Fara í efni

Þverfagleg teymi íslenskra sérfræðinga meti leiðbeiningar frá NICE og öðrum

Samstarf Embættis landlæknis og NICE International á að styrkja gerð, staðfæringu og innleiðingu klínískra leiðbeininga á Íslandi. María Heimisdóttir landlæknir segir, í viðtali við Læknablaðið, markmiðið ekki að flytja inn breskar leiðbeiningar óbreyttar heldur byggja upp íslenska þekkingu og tryggja að leiðbeiningar taki mið af aðstæðum hér á landi 

Undirbúningur verkefnisins Gagnreynd heilsa hófst snemma árs 2025 þegar heilbrigðisráðuneytið, ásamt Embætti landlæknis, hóf viðræður við bresku stofnunina NICE International. Formleg vinna við samstarfið hófst 1. júní síðastliðinn en það var heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, sem átti frumkvæði að því að koma verkefninu af stað.   

María segir að lengi hafi verið unnið gott starf við gerð klínískra leiðbeininga hérlendis en vinnan verið dreifð og skipulag ekki nægilega skýrt. Heilbrigðisráðherra hafi því ákveðið að koma málaflokknum í fastari farveg. „Samstarfið felst fyrst og fremst í að byggja upp okkar getu hér á landi til að aðlaga og innleiða gagnreyndar leiðbeiningar, ekki bara gefa út leiðbeiningar frá NICE,“ segir María.   

Hún leggur áherslu á að samstarfið snúist ekki síður um þekkingaryfirfærslu og uppbyggingu sjálfbærrar starfsemi hérlendis en einstakar leiðbeiningar. NICE hafi orðið fyrir valinu vegna alþjóðlegrar reynslu stofnunarinnar, viðurkenndrar aðferðarfræði og gagnsæis í vinnuferlum og ákvarðanatöku.   

Íslenskir sérfræðingar í burðarhlutverki  

Valið á NICE hefur vakið spurningar um hvort eðlilegra hefði verið að leita samstarfs við hin Norðurlöndin, þar sem margir íslenskir læknar hafa hlotið sérmenntun. María segir að áfram verði horft til leiðbeininga frá Norðurlöndum, evrópskum og alþjóðlegum fagfélögum. „Það er ekki markmiðið að taka erlendar leiðbeiningar upp eins og þær koma fyrir heldur verða þær rýndar af til að þess bærum aðilum“. Þverfagleg teymi íslenskra sérfræðinga muni meta leiðbeiningarnar með tilliti til skipulags heilbrigðisþjónustunnar, mannafla, lyfjaframboðs, búnaðar og annarra aðstæðna. Breytingar þurfi að vera rökstuddar og fara fram með formlegum hætti.   

María segir nauðsynlegt að fagfélög, heilbrigðisstarfsfólk og notendur þjónustunnar komi að ferlinu. Þannig verði hægt að sameina bestu fáanlegu vísindalegu þekkingu og íslenska sérþekkingu og viðhorf. Klínískar leiðbeiningar eigi jafnframt að styðja við faglegt mat lækna en ekki koma í stað þess. Þær geti dregið úr óþarfa breytileika í þjónustu, aukið jafnræði og stuðlað að betra öryggi sjúklinga.   

Innleiðingin stærsta áskorunin  

María ítrekar að útgáfa leiðbeininga ein og sér tryggi ekki betri heilbrigðisþjónustu. Reynslan sýni að innleiðingin sé oft erfiðasti þátturinn og árangur ráðist meðal annars af trausti fagfólks og því hvernig leiðbeiningar nýtist í daglegu starfi. Í tengslum við innleiðingu sé mikilvægt að huga sem fyrst að tengingu við rafræna sjúkraskrá, skoða möguleika á stafrænum stuðningi við ákvarðanatöku og vinnuferla o.s.frv. Markmiðið sé að þróa góðar leiðbeiningar sem eigi við á landsvísu, og hægt sé að nýta með gæðavísum og öðrum gæðastöðlum til að efla gæði og öryggi í þjónustu. Leiðbeiningar sem unnið verður með geti komið frá NICE eða öðrum viðurkenndum aðilum á þessu sviði.   

Fyrsta verkefni Gagnreyndrar heilsu snýr að sykursýki tegund 2. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða viðfangsefni verði tekin fyrir næst. María segir unnið að gerð forgangsröðunarferlis þar sem lögð verði áhersla á gegnsæi og við val á verkefnum verði horft meðal annars til sjúkdómsbyrði, óþarfa breytileika í þjónustu, möguleika til gæðaumbóta og sjónarmiða sjúklinga. Þar geti heilbrigðisskrár Embættis landlæknis nýst vel.   

Áhersla verði lögð á náið samstarf við fagfélög, klíníska sérfræðinga, heilbrigðisstofnanir og fulltrúa notenda. Að sögn Maríu er langtímamarkmiðið að íslensk heilbrigðiskerfi búi sjálft yfir þeirri þekkingu og færni sem þarf til að þróa, staðfæra, innleiða og viðhalda klínískum leiðbeiningum. „Til að þetta verkefni gangi upp verðum við að fá sem flesta að borðinu; þannig byggjum við upp traust og sameiginlegt eignarhald á þessu mikilvæga verkefni.“