Vísindaþing Geðlæknafélags Íslands
Ávarp
IX. Vísindaþing Geðlæknafélags Íslands – 7. nóvember 2026 á Hótel Stykkishólmi
Ávarp formanns
Verið velkomin á níunda vísindaþing geðlækna og barna- og unglingageðlækna. Vísindaþingin eru mikilvægur vettvangur fyrir fagfólk innan geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi til að efla fagvitund, vísindastarf og samráð. Vísindaþing Geðlæknafélagsins gegna einnig mikilvægu hlutverki í endurmenntun geðlækna og annars fagfólks sem sinnir málefnum geðsjúkra á íslandi.
Vísindaþing okkar hafa verið mikilvægur vettvangur til að deila nýrri þekkingu og efla rannsóknir í geðlæknisfræði á Íslandi, og um leið að hittast til að auka félagsleg tengsl og eiga skemmtilegar stundir saman. Við þurfum að halda áfram að þróa fagið. Það kallar á betri og markvissari meðferðarúrræði, auknar rannsóknir og öfluga innleiðingu gagnreyndra aðferða.
Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá áframhaldandi fjölda læknanema með innlegg í dagskrá þingsins, því að við viljum efla áhuga unga fólksins á þessu áhugaverða og gefandi fagi innan læknisfræðinnar. Þörfin fyrir geðlækna og annað fagfólk geðheilbrigðisþjónustunnar fer vaxandi. Efla þarf mönnun, menntun og nýliðun, en jafnframt skapa starfsumhverfi sem gerir fagfólki kleift að sinna störfum sínum til lengri tíma. Geðheilbrigðisþjónusta verður best þegar ólíkar fagstéttir vinna saman og þegar góð samvinna ríkir milli heilsugæslu, sérfræðiþjónustu, félagsþjónustu, skóla og vinnumarkaðar. Tryggja þarf einnig samfellu í þjónustu, sérstaklega þegar fólk færist milli þjónustukerfa eða úr þjónustu barna yfir í þjónustu fullorðinna.
Ég vil þakka undirbúningsnefnd þingsins fyrir mjög gott starf. Í henni eru geðlæknarnir Engilbert Sigurðsson, Oddur Ingimarsson, Magnús Haraldsson og Erna Hinriksdóttir, og Hildur Björg Harðardóttir fyrir hönd barna- og unglingageðlækna.
Fyrir hönd stjórnar Geðlæknafélags Íslands vil ég sérstaklega þakka Vistor-Johnson & Johnson fyrir að vera styrktaraðili þingsins, og gera mögulegan gestafyrirlestur Jonathan Downar geðlæknis frá University of Toronto.
Ólafur Bjarnason
formaður Geðlæknafélags Íslands