Fara í efni
Úr penna stjórnarmanna LÍ

Litið um öxl – og svo fram á veginn

Læknafélag Reykjavíkur (LR) var stofnað árið 1909 til að semja fyrir hönd sjálfstætt starfandi lækna og gerir það enn í dag – 117 árum síðar. Aðgengi sjúklinga hefur ávallt verið okkur hjartans mál. Nýlega voru liðin þrjú ár frá gildistöku samnings Sjúkratrygginga og LR um þjónustu sérgreinalækna. Undirritun samningsins batt enda á tæplega fimm ára samningsleysi – þar sem sjúklingar höfðu borið verulegan kostnað af því að leita sér lækninga. Nú þegar liðið er á samningstímann er vert að líta um öxl – og svo fram á veginn.   

Samstarf sem skilar árangri 

Við undirritun tók samstarfsnefnd aftur til starfa eftir langt hlé. Nefndin er ekki aðeins vettvangur til að leysa ágreining. Henni er ætlað að vinna að þarfa- og kostnaðargreiningu og innleiðingu nýrra meðferða – að þróa þjónustuna með þarfir sjúklinga að leiðarljósi.   

Gjaldskrár hafa verið endurskoðaðar og ný læknisverk innleidd. Eitt af verkefnunum hefur verið þróun greiðslulíkans vegna skimunar fyrir ristilkrabbameini. Sú þjónusta komst loksins á laggirnar eftir margra ára undirbúning. Enn er verk að vinna, en unnt er að ná mikilvægum framförum þegar aðilar vinna að sameiginlegum markmiðum.   

Hvað gera sérfræðilæknar á stofum? 

Sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar eru einn af hornsteinum íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Árið 2025 voru skráðar 548.041 komur til sérgreinalækna – og jukust um 6,6% frá undirritun. Nú eru 392 læknar á samningi, að meðaltali í 55% starfshlutfalli. Það jafngildir um 215 heilum stöðugildum og tæplega 2.500 komum á hvert stöðugildi árlega.   

Afköstin í mörgum greinum eru enn meiri. Árið 2025 sinntu augnlæknar rúmlega 79 þúsund komum, húðlæknar tæplega 61 þúsund, hjartalæknar rúmlega 58 þúsund og kvensjúkdómalæknar tæplega 53 þúsund. Sé miðað við meðalstöðuhlutfall hverrar sérgreinar jafngildir þetta um 2.990 komum á fullt stöðugildi augnlækna, 3.630 hjá húðlæknum, 3.660 hjá hjartalæknum og 2.740 hjá kvensjúkdómalæknum. Ellefu gigtarlæknar sinntu samtals 15.819 komum árið 2025, í aðeins 4,2 stöðugildum. Það jafngildir um 3.766 komum á hvert stöðugildi á ári.   

Þessar tölur undirstrika hversu mikilvægur þáttur sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar eru í heilbrigðiskerfinu. Þeir sinna miklum fjölda sjúklinga, oft með sérhæfðum rannsóknum og meðferðum.  

Hver tekur við? 

Árið 2023 voru 380 sérgreinalæknar á samningi en 392 árið 2026. Fjölgun hefur orðið í nokkrum sérgreinum, meðal annars í röðum bæklunar- og svæfingalækna. Í öðrum greinum hefur fjöldinn staðið í stað eða lækkað þrátt fyrir fjölgun og öldrun þjóðarinnar.   

Sérstakar áhyggjur vekur staða geðlækninga en geðlæknum á stofu hefur fækkað úr um 38 fyrir tæpum áratug í 20 nú. Meðalaldur sérgreinalækna er um 57 ár og í sumum greinum mun hærri. Meðalaldur geðlækna er 59 ár, barnahjartalæknar eru 69 ára og húðlæknar 61 árs. Síðasti öldrunarlæknirinn á samningi lokaði stofu sinni nýverið, þá 73 ára gamall. Hver tekur við þegar þessir læknar leggja frá sér hlustunarpípuna?   

Fyrstu 18 mánuðina var opið fyrir nýja lækna á samning, en nú er einungis tekið inn á samninginn tvisvar á ári og hafa engar undantekningar verið veittar þrátt fyrir þörf og langan biðtíma. Nýir sérfræðilæknar þurfa að sjá raunhæf tækifæri til að reka eigin starfsstöðvar. Við verðum að halda áfram að leitast við að gera starfsaðstæður lækna fjölbreyttar og aðlaðandi. Þannig fáum við læknana okkar aftur heim.   

Horft fram á veginn 

Á næstu árum felast mikil tækifæri í að efla sjálfstæða sérfræðiþjónustu. Ljúka verður yfirferð gjaldskráa þannig að unnt sé að veita viðeigandi þjónustu og styðja við nýjungar og framþróun. Rökrétt væri að fleiri verkefni færðust til sjálfstætt starfandi lækna – frekar en að flytja þau erlendis eins og nú virðist í farvatninu. Þá liggja tillögur á borði yfirvalda um að skapa hvata fyrir sérfræðilækna að sinna landsbyggðinni með víðtækari hætti – sem hefur verið loforð stjórnmálamanna um langt árabil. Byggja ætti þverfagleg teymi með hjúkrunarfræðingum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum til að auka afköst enn frekar.   

Samningurinn frá 2023 skapaði nauðsynlegan stöðugleika og lagði grunn að öflugu samstarfi. Á þeim grunni verðum við að byggja áfram. Ekki viljum við að sagan endurtaki sig – að sjúklingar standi aftur árum saman í samningsleysi og þurfi að greiða fyrir læknisþjónustu úr eigin vasa og reyna svo að innheimta útlagðan kostnað frá Sjúkratryggingum. Slíkt vill enginn!   

Sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar hafa sýnt að þeir veita umfangsmikla, hagkvæma og vandaða heilbrigðisþjónustu. Verkefni næstu ára er að skapa þeim betri skilyrði til að sinna því hlutverki – öllum landsmönnum til heilla.