Fara í efni
Ritstjórnargreinar

Rafskútuslys - Nýr ferðamáti á réttri leið?

Allt frá því að rafskútur fóru að ryðja sér til rúms sem svokallaður smáferðamáti í Reykjavík árið 2019 hafa þær verið á milli tannanna á landsmönnum. Sem sérnámslæknir á bráðamóttöku Landspítalans árin þar á eftir fannst undirrituðum oft fátt annað vera í umræðunni heldur en rafskútur annars vegar og kórónuveirufaraldurinn hins vegar. Þessi rafmagnsknúnu hlaupahjól eru áhugaverður ferðamáti og hafa í raun og veru gerbylt styttri ferðum fólks víða í heiminum. Öllum slíkum nýjungum fylgja þó jafnframt nýjar hættur og mikilvægt er að fylgjast vel með slíkri þróun svo hægt sé að grípa fljótt og markvisst til forvarna eða beinna varúðarráðstafana.  

Áverkar þeir sem hljótast af slysum tengdum rafskútum eru aðeins frábrugðnir því sem sést í öðrum sambærilegum ferðamátum á borð við hjól. Lítil hjól og lágur þyngdarpunktur virðast gera það að verkum að rafskútur þoli verr ójafnt undirlag með þeim afleiðingum að farartækið kúvendist og sá sem keyrir kastast fram.3 Jafnframt spilar þar inn í töluvert aukin tíðni þessara slysa að nóttu til og aukin notkun áfengis.1,4 Hærri tíðni er á andlits- og höfuðáverkum samanborið við hjólreiðaslys, en minna af áverkum á brjóstkassa, kvið og baki.1,2,4 Ekki er að sjá að áverkarnir séu almennt alvarlegri, fyrir utan áverka á andliti, en það má að einhverju leyti skýra með minni notkun hjálma samanborið við hjólreiðar.1,2 

Strax árið 2020 var ákveðið að taka saman gögn um komur á bráðamóttöku Landspítalans vegna áverka sem tengjast rafskútum, en það var mikilvægur þáttur í því að fá hlutlæga lýsingu á eðli slíkra áverka inn í umræðuna. Þar kom fram meðal annars áberandi fjöldi barna sem slasaðist á rafskútum, lítil notkun hjálma og umtalsverð notkun farartækjanna undir áhrifum áfengis eða vímuefna.2 Má færa líkur að því að greinin hafi lagt grunninn að þeim íhlutunum sem komið var í gagnið í kjölfarið, svo sem breytingum á löggjöf og regluverki. 

Í þessu tölublaði Læknablaðsins birta Hjalti Már Björnsson og félagar niðurstöður svipaðrar rannsóknar, sem tekur til víðara tímabils og sýnir vel þróun þá sem hefur orðið á notkun og öryggi rafskútna á undanförnum árum. Ýmislegt er þar jákvætt en jafnframt eru enn til staðar áskoranir þegar kemur að öryggi. Fagnaðarefni er að tíðni slíkra slysa sé almennt að minnka, sérlega í samanburði við sístækkandi rafskútuflota höfuðborgarsvæðisins. Það er þó ljóst að enn er áhættuhegðun mikil við notkun þessara farartækja. Ferðafólk er enn hjálmlaust, fjölmennir á skúturnar eða notar þær undir áhrifum áfengis og vímuefna.  

Hér er um að ræða viðfangsefni sem er enn nokkuð nýtt af nálinni og lítið er um stórar framskyggnar rannsóknir á heimsvísu. Þessar upplýsingar frá Íslandinu okkar eiga því vel erindi til rannsakenda og stjórnsýslufólks erlendis. Það er því einkar gleðilegt að heyra að Læknablaðið birti nú í fyrsta sinn greinar sínar á ensku, en sú breyting markar stórmerk tímamót í þróun vísinda hér á landi. Til að vita hvaða forvarnir og úrræði eru líklegust til árangurs spila rannsóknir sem þessi lykilhlutverk og eiga höfundar hrós skilið fyrir verkið. 

Heimildir 

1. Kleinertz H, Ntalos D, Hennes F, et al. Accident mechanisms and injury patterns in e-scooter users. Dtsch Arztebl Int 2021;118(8):117-21. 6. 

2. Benhamed A, Gossiome A, Ndiaye A, et al. Characteristics and comparison between e-scooters and bicycle-related trauma: a multicentre cross-sectional analysis of data from a road collision registry. BMC Emerg Med 2022;22(1):164.  

3. Lam EHY, Zhang S, Yu JMY, et al. Investigating severe e-bike and e-scooter injuries: Mechanisms and environmental considerations for public health action. Can J Public Health. 2026:8. Epub ahead of print. PMID: 42711538.  

4. Stray AV, Siverts H, Melhuus K, et al. Characteristics of Electric Scooter and Bicycle Injuries After Introduction of Electric Scooter Rentals in Oslo, Norway. JAMA Netw Open 2022;5(8):e2226701.  

5. Pétursdóttir SG, Kristjánsson JM, Björnsson HM. Rafskútuslys á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2020. Læknablaðið. 2021;107(5):234-8.