Vísindaþing Geðlæknafélags Íslands
Ágrip
Sjálfsvígsferlið: Áhættuþættir sjálfsvíga og samspil þeirra á þessari öld.
1Högni Óskarsson, 2Patrekur Örn Gestsson, 2Thor Aspelund, 2Arna Hauksdóttir, 3,4Engilbert Sigurðsson
1Embætti landlæknis, 2 Miðstöð lýðheilsuvísinda við Háskóla Íslands, 3 Læknadeild Háskóla Íslands, 4 Geðþjónusta Landspítala
Inngangur
Markmið rannsóknarinnar er að kortleggja áhættuþætti sjálfsvíga á Íslandi og samspil þeirra. Fjölmargir áhættuþættir sjálfsvíga eru þekktir frá erlendum rannsóknum en engar stærri nýlegar íslenskar rannsóknir liggja fyrir á tengslum áhættuþátta við sjálfsvíg. Rannsóknin byggir á samvinnu rannsakenda við þrjá háskóla, HÍ, HR og HA auk samvinnu við rannsakendur á Landspítala og hjá Embætti landlæknis. Rannsóknin er fjármögnuð með styrk frá Menningar-nýsköpunar - og háskólaráðuneyti.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin nær til allra sjálfsvíga (999) 2000 til 2025, og einnig til andláta vegna óhappaeitrana á árabilinu 2008 til 2025 (544) . Allar heilsufarsupplýsingar eru kannaðar, með áherslu á fimm ár fyrir andlát. Sömuleiðis verður í kjölfarið stuðst við gögn um félagssögu frá Hagstofu, Barna-og fjölskyldustofu og Fangelsismálastofnun. Hefðbundin megindleg aðferðarfræði/tölfræði verður nýtt fyrir lýsandi og greinandi tölfræði innan gagnasafnsins svo sem kí-kvaðrat, próf Fishers, aðhvarfsgreining, og ef ástæða er til út frá dreifingu einstakra breytna, non-parametrísk próf.
Umræða
Íslenskt samfélag hefur breyst mjög hratt á síðustu 100 árum, úr dreifbýlu, fátæku bændasamfélagi með hraðri myndun samfélagskjarna fram yfir miðja síðustu öld. Tíðni sjálfsvíga á tímabilinu hefur farið vaxandi og var í hámarki á tímabilinu 1976 til 2015.
Fjölmargir áhættuþættir eru þekktir svo sem einstakar geðraskanir, einkum lyndisraskanir, fíknvandi, geðrofssjúkdómur og jaðarpersónuleikaröskun, og einnig samspil tveggja eða fleiri geðraskana, fjölskyldusaga um sjálfsvíg, kyn, aldur, menntun, fjárhagsstaða, áföll í nútíma eða baksögu, erfiðar uppvaxtaraðstæður og fangelsisdómar. Auk þess að meta samspil áhættuþátta þá er annað meginmarkmið rannsóknarinnar að búa til gagnagrunna sem nýtast til að meta samspil áhættuþátta á næstu áratugum.
Heilaheilsa íþróttafólks
1 Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir
1Heilaheilsa ehf.
Inngangur
Á undanförnum árum hafa möguleg áhrif höfuðhögga í íþróttum á heilann fengið aukna athygli rannsakenda, fjölmiðla og almennings. Íþróttafólk greinir í vaxandi mæli frá áhyggjum af langtímaáhrifum höfuðhögga á hugræna getu, skapgerð og jafnvel auknum líkum á þróun heilahrörnunarsjúkdóma eftir að ferlinum lýkur. Þrátt fyrir aukinn áhuga rannsakenda eru niðurstöður enn takmarkaðar og ekki hefur enn tekist að gefa skýra mynd af skammtíma- og langtímaáhrifum höfuðhögga í íþróttum á hugræna færni, geðhag og langtíma líkur á þróun heilahrörnunarsjúkdóma. Hagsmunaaðilar skiptast í fylkingar og rangtúlkanir á rannsóknarniðurstöðum eru algengar og það getur aukið ótta og óvissu meðal þeirra sem eiga í hlut.
Efniviður og aðferðir
Í erindinu verður farið yfir nokkur sjúkratilfelli, rýnt í rannsóknir og rædd atriði sem stuðla að ábyrgri og upplýstri umræðu um þennan flókna og viðkvæma málaflokk sem mikilvægt er að skilja betur.
Umræða
Mikilvægt er að hafa í huga að meirihluti fyrrverandi íþróttamanna þróar ekki með sér heilahrörnunarsjúkdóma að ferli loknum og að hugrænir erfiðleikar síðar á ævinni endurspegla ekki endilega að einhver undirliggjandi sjúkdómur sé til staðar. Hjá mörgum kunna streita, breytt lífshlutverk, minni hreyfing, breytingar á félagslegum tengslum og sálfélagslegar áskoranir sem fylgja lokum íþróttaferilsins að skýra hluta þeirra einkenna sem einstaklingar upplifa. Samþætt mat á líkamlegri, hugrænni og geðrænni heilsu er því nauðsynlegt við eftirfylgd þessa hóps.
Þróun nýgengis og ástæður fyrir innlögnum ferðamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á geðdeildir á Íslandi frá 2004-2024
1Harpa Dís Hákonardóttir, 1,2Engilbert Sigurðsson
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2 Geðþjónusta Landspítala
Inngangur
Síðustu tvo áratugi hefur fjöldi erlendra einstaklinga sem nýtir heilbrigðisþjónustu á Íslandi aukist mikið. Á sama tíma hefur innlagnarplássum á geðsviði fækkað um nær fjórðung þrátt fyrir mikla fólksfjölgun. Skortur á baklandi og þekkingu á hvert sé best að leita við slíkar aðstæður gerir geðræn veikindi erlendra einstaklinga iðulega flókin viðureignar, einnig vegna tungumálaörðugleika og ólíks menningarbakgrunns. Umsækjendur um alþjóðlega vernd (UAV) eru jafnframt viðkvæmur hópur vegna aðstæðna.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn lýsandi faraldsfræðirannsókn sem náði yfir tímabilið 1. janúar 2004 – 31. desember 2024. Allar innlagnir einstaklinga með gervikennitölu á geðdeildir Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri á tímabilinu voru yfirfarnar og greindar sem ferðamenn eða UAV.
Niðurstöður
Alls fundust 442 innlagnir einstaklinga með gervikennitölu á tímabilinu, 256 voru ferðamenn og 186 UAV. Flestir voru 18-29 ára. Algengasta innlagnarástæða ferðamanna var geðrofsveikindi (n=119, 46,5%) og þar á eftir lyndisraskanir (n=68, 26,5%). Meðal UAV voru hugrofsraskanir algengasta greiningin, (n=96, 51,6%) en geðrofsveikindi þar á eftir (n=43, 23,1%). Miðgildi legulengdar í báðum hópum var 5 dagar. Nýgengi innlagna ferðamanna lækkaði úr 1,59/100.000 árin 2004-2010 í 1,08/100.000 árin 2018-2024 en meðalinnlagnafjöldi ferðamanna á ári óx úr 7,14 í 18,14 á sömu tímabilum.
Ályktanir
Lægra hlutfall innlagna á geðdeildir á hverja 100.000 ferðamenn og hærra hlutfall bráðra geðrofsveikinda í þessari rannsókn samanborið við erlendar rannsóknir bendir til hás innlagnarþröskulds vegna vaxandi skorts á innlagnarrýmum og áhrifa þjónustubreytinga eins og upptöku bráðaeftirfylgdar á bráðamóttöku geðsviðs frá 2017. Hærra hlutfall hugrofsraskana og geðrofsveikinda reyndist til staðar meðal UAV samanborið við nýlegar erlendar rannsóknir.
Aukin ásókn í örorku og endurhæfingarkerfið – hlutverk fjárhagslegra hvata
Oddur Ingimarsson1,2
1Geðþjónustu Landspítala, 2læknadeild Háskóla Íslands
Um 13% Íslendinga fengu örorku- eða endurhæfingarlífeyri á árinu 2024, 15,9% kvenna og 9,9% karla. Það er um 25% aukning á tíu árum, án þess að rannsóknir hér á landi hafi sýnt að heilsa þjóðarinnar hafi versnað. Aukningin hefur aðallega orðið í endurhæfingarlífeyri, sem jókst um 119% frá 2014-2024. Algengi örorku hjá Íslendingum stóð hins vegar í stað 2020–2024, meðal annars vegna lengingar endurhæfingartímabils úr þremur í fimm ár. Í byrjun árs 2025 voru 65% öryrkja með geðgreiningu, samanborið við 39% nýrra öryrkja árin 2000–2003. Á heimsvísu hafa geðraskanir aukist, einkum kvíði og þunglyndi, en ekki alvarlegri geðraskanir eins og geðklofi og geðhvörf. Það er óljóst hvort fleiri greiningar endurspegli meiri veikindi eða hvort aukin vitund og minni fordómar gagnvart geðsjúkdómum leiði til fleiri greininga.
Skýrsla OECD frá 2010 og samanburðarrannsóknir milli landa benda til þess að uppbygging bótakerfa og fjárhagslegir hvatar skýri stærstan hluta af mun á tíðni örorku milli landa, fremur en heilsufar. Einstaklingur með örorkutryggingu lífeyrissjóðs með framreikningi og fyrri laun undir um einni milljón króna heldur nær óbreyttum ráðstöfunartekjum á örorku. Einstaklingur með fyrri laun upp á 600 þúsund krónur sem fer á 50% hlutaörorku og í 50% starfshlutfall hækkar ráðstöfunartekjur sínar um 20–44% með því að fara á hlutaörorku. Fjárhagslegi hvatinn til að snúa aftur til fullrar vinnu verður því enginn. Rannsóknir sýna sterk tengsl milli betri geðheilsu og þess að komast aftur í vinnu eftir að hafa fallið af vinnumarkaði. Því er nauðsynlegt að kerfið styðji við endurkomu á vinnumarkað í stað örorku og að fjárhagslegir hvatar til að ná því markmiði séu til staðar.
The ONE-D Regimen: Single-Day Treatment Protocols for TMS
1Jonathan Downar
1Faculty of Medicine, University of Toronto, Canada
TMS is becoming steadily more commonplace as a treatment option for major depression and other highly prevalent disorders in psychiatry and neurology. However, one of the biggest remaining obstacles is logistical: the need of for dozens of treatment sessions, which can require several weeks of clinic visits. In an era when novel interventions such as psychedelic agents are drawing more and more interest, a key question is whether TMS can also deliver strong, durable results when administered on a rapid (i.e., single-day) timeline. Over the last 3 years, we have developed and refined a novel regimen for TMS known as ONE-D, in which all of the sessions are delivered in a single visit. To enhance the potency of the intervention, the ONE-D regimen uses pharmacological augmentation via NMDA partial agonists. Results appear encouraging, with the single-day ONE-D regimen achieving approximately double the remission rates of a conventional 36-day once-daily intervention for both depression and anxiety, in a 300-patient propensity-matched comparison. Recently published case series also show promising remission rates for single-day TMS in bipolar I depression, OCD, PTSD and other prevalent psychiatric disorders. Since ONE-D protocols do not require complex MRI-guided techniques and rely upon existing medications that are relatively inexpensive and easy to obtain, the ONE-D protocols are suitable for deployment in existing TMS centres. Indeed, single-day TMS has already been adopted in over 100 clinics in the US, Canada, and Europe over the last 2 years. Single-day TMS is particularly useful for countries where some patients must travel long distances to access a TMS clinic, and may improve the accessibility of TMS for patients who live in remote areas or have mobility issues. Potential applications of these protocols to improve TMS accessibility in countries with dispersed populations, such as Canada and Iceland, will be discussed.
Dagdeildarmeðferð fyrir börn með áráttu- og þráhyggjuröskun
1 Orri Smárason
1Barna- og unglingageðdeild Landspítala
berInngangur
Gagnreynd úrræði fyrir áráttu- og þráhyggjuröskun (ÁÞR) hjá börnum og unglingum eru hugræn atferlismeðferð með berskjöldun og svarhömlun (HAM) og lyfjameðferð með SSRI-lyfjum. Þrátt fyrir slíka meðferð benda rannsóknir til að rúmlega 25% sjúklinga nái engum, eða mjög takmörkuðum, árangri. Meirihluti barna með ÁÞR sem leitar á BUGL hefur þegar reynt hefðbundna meðferð án verulegs árangurs á fyrri þjónustustigum. Fyrir þann hóp sem ekki svarar hefðbundinni meðferða mæla klínískar leiðbeiningar (NICE og APA) með svokallaðir ákafri (e. intensive) HAM nálgun.
Aðferð
Í ákafri HAM fer berskjöldun og svarhömlun fram í mun meira umfangi á styttra, afmarkaðra tímabili en í hefðbundinni meðferð. Frá ársbyrjun 2025 hefur BUGL, í samvinnu við Maudsley sjúkrahúsið í Lundúnum, þróað slíka ákafa sex vikna dagdeildarmeðferð fyrir börn og unglinga með alvarlega og meðferðarþolna ÁÞR.
Niðurstöður
Rannsóknir hafa sýnt góðan árangur af ákafri HAM – hátt svarhlutfall, viðvarandi bata og lítið brotfall – hjá þeim sem áður höfðu ekki svarað lyfja- eða sálfræðimeðferð. Stutt, áköf meðferðarform virðist skila jafngóðum eða betri árangri en hefðbundin meðferð, og hentar auk þess oft betur ákveðnum hópum, t.d. þeim sem búa fjarri þjónustu og virðist einnig geta aukið hvata skjólstæðinga. Kostnaðar- og ábatagreiningar erlendis frá benda til að dagdeildarmeðferð sé hagkvæmasta úrræðið fyrir þennan hóp. Dagdeildarmeðferð BUGL hefur þegar gefið góða raun.
Ályktanir
HAM í formi dagdeildarmeðferðar virðist árangursrík og hagkvæm nálgun fyrir börn og unglinga með alvarlega og meðferðarþolna ÁÞR sem ekki hafa svarað hefðbundinni meðferð. Verkefni BUGL verður áfram þróað og árangursmetið.
Áhrif búprenorfíns á dánartíðni vegna ópíóða-dauðsfalla
1Andrés Magnússon, 2Ólafur B Einarsson, 3Hannes Hrafnkelsson, 4Svava H Þórðardóttir
1Reykjavíkurakademían, 2 Embætti landlæknis, 3 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, 4 Rannsóknarstofa Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði
Inngangur
Sérlyfjaskrá segir að buprenorfín sé notað til uppbótarmeðferðar við ópíatafíkn. Ekki er alveg ljóst hvað það þýðir, en lyfinu er oftast ávísað í þeirri trú að það dragi úr líkum á andláti. Það er hins vegar ekki til nein RCT (slembiröðuð samanburðarrannsókn með lyfleysu) sem styður það. Þær rannsóknir sem fullyrðingin um áhrif búprenorfíns á dánartíðni byggir á hafa nokkuð óvenjulegt rannsóknarsnið.
Aðferðir
Heildarþýðisrannsókn. Borin verður saman dánartíðni hópsins þegar þátttakendur eru á búprenorfíni borið saman við þegar þeir eru ekki á lyfinu. Þessi aðferð byggir á forsendum eins og að það sé tilviljunum háð hvenær þátttakendur ákveða að hefja meðferð og hvenær þeir hætta í meðferð. Hins vegar verður að telja líklegra að aðstæður og fíkn þátttakandans séu á verri stað þegar hann fellur úr meðferð, að brottfall sé vísbending um hættulegra ástand. Einnig er gert ráð fyrir því að aðrir þættir meðferðarinnar hafi engin áhrif o.fl. Því er þörf á rannsóknum úr annarri átt til þess að meta áhrif búprenorfíns á dánartíðni.
Rannsaka hvernig þróun dánartíðni vegna ópíóíða dauðsfalla eftir því sem notkun á lyfjum gegn ópíóðafíkn vex (eða breytist). Við höfum kallað eftir upplýsingum um sölutölur, fjölda útgefinna lyfjaskírteina og lyfjaávísanir fyrir búprenorfíni og metadoni á Íslandi, en svör hafa enn ekki borist. Ópíóðatengd andlát er fundin í dánarmeinaskrá.
Niðurstöður og ályktanir
Meðan beðið er eftir svörum frá Íslandi hafa gögn frá Danmerku verið greind, og þar er erfitt að sjá nokkurt samband milli hversu mikið er notað af lyfjum við ópíóðafíkn og dánartíðni vegna banvænna ópíóíða ofskammta.
Getur bati átt sér stað án bindindis?
Yfirlit yfir fyrstu fjögur árin í starfsemi Laufeyjarteymis
1Elísabet H. Brynjarsdóttir og 1Sunna Siggeirsdóttir
1Geðþjónusta Landspítala
Bakgrunnur
Laufey er sérhæft vettvangsgeðteymi sem hóf störf í október 2021 og tilheyrði þá fíknilínu geðþjónustu Landspítala, en teymið færðist um mitt þetta ár undir Ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu á Kleppi. Teymið sinnir einstaklingums sem glíma við samslátt (e. comorbidity) alvarlegra geðsjúkdóma og fíknar. Teymið starfar á grundvelli skaðaminnkunar, áhugahvetjandi samtals, batamiðaðrar nálgunar og gagnreyndrar geðlæknisfræði. Teymið starfar eftir hugmyndafræði flexible assertive community treatment (FACT).
Markmið
Að lýsa þjónustu teymisins og tölfræðilegum gögnum fyrstu fimm árin sem teymið hefur starfað og fjalla um hverju þjónustan hefur breytt um hag skjólstæðinga auk þess sem farið verður yfir áskoranir sem teymið hefur mætt.
Aðferð
Lýsandi tölfræði úr gagnagrunni Sögukerfis Landspítala Háskólasjúkrahúss frá janúar 2022 til desember 2025.
Niðurstöður
Laufeyjarteymi hefur þjónustað 44 einstaklinga (11 kvk/33 kk) í 4.671 komum frá upphafi. Heimilisleysi hefur dregist saman um 20 prósentustig frá 2022-2025. Komum skjólstæðinga Laufeyjarteymisins á bráðamóttökur Landspítala hefur fækkað um 65% frá 2022. Legum skjólstæðinga Laufeyjarteymis á legudeildum Landspítala hefur fækkað um 22,5% frá 2022-2025 og legudögum hefur jafnframt fækkað um 24% á sama tímabili. Hlutfall þeirra í teyminu sem voru með dóm um sjálfræðis-, lögræðis- eða fjárræðissviptinga lækkaði úr 39% í 29% á tímabilinu. Vímuefnanotkun skjólstæðinga Laufeyjarteymisins hefur verið nokkuð stöðug eða jafnvel aukist á tímabilinu.
Ályktanir
Frá upphafi hafa megingildi teymisins verið skaðaminnkun, áhugahvetjandi samtal, batamiðuð þjónusta og gagnreynd geðlæknisfræðileg meðferð. Sú nálgun hefur skilað árangri í formi fækkunar á slíkum sviptingum, auknum stöðugleika í búsetu ásamt því að draga úr álagi á bráðamóttökur og legudeildir þrátt fyrir að vímuefnanotkun hafi áfram haldist mikil meðal einstaklinga sem teymið veitir þjónustu.
Meðferð og upplifun af þjónustu í sérhæfðu geðhvarfateymi á Íslandi
Halla Ósk Ólafsdóttir1,2, Oddur Ingimarsson 1,3, Berglind Guðmunsdóttir1,3, Brynja Björk Magnúsdóttir1,2, Engilbert Sigurðsson 1,3, Ragnar Pétur Ólafsson3.
1Geðþjónusta Landspítala, 2Háskólinn í Reykjavík, 3Háskóli Íslands.
Inngangur
Klínískar leiðbeiningar um meðferð geðhvarfa mæla með samþættri lyfja- og sálfélagslegri meðferð. Rannsóknir benda þó til misræmis milli leiðbeininga og meðferðar í klínísku starfi. Markmið rannsóknarinnar var að kortleggja meðferð og stuðning innan geðhvarfateymis Landspítala og kanna upplifaða gagnsemi meðferðar og ánægju með þjónustuna.
Aðferðir
Þversniðsrannsókn var framkvæmd meðal skjólstæðinga geðhvarfateymis Landspítala, en teymið veitir sérhæfða þjónustu á landsvísu. Öllum 116 sem uppfylltu þátttökuskilyrði var boðin þátttaka og 82 tóku þátt (71%). Þátttakendur svöruðu spurningum um meðferð og stuðning vegna þunglyndis og örlyndis ásamt sjálfsmatslistum um þunglyndis- og kvíðaeinkenni, virkniskerðingu, lífsgæði og meðferðaránægju. Upplýsingar um greiningu og meðferð voru einnig fengnar úr sjúkraskrám.
Niðurstöður
Ráðleggingar um svefn, virkni og lífsstíl voru algengasta stuðningsúrræðið við þunglyndi (91%) og örlyndi (93%). Sálfræðimeðferð við þunglyndi hafði verið veitt 34% þátttakenda og 73% þeirra töldu hana það úrræði sem hefði gagnast sér best. Geðrofslyf voru algengt meðferðarúrræði við örlyndi (93%) og 55% þeirra sem fengu þau töldu þau gagnlegasta úrræðið. Sjúkraskrárgögn sýndu að 62% einstaklinga með geðhvörf I höfðu fengið litíum og 75% með geðhvörf II lamótrigín meðan á meðferð í teyminu stóð. Meðferð við örlyndi var metin gagnlegri en við þunglyndi (p=0,041). Meðferðaránægja var almennt mikil. Meiri þunglyndiseinkenni tengdust minni meðferðaránægju, lakari lífsgæðum og meiri virkniskerðingu.
Ályktanir
Meðferðarframboð innan geðhvarfateymis Landspítala var að stórum hluta í samræmi við klínískar leiðbeiningar og meðferðaránægja mikil. Sálfræðimeðferð við geðhvarfaþunglyndi hafði þó verið veitt tiltölulega fáum, þrátt fyrir að hún væri metin afar gagnleg meðal þeirra sem hana fengu.
Hvernig þróast nýrnastarfsemi eftir að litíummeðferð er stöðvuð?
Gísli Gíslason¹, Runólfur Pálsson¹˒², Engilbert Sigurðsson¹˒³, Ólafur S. Indriðason²
¹ Læknadeild Háskóla Íslands
² Nýrnadeild Landspítala
³ Geðþjónusta Landspítala
Inngangur
Markmið rannsóknarinnar var að kanna breytingar á nýrnastarfsemi í kjölfar stöðvunar á litíummeðferð.
Efniviður og aðferðir
Gerð var afturskyggn hóprannsókn á öllum einstaklingum á Íslandi sem fengu litíummeðferð á árunum 2001–2023 og höfðu fengið litíum í meira en 4,5 ár samkvæmt lyfjaávísunum og/eða mælingum á styrk litíums í blóði. Reiknaður gaukulsíunarhraði (r-GSH) var notaður til að meta nýrnastarfsemi. Þátttakendur þurftu að eiga þrjár eða fleiri r-GSH mælingar fyrir og á árinu eftir að litíummeðferð var hætt. Við greiningu á breytingum á halla r-GSH-ferilsins voru mælingar takmarkaðar við fimm ár fyrir og fimm ár eftir að litíummeðferð var hætt. Einstaklingar með langvinnan nýrnasjúkdóm (LNS) af þekktum orsökum ótengdum litíummeðferð voru útilokaðir.
Niðurstöður
Af 1289 einstaklingum sem uppfylltu skilyrði rannsóknarinnar hættu 282 litíummeðferð á rannsóknartímabilinu og höfðu nægilegar r-GSH-mælingar til þátttöku. Þar af voru 94 (33%) með LNS á stigi 3 eða hærra áður en litíummeðferð var hætt. Samkvæmt einföldu línulegu blönduðu líkani breyttist halli r-GSH (ml/mín/1,73 m² á ári) úr −2,65 fyrir stöðvun litíummeðferðar í −0,90 eftir stöðvun (p<0,05). Í fjölbreytulíkani þar sem leiðrétt var fyrir mikilvægum skýribreytum sást sambærileg breyting á halla, úr −2,65 í −1,39 (p<0,05). Hjá einstaklingum með LNS á stigi 3 eða hærra breyttist hallinn úr −3,53 í −0,63 (p<0,05), en hjá öðrum úr -1,50 í −0,69 (p<0,05).
Ályktanir
Stöðvun litíummeðferðar tengdist minni hnignun í r-GSH, sem bendir til jákvæðra áhrifa á nýrnastarfsemi. Áhrifin kunna að vera meiri hjá einstaklingum með LNS á stigi 3 eða hærra þegar litíummeðferð er hætt.
Áhrif semaglutide á líkamsþyngd og efnaskipti hjá einstaklingum með geðsjúkdóma
Ingi Hrafn Guðbrandsson1 Magnús Haraldsson1,2 Rannveig Þöll Þórsdóttir1 Oddur Ingimarsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Einstaklingar með alvarlega geðsjúkdóma eru líklegri en aðrir til að þróa með sér offitu og efnaskiptasjúkdóma, meðal annars vegna áhrifa geðrofslyfja. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á notkun þyngdarstjórnunarlyfja hjá þessum hópi.
Markmið
Að meta áhrif semaglutide á líkamsþyngd, efnaskipti og aukaverkanir hjá einstaklingum með geðsjúkdóma á geðrofslyfjameðferð.
Aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn ferilrannsókn sem náði til allra sem voru í meðferð á göngudeild geðsviðs á Kleppi í geðrofs-, samfélags- eða geðhvarfateyminu eða á Laugarási, meðferðargeðdeild, á árunum 2020-2026 og hófu meðferð með semaglutide. Rannsóknin byggði á upplýsingum úr sjúkraskrám einstaklinga í rannsóknarúrtakinu.
Niðurstöður
Rannsóknarúrtakið samanstóð af 56 einstaklingum sem hófu meðferð með semaglutide á rannsóknartímabilinu og voru með skráða þyngd við upphaf meðferðar. Þessir 56 einstaklingar hófu alls 76 meðferðarlotur, þar sem sumir byrjuðu oftar en einu sinni á meðferð. Tæpur helmingur eða 27 (48,2%) hættu á meðferðinni á rannsóknartímabilinu, flestir vegna aukaverkana eða höfnunar á greiðsluþátttöku. Meðalþyngd lækkaði marktækt úr 125,4 kg í 115,3 kg (p<0.001) sem samsvarar meðalþyngdartapi upp á 10,1 kg (8,3%). Meðalgildi BMI lækkaði úr 39.8 í 36,6 kg/m² (p<0,001). Ekki var marktækur munur á þyngdartapi milli geðrofslyfja eða kynja. Aukaverkanir voru mjög algengar (90%). Algengastar voru minnkuð matarlyst og ógleði. Af þeim sem áttu við neysluvanda að stríða greindu 36-43% frá minni löngun í áfengi og vímugjafa á meðferð.
Ályktanir
Niðurstöður benda til þess semaglutide hafi marktæk áhrif til að stuðla að þyngdartapi meðal einstaklinga með alvarlega geðsjúkdóma á geðrofslyfjum. Þær undirstrika mikilvægi þess að tryggja aðgengi þessa hóps að meðferðinni með endurskoðun greiðsluþátttökuskilyrða.
Frá jaðarpersónuleikavirkni til jaðarpersónuleikaröskunar.
Sögulegt yfirlit: af hverju er æskilegt að greina og meðhöndla betur jaðarpersónuleikaröskun á unglingsárum ?
Bertrand Lauth, barna- og unglingageðdeild Landspítala
Þessi sögulega nálgun leiðir okkur ekki aðeins aftur í tímann, að rótum geðlæknisfræðinnar undir lok 19. aldar, heldur einnig í gegnum ólík fræðileg líkön á mörkum sjónarhorna geðlæknisfræði, faraldsfræði og sálgreiningar.
Þróun hugtakanna jaðar (fr. limite) og borderline er afleiðing af samspili og átökum milli strúktúrlegrar sjúkdómaflokkunarnálgunar evrópskrar geðlæknisfræði annars vegar og meira lýsandi og einkennamiðaðrar nálgunar engilsaxneskrar geðlæknisfræði hins vegar.
Sögulegt yfirlit sýnir jafnframt að langtímarannsóknir, sem ögruðu eldri hugmyndum, hafa sýnt fram á hlutfallslegan stöðugleika þessara raskana. Áður fyrr var talið erfitt að aðgreina þær frá eðlilegum þroskabundnum sveiflum unglingsáranna, tímabili sem einkennist oft af miklum sveiflum í tilfinningalífi og sjálfsmynd.
Þessi þróun endurspeglar vel þá viðvarandi togstreitu sem ríkir milli varfærni við greiningu, í ljósi þess hve þróunarferlar geta verið fjölbreytilegir, og nauðsynjar þess að grípa snemma inn í. Nýlegar framfarir og rannsóknarniðurstöður hafa sýnt að meðferðaríhlutun getur haft verulega jákvæð áhrif á framvindu.
Helstu áskoranir samtímans felast nú í að draga úr fordómum, efla menntun og þjálfun fagfólks og bæta aðgengi þeirra ungmenna sem um ræðir að viðeigandi meðferð og þjónustu.
Af störfum geðlækna
1,2Kristinn Tómasson
1Lækning Lágmúla 5, 2 Geðteymi Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Inngangur
Störf geðlækna eru margþætt en fjalla í grunninn um greiningu, meðferð, og hvernig geð-, tilfinninga- og atferlisraskanir eru greindar. Þá lúta störf geðlækna að forvörnum. Í þessu felst ekki síst öflun gagna á grundvelli einstaklinga, hópa eða samfélagsþátta. Til þessa þarf að ákveða hvaða vettvangur og viðfangsefni er undir, hvaða verkfæri eru notuð og hvaða tími er til að sinna slíkum verkefnum.
Aðferðir
Horft til baka á þróun mælitækja á svið geð- og atferlisraskana, þ.m.t. MMSE, CAGE, og fleiri mælitækja auk vinnu á sviði vinnuverndar og geðheilbrigðis á vinnustöðum og þátta sem þar skipta máli. Þá er skoðuð vinna og hlutverk geðlæknis gagnvart dómstólum og tryggingum. Að lokum er skoðað ráðgjafastarf og hlutverk geðlæknis gagnvart geðheilsuteymum og heilsugæslu.
Niðurstöður
Starf og vinna og menntun geðlæknis nýtist á mörgum sviðum utan hefðbundinna móttöku og greiningarstarfa á læknastofu, göngudeild eða sjúkrahúsum. Hins vegar er hlutverk geðlæknis án efa hvað mest í ráðgjafastörfum gagnvart öðrum læknum og heilbrigðisstarfsfólki á heilsugæslu sem án efa er mesta gefandi og býður upp á mestu tækifærin miðað við vinnutíma til að ná árangri.
Ályktanir
Telja verður brýnt til að nýta þekkingu geðlækna sem best að efla getu þeirra í ráðgefandi þjónustu á sem flestum sviðum samfélags- og heilbrigðisþjónustu og þá sérlega við heilsugæslu.
Faraldsfræði og alvarlegar aukaverkanir ADHD-lyfjanotkunar á Íslandi
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir1,2, Engilbert Sigurðsson1,2, Bertrand Andre Marc Lauth1,3, Halldóra Jónsdóttir1,2 og Oddur Ingimarsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Geðþjónusta Landspítala, 3Barna- og unglingageðdeild Landspítala
Spurningum svarar Ragna Kristín, ragnak@landspitali.is
Inngangur
Lyfjameðferð með örvandi lyfjum er talin áhrifaríkasta meðferðin við athyglisbresti með ofvirkni (ADHD). Geðrof og maníur eru sjaldgæfar en alvarlegar aukaverkanir ADHD-lyfjameðferðar. Markmið rannsóknarinnar var að kortleggja faraldsfræði ADHD lyfjanotkunar á Íslandi og kanna áhættuna á fyrsta geðrofi eða maníu innan árs frá upphafi ADHD-lyfjameðferðar.
Aðferðir
Rannsóknarúrtakið samanstóð af öllum þeim sem hófu meðferð með ADHD lyfjum frá 2005-2025 samkvæmt upplýsingum úr Lyfjagagnagrunni Landlæknis. Einstaklingar 18 ára og eldri, sem hófu meðferð með ADHD lyfjum frá 2010-2022 og lögðust inn á geðdeild vegna fyrsta geðrofs eða maníu innan árs frá upphafi meðferðar voru fundnir með samkeyrslu Lyfjagagnagrunns og Vistunargrunns Landlæknis.
Niðurstöður
Gríðarleg aukning varð á fjölda einstaklinga sem hófu meðferð með ADHD lyfjum frá 2005-2025, mest var aukningin meðal kvenna en heilt yfir var notkunin mest meðal drengja. Nýgengið náði hámarki 2022 en hefur síðan lækkað að nýju. Áhættan á innlögn vegna fyrsta geðrofs eða maníu var 0,38%. Til samanburðar var áhættan í almennu þýði á innlögn vegna fyrsta geðrofs eða maníu 0,048% á ári á árunum 2018-2020. Hlutfallsleg áhætta var 7,99 (95% CI 6,06-10,54) og rekjanleg áhætta 87,5%. Tæplega 70% (42/61) þeirra sem lögðust inn fengu ávísað ADHD-lyfi innan árs frá útskrift og af þeim lögðust 26% (11/42) aftur inn á geðdeild innan árs vegna geðrofs eða maníu.
Ályktun
Geðrof og maníur eru sjaldgæfar en alvarlegar aukaverkanir ADHD-lyfjameðferðar sem mikilvægt er að læknar og almenningur viti af í ljósi sívaxandi notkunar lyfjanna hjá fullorðnum.
Gagnsemi vistfræðilegs skyndimats við mat á árangri og virkum þáttur ósértækrar hugrænnar atferlismeðferðar við félagsfælni og þunglyndi
1Magnús Blöndahl Sighvatsson, 2Bergsveinn Halldórsson, 3Gestur Vagn Baldursson
1 Háskóli Íslands. Sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna. Klínískur atferlisfræðingur og lektor við sálfræðideild.
2 Sálfræðingur, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
3 Sálfræðingur, Stuðningsheimilið Blönduhlíð
Inngangur:
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna árangur og virka þætti ósértækrar hugrænnar atferlimeðferðar (ÓHAM) í meðferð félagsfælni og þunglyndis með vistfræðilegu skyndimati. Meðferðin var byggð á kenningu Paul Salkovskis um að virkir þættir í sálfræðimeðferð felist í hugsanabreytingu frá Kenningu A (sem er ósveigjanleg, óhjálpleg og truflandi kenning sem sjúklingur hefur um tilfinningavandamál sín) til Kenningar B (sem er sveigjanleg, hjálpleg og raunhæf kenning um tilfinningavandamál sem kennd er í meðferðinni). Þessi breyting kallast hugrænn sveigjanleiki.
Aðferð:
Mat fór fram með reglulegum mælingum í daglegu lífi þátttakenda með smá-forritinu m-Path sem og í meðferðartímum. Það sem var metið voru einkenni; tiltrú á Kenningu A vs Kenningu B; tiltrú á þeim hugsunum sem ollu þátttakendum mestri vanlíðan. Notkun á vistfræðilegum skyndimati gaf tækifæri til að meta breytingar í rauntíma. Þátttakendur voru þrír, tveir sem glímdu við félagsfælni en einn við þunglyndi auk fylgiraskana. Gögn voru greind með aðferðum einliðasniðsrannsókna.
Niðurstöður:
Greining gagna með sjónrænni og tölfræðilegri greiningu sýndi skýran bata hjá öllum þátttakendum. Einkenni minnkuðu á sama tíma og tiltrú á Kenningu A minnkaði. Breytingar á truflandi hugsunum áttu sér einnig stað. Sterk tengsl fundust á milli minnkandi tiltrúar á Kenningu A og minnkunar á einkennum. Gögn úr vistfræðilegu skyndimati bentu ennfremur til marktækra tengsla á milli breytinga á meðferðartímum og í daglegu lífi. Niðurstöður benda því til að ÓHAM sé gagnleg meðferð og að hugrænn sveigjanleiki sé virkur þáttur. Þær benda einnig til gagnsemi vistfræðilegs skyndmats sem viðbót við hefðbundar mælingar.
Þróun geðlyfjanotkunar á meðgöngu frá 2004 til 2023
Bjarki Leó Snorrason1, Helga Zoega1
1Háskóli Íslands, Miðstöð í Lýðheilsuvísindum
Inngangur
Geðsjúkdómar á meðgöngu eru algengir og geta reynst móður og barni hættulegir, sérstaklega ef ómeðhöndlaðir. Lyfjanotkun á meðgöngu er þó ekki áhættulaus og hafa nýlegar rannsóknir á algengi notkunar ákveðinna lyfjaflokka á meðgöngu, svo sem örvandi lyfja, vakið áhyggjur.
Efniviður og aðferðir
Heilþýðisrannsókn á 86.531 meðgöngum 50.494 kvenna sem lauk með fæðingu 2004 til 2023, byggð á gögnum Fæðingarskrár og Lyfjagagnagrunns Landlæknis. Útsetning var skilgreind sem að minnsta kosti einn útleystur lyfseðill lyfs af ATC flokki N05 eða N06. Algengi var metið með breyttu Poisson-líkani og lýst með árlegri hlutfallsbreytingu (AARC). Algengi var einnig metið yfir sjö glugga, frá 180 dögum fyrir meðgöngu til 180 daga eftir hana.
Niðurstöður
Geðlyfjanotkun á meðgöngu jókst úr 10,7 í 20,8 á hverjar 100 meðgöngur milli 2004 og 2023 (AARC +4,6%, 95% CI: 4,3 til 5,0). Þunglyndislyf vógu þyngst í aukningunni (+6,3%, 5,9 til 6,8) en hlutfallslega varð mest aukning á notkun örvandi lyfja (+21,4%, 19,6 til 23,2), úr 0,12 í 4,88 á hverjar 100 meðgöngur. Notkun svefnlyfja dróst saman (-1,7%, -2,4 til -1,1). Yfir meðgönguna lækkaði algengi úr 11,6 % fyrir getnað í 7,2% á öðrum þriðjungi, en jókst aftur í 10,4% sex mánuðum eftir fæðingu. Lækkunin frá tímabilinu fyrir getnað til annars þriðjungs var 79% fyrir örvandi lyf en 39% fyrir þunglyndislyf. Leiðrétting fyrir aldri og meðgöngulengd hafði ekki áhrif á þróun notkunar milli ára.
Ályktanir
Geðlyfjanoktun á meðgöngu hefur nær tvöfaldast á tveimur áratugum. Sérstaklega mikil aukning hefur orðið á notkun örvandi lyfja. Flestar konur draga úr geðlyfjanotkun eða hætta henni yfir meðgönguna, en talsverður munur er milli lyfjaflokka.
Geðsjúkdómar í annálum
1 Óttar Guðmundsson
1Sjálfstætt starfandi geðlæknir á stofu
Mikill fjöldi annála eða fréttaskrifa er til frá 1400 – 1800 sem lýsa vel lífinu í landinu, miklum harðindum, aflabrögðum, slysum, dauðsföllum og sjúkdómum.
Víða er getið um alls kyns sálsýki, en nauðsynlegt er að taka tillit til andlegs ástands samfélagsins. Á 16. og 17. öld var trú á galdra og vald djöfulsins landlæg. Upp komu andlegir faraldrar þar sem stór hópur fólk fann fyrir ásókn djöfulsins með andlegum og líkamlegum kvölum. Nokkur fjöldi meintra galdramanna var brenndur vegna þessa. Í þessum tilvikum virðist um að ræða sameiginlegt geðrof heimilisfólks sem rekja má til sefjunar.
Í annálum er víða getið um sjálfsvíg og lýst aðdraganda þeirra. Þegar einstök mál eru krufin til mergjar má finna alvarlegt þunglyndi og langvinnar sjálfsmorðshugsanir. Höfundar annála reyna mikið að finna ástæður verknaðarins og kenna oft yfirnáttúrulegum atburðum.
Drykkjuskapur hefur verið almennur og víða er að finna frásagnir um mikla ölvun og slys sem af henn i geta hlotist. Drykkjusýki er þó ekki taklin til sjúkdóma.
Annálar skýra frá mörgum sem greinilega eru haldnir alvarlegu þunglyndi eða kvíða. Greint er frá aðferðum sem notaðar eru til að binda fólk eða hefta för þess vegna geðveiki.
Niðurstaða: Víða í annálum er fjallað um geðsjúkdóma þótt þeir séu án efa vantaldir. Frásagnir af sálsýkisfaröldrum á miðöldum minna að sumu leyti á faraldra og sókn í ákveðnar geðgreiningar í nútímanum. Afstaða til sjálfsvíga hefur breyst en ráðaleysi umhverfisins og leit að blórabögglum er sambærileg við okkar samtíma.
Geðlæknirinn á Instagram: reynsla af geðfræðslu fyrir almenning
1Helga Þórarinsdóttir
1Geðþjónusta Landspítala
Inngangur
Samfélagsmiðlar eru orðnir hluti af lífi flestra í dag. Yfir 60% jarðarbúa nota þá og er notkunin mest meðal ungs fólks (93 – 97%). Miðlarnir eru í vaxandi mæli nýttir til geðfræðslu, til að draga úr fordómum og til að hvetja fólk til að leita sér viðeigandi aðstoðar. Efni frá fagfólki og fólki með eigin reynslu getur normaliserað geðræn vandamál, en gæði efnisins skipta þó meira máli en umfang þess. Þrátt fyrir aukna umræðu í samfélaginu undanfarin ár sýna rannsóknir að almenn þekking á geðheilsu og geðsjúkdómum er takmörkuð. Því stofnaði höfundur Instagramreikninginn @gedlaeknirinn til að efla þekkingu almennings, ekki síst ungs fólks, á geðsjúkdómum og geðheilsu.
Efniviður og aðferðir
Instagramreikningurinn var stofnaður í lok apríl 2026. Fræðslan er ætluð almenningi og er áhersla hefur verið lögð á aðgengilegt en gagnreynt efni um geðheilsu og geðsjúkdóma. Gögnum var safnað úr innbyggðri tölfræði Instagram (insights) yfir fyrstu mánuði starfseminnar.
Niðurstöður
Í lok september voru fylgjendur reikningsins orðnir 600 og konur yfir 93% fylgjenda og þá mest konur á aldrinum 25 – 44 ára (75%). Efni um kvíða náði mestri útbreiðslu en færsla um geðrof kom þar næst á eftir. Uppfærðar tölur verða kynntar við flutning erindisins í nóvember.
Ályktanir
Geðfræðsla á Instagram hefur vakið athygli og fylgjendum fjölgað með hverri færslu. Hópurinn sem les færslunar og fer að fylgja þeim hefur reynst mest af sama kyni og á sama aldri og höfundur fræðslunnar en spennandi verður að sjá hvort reikningurinn muni ná til fjölbreyttari hóps með tímanum.