endurhæfing: Hvítbók um endurhæfingarþjónustu. 2026; bls. 42–43. https://samradapi.island.is/api/Documents/80f7eb60-3aa5-f111-9bdf-005056bcce7e –október 2026.