12. tbl. 95. árg. 2009

Umræða og fréttir

Þarfaþing fyrir sjúklinga

Út er komin bókin Krabbamein í blöðruhálskirtli. Þetta er lítil og handhæg bók, um 115 blaðsíður, gefin út af Háskólaútgáfunni. Um er að ræða rit sem skrifað er fyrir almenning en höfundar eru fimm sænskir læknar með mikla reynslu af meðferð blöðruhálskrabbameins að baki, sem og rannsóknir.


Bókin er þýdd og frábærlega staðfærð af þeim Eiríki Jónssyni og Snorra Ingimarssyni.


Rit þetta er mikið þarfaþing fyrir sjúklinga sem og lækna þeirra einnig, vil ég meina, en um efnið sem oft er flókið og torráðið er fjallað á nærfærinn, en hispurslausan hátt.


Krabbamein í blöðruhálskirtli er nú algengasta krabbamein á Íslandi í greiningu þó tíðni dauðsfalla sökum þess sé aðeins í þriðja sæti. Gífurleg fjölgun hefur orðið á körlum greindum með krabbamein í blöðruhálskirtli á síðustu 20 árum, eða um 400%.


Yfir 200 karlar á Íslandi fá árlega greininguna krabbamein í blöðruhálskirtli og fyrir alla þá karla sem og fjölskyldur þeirra er það talsverð lífsreynsla að ganga í gegnum. Vissulega er sjúkdómurinn misalvarlegur sem þó er ekki alltaf vitað í fyrstu.


Bókin lýsir ágætlega greiningarferlinu og mjög góður kafli er um PSA-mælingarnar.


Sérlega lýsandi sjúklingadæmi eru notuð til að skýra þýðingu hækkaðs PSA-gildis hjá ólíkum mönnum. Ræða læknar almennt við sjúklinga sína um þýðingu PSA-mælinga fyrirfram? Hvaða þýðingu getur mælingin haft fyrir sjúklinga ef niðurstaðan er ekki afgerandi? Álitaefni varðandi þetta og fleira eru vel skýrð með dæmum. Bókin er skrifuð í upplýsandi og bjartsýnum anda og sannarlega full ástæða fyrir lækna að mæla með henni við sjúklinga sína.


Einnig tel ég þetta rit vera gagnlegt fyrir aðra lækna en þvagfæraskurðlækna og krabba-meinslækna sem oft eru í miklum tengslum við sjúklinga með krabba-mein í blöðruhálskirtli, svo sem heimilislækna og öldrunarlækna.


Í lok bókar er að finna góðar upplýsingar um netsíður til frekari upplýsingaleitar.


Þarft og virðingarvert framtak til að upplýsa umræðu um þetta algengasta krabbamein í íslenskum körlum.

asmundur.jonasson@gb.hg.is



Þetta vefsvæði byggir á Eplica